Safnmark: KSS 154
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 154
- Titill:
Edda Bjarnadóttir
- Tímabil:
1988
- Umfang:
Ein askja
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 154. Edda Bjarnadóttir. Ljósmyndasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Edda Bjarnadóttir
Kvennalistinn
Nordisk Forum
- Varðveislusaga:
Úr fórum Eddu Bjarnadóttur.
- Um afhendingu:
Edda Bjarnadóttir afhenti á skrifstofu Kvennasögusafns 6. maí 2004.
Aðfangaskrá 2004:
„6. maí. Edda Bjarnadóttir, Aflagranda 40, færir safninu ýmsa muni tengda Kvennalistanum: Spilastokkur, kaffikrús, penni, svunta með áletruninni ‘Staða konunnar er á stjórnarheimilinu’, grænan sundbol með merki Kvennalistans, silkislæðu með merki Kvennalistans, einnig tvo innkaupapoka með merkjum Nordiskt Forum, 2 ljósmyndamöppur frá Nordisk Forum og einn plastborðdúk“
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
184 ljósmyndir frá Nordisk Forum í Osló 1988
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Tengt efni
- Tengt efni:
KSS 11. Kvennalistinn.
KSS 2017/6. Kristín Jónsdóttir, ljósmyndir Kvennalistans.
KSS 2020/2. Guðný Guðmundsdóttir.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir setti á KSS safnmark og tók saman lýsandi samantekt. Ljósmyndirnar skáru sig frá öðrum í safni KSS 11 þar sem þær voru í sér ljósmyndaalbúmum sem voru merktar Eddu og fá þær því sér safnmark. Munirnir sem hún kom með á sama tíma eru varðveittir á Kvennasögusafni og hafa ekki sér safnmark.
- Dagsetning lýsingar:
9. mars 2020
Skjalaskrá
askja 1
184 ljósmyndir frá Nordisk Forum í Osló 1988
Ljósmyndaalbúm blátt
Ljósmyndavasar í lausu. Númerin tákna upprunalega röð síðnanna í möppu.
Sumar myndanna eru í raun úrklippur eða póstkort.