Safnmark: KSS 162
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 162
- Titill:
Guðrún Guðjónsdóttir
- Tímabil:
ca. 1900–1950
- Umfang:
Ein askja
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 162. Guðrún Guðjónsdóttir. Ljósmyndir.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Guðrún Guðjónsdóttir.
- Lífshlaup og æviatriði:
Óvíst hvaða Guðrún Guðjónsdóttir sendi þetta. Mögulega var það Guðrún Guðjónsdóttir (1903–1989) sem hafði áður afhent [4. júlí 1977, 7. september 1988] safninu bækur eftir sig: Opnir gluggar, Gluggar mót sól og Söngur þrastanna. Sjá nánar í Morgunblaðinu 1. ágúst 1989, bls. 38.
- Um afhendingu:
Guðrún Guðjónsdóttir sendi myndirnar til Önnu Sigurðardóttur á Kvennasögusafni, 8. febrúar 1989, skv. gjafabók.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Ein askja, 19 ljósmyndir.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Rakel Adolphsdóttir setti á sérstakt KSS safnmark og tók saman lýsandi samantekt. Var áður í öskju á Kvennasögusafni merkt: „Ljósmyndir b)“. Þegar safnið var gefið var einungis talið 18 ljósmyndir, mögulega hefur mynd 4 slæðst með úr öðru safni.
- Dagsetning lýsingar:
7. september 2020
Skjalaskrá
askja 1
Ljósmyndaplast 1:
- Svarthvít ljósmynd af konu og karli ásamt þremur börnum. Aftan á myndinni stendur: Guðrún Magnúsdóttir 1910. Ljósmyndari: P. Brynjólfsson
- Svarthvít ljósmynd af eldri mann með fjórum börnum; þremur stúlkum í hvítum kjólum og einum dreng í svörtum fötum. Aftan á myndinni stendur: Guðm. Guðmundson Kröggólfsstöðum.
- Svarthvít ljósmynd af tveimur konum, önnur með gleraugu, báðar með perluhálsfesti. [Líklega tekin á milli 1930 og 1940]
- Svarthvít ljósmynd af eldri konu sem situr í sófa með blóm í forgrunni. Konan er með skotthúfu. Aftan á myndinni stendur: Guðný á gallafelli? [ath. myndin gæti mögulega hafa villst með hinum þar sem hún er ólík öllum öðrum myndum, líklega tekin upp úr 1950]
Ljósmyndaplast 2:
- Sesselja Sigvaldadóttir um 1910
- Loftur Loftsson, Sigríður Barðardóttir, Gjöf hrunamanna 1912 til 1915
- Ómerkt, kona stendur
- Guðrún Markús. Ragnhildur Lingdal um 1900
- Ragnheiður Brynjólfsdóttir, Guðmundur Guðmundsson verkamaður Kröggólfsstöðum Reykjavík 1910
- Anna Auðuns Hjaltestend
- Svava Þórhallsdóttir biskups
- Guðrún Ólafsdóttir skreðari í Grjótagötu 12 (Hæstarétti)
Ljósmyndaplast 3:
- Ómerkt, karl og kona
- Kristján Loftsson og kona Haukadal. Guðbjörg Greipsdóttir síðan á Felli.
- Elín Ólafsdóttir og Ólafur sonur hennar 1905
- ómerkt, karl og kona
- Jónína Jónsdóttir 1910
- Eyjólfur skósmiður, kona og dóttir 1910
- Sólveig Brynjólfsdóttir Keflavík 1910