Safnmark: KSS 70
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 70
- Titill:
Kvenfélag Árneshrepps
- Tímabil:
1926-2006
- Umfang:
Fjórar öskjur og ein útskorin gestabók
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 70. Kvenfélag Árneshrepps. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Kvenfélag Árneshrepps (1926-2006)
- Lífshlaup og æviatriði:
Félagið starfaði í Árneshreppi í Strandasýslu á árunum 1925-2006, var í Kvenfélagasambandi Strandasýslu og Kvenfélagasambandi Íslands
- Varðveislusaga:
Gögnin voru í fórum ritara félagsins hverju sinni
- Um afhendingu:
Sólveig S. Jónsdóttir, síðasti formaður félagsins, afhenti gögnin ásamt gögnum minningarsjóðs Fríðu Guðmundsdóttur frá Bæ í Strandasýslu, 4. júní 2015.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Skjalaöskjur, 4, venjulegar að stærð, með pappírsgögnum og nokkrum bókum fyrir fundagerðir og reikninga. Ein stór úrskorin gestabók.
- Grisjun:
Allir reikningar fylgdu afhendingu. Haldið var eftir 5. hverju ári sem sýnishorni en hinu eytt.
- Viðbætur:
Ekki er von viðbóta
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er ótakmarkaður
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Auður Styrkársdóttir skráði.
- Dagsetning lýsingar:
18. október 2015
Skjalaskrá
Askja 1
- Fundagerðabók frá 24. ágúst 1926 – 23. júní 1948. Einnig færðar inn starfsskýrslur stjórna á sama
tímabili og gjafir til fátækra barna.
- Fundagerðabók frá 21. júlí 1949 – 21. sept. 2006. Félaginu var slitið á síðasta fundi þess.
- Nafnabók yfir Kvenfélagskonur Árneshrepps, 1938-1996.
- Reikningar Kvenfélags Árneshrepps, 1926-2005. Fremst í bókina eru rituð nöfn
stofnfélaga.
Askja 2
- Verkefni kvenfélagasambands Íslands fyrir Unicef, 2006
- Erindi frá Kvenfélagasambandi Íslands
- Nokkrar fundargerðir KSS (Kvenfélagasamband Strandasýslu)
- Nokkur bréf frá KRFÍ, m.a. um stofnun Menningar- og minningarsjóðs kvenna, 1945
- Orlofssjóður húsmæðra í Strandasýslu, nokkur bréf
- Vegna dánarbús Ingibjargar Guðmundsdóttur, Stóru-Árvík, 1982, úthlutun.
- Umsókn um styrk til atvinnumála kvenna, 1999, og svarbréf
- Bréf frá landsbyggðarhóp um kvennafrí 24. okt. 1975, dreifibréf Framkvæmdanefndar um kvennafrí
- Jólakort frá Barnaskóla Árneshrepps 1957 – Kort frá Sigríði Halldórsdóttur – Bréf frá Júlíönu Guðmundsdóttur 1944
- Safnanir: Söfnun fyrir heyrnarmælingatæki 1984 – Sjónvarp fyrir Sjúkrahúsið á Hólmavík 1978 – Sjúkrabörur fyrir Slysavarnarfélagið 1978 – Gjöf til Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 1981 – Til krabbameinsdeildar kvensjúkdómadeildar 1985
- Bréfuppkast til slysavarnarfélags vegna nauðsynar á síma í Veiðileysu, 12.9. 1972
- Bréf um val á nafn á félagsheimili Árneshrepps, 1967
- Ungverjalandssöfnun 1956
- Lög Kvenfélags Árneshrepps (ódagsett)
- Bréf og erindi til Kvenfélags Árneshrepps
- Ársskýrslur Kvenfélags Árneshrepps, 1948, 1977-2006 (ekki samfellt)
Askja 3
Reikningar Kvenfélags Árneshrepps (valin ár, sýnishorn)
Askja 4
Minningarsjóður Fríðu Guðmundsdóttur frá Bæ í Árneshreppi, stofnaður 1962:
- Bækur: Skrá yfir gjafir og áheit – Gerðabók fyrir minningarsjóð Fríðu Guðmundsdóttur frá Bæ – Bókhaldsbók 1964-2007
- Ársreikningar
- Ýmislegt
- Lokun sjóðsins
- Skipulagsskrá
Fagurlega úrskorin gestabók.