Safnmark: KSS 54
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 54
- Titill:
Lára Ágústa Ólafsdóttir Kolbeins
- Tímabil:
Óvíst
- Umfang:
Sex öskjur og að auki gögn í sérstökum umbúðum
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 54. Lára Ágústa Ólafsdóttir Kolbeins. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Lára Ágústa Ólafsdóttir Kolbeins (1898-1973)
- Lífshlaup og æviatriði:
Fæddist að Hvallátrum á Breiðafirði 26. mars 1898, d. í Reykjavík 18. mars 1973.
For.: Ólafur Aðalsteinn Bergsveinsson, bóndi og bátasmiður, og kona hans Ólína Jóhanna Jónsdóttir.
Nam við Rjómabústýruskólann að Hvítárvöllum um vetrartíma, lauk prófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1921. Fékkst nokkuð við kennslu.
Maki: sr. Halldór Kolbeins. Þau eignuðust sex börn: Ingveldur Aðalheiður, Gísli, Erna, Eyjólfur, Þórey Mjallhvít og Lára Ágústa. - Varðveislusaga:
Þórey Mjallhvít, dóttir Láru, afhenti Kvennasögusafni, en Lára hafði afhent henni skjölin til varðveislu. Bréfin komu í hendur Þóreyjar mörgum árum eftir andlát Láru.
- Um afhendingu:
Afhending var 26. júní 2006, sbr. Aðfangaskrá 2006. Fyrri afhending hafði átt sér stað 29. nóvember 2004.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Safni Láru Ágústu er skipt upp í eftirfarandi flokka: A. Bréfaskipti – B. Gögn Láru Ágústu Ólafsdóttur Kolbeins – C. Ýmisleg gögn
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Safnið er opið
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Skjölin komu í efnisröðuð kössum. Auður Styrkársdóttir fínraðaði árið 2006. Hún skrifaði þessa lýsingu í janúar 2012. Safnið var lokað til ársins 2020.
- Dagsetning lýsingar:
19. janúar 2012
Skjalaskrá
A Bréf
B Gögn Láru Ágústu Ólafsdóttur Kolbeins
C Ýmisleg gögn
A Bréf
Askja 1: AA Bréf til Láru Ágústu
Bréfritarar: Ólafur Kristjánsson – Aðalheiður (dóttir Láru) – Ásdís Friðb. – Anna (systir Láru) – G. Jónsson – Kristjana Friðbertsdóttir – Þórey Mjallhvít Kolbeins
Askja 2: AB Bréf frá Láru Ágústu
Viðtakendur: Anna Ólafsdóttir Hvallátrum (systir), 1925-1958 – Baldur Kolbeins (1) – Aðalheiður (ljósrit, 4) – Ólafur A. Bergsveinsson (1) – Þórey (3)
Einnig: Bréf til Þóreyjar frá Önnu frænku (4) og frá Halldóri Kolbeins (1)
B Gögn Láru Ágústu Ólafsdóttur Kolbeins
Askja 3: • Ýmislegt um Láru: Aldarminning, ljósmyndir, ljóð, fullnaðarpróf, próf frá Kvennaskólanum í Reykjavík
- Um Halldór Kristján Eyjólfsson Kolbeins, minningargreinar o.fl.
- Minningargreinar um Láru
- Ljósritaðir textar valdir úr handritum Láru Kolbeins. Á 100 ára afmæli hennar fengu börn hennar hvert
um sig möppu með þessum textum. Fremst liggja upplýsingar um Láru
- Afrit af þakkarbréfi Kvennasögusafns til Þóreyjar M. H. Kolbeins
- Gjafabréf Þóreyjar Mjallhvítar Halldórsdóttur Kolbeins
Saman í örk:
Minningargrein um Torfa Magnússon, mág Þóreyjar Kolbeins
Sálmar sungnir við kveðjuathöfn Sigurborgar Ólafsdóttur, Skáleyjum
Bréf frá Halldóri Kolbeins til Baldurs Ragnarssonar, tengdasonar, skrifað í Vancouver 30.12. 1959
Æviágrip Ólafs Aðalsteins Bergsveinssonar, föður Láru Ágústu
Saman í örk:
Þórey Kolbeins: “Um mömmu”
Þórey Kolbeins: “Um Rúnu og Óla”
Minningar Rúnu um Láru
- Bréf vegna ættarmóta
- Þulur frá Breiðafjarðareyjum úr minni Önnu Ólafsdóttur
Efst liggja tveir leðurmunir og Børnenes Bog ásamt skýringum Þóreyjar Kolbeins við bókina
Handavinna Margrétar Eyjólfsdóttur
Askja 4: B Gögn Láru Ágústu Ólafsdóttur Kolbeins
- Handrit (aðallega frá tímanum á Súgandafirði)
- Handrit (sögur og frásagnir)
Askja 5: B Gögn Láru Ágústu Ólafsdóttur Kolbeins
Bækur Láru Ágústu með sögum, frásögnum og minningum
Askja 6: B Gögn Láru Ágústu Ólafsdóttur Kolbeins
Bækur Láru Ágústu með sögum, frásögnum og minningum
C Ýmisleg gögn (í sérstökum umbúðum, ekki í öskjum)
„Borðar af krönsum og samúðarkveðjur til minningar um Halldór Kolbeins“
Myndaalbúm o.fl.
- Eyjafólk, myndaalbúm
- Gestabók
- Séra Halldór Kolbeins, andlátsminning
- Lára Ágústsdóttir Kolbeins, myndaalbúm