Safnmark: KSS 102
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 102
- Titill:
Sigurlín Guðbrandsdóttir
- Tímabil:
1922–1992
- Umfang:
Sjö öskjur
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 102. Sigurlín Guðbrandsdóttir. Einkaskjalasafn.
(Lbs.-Hbs. Kvss.)
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Sigurlín Guðbrandsdóttir (1907–1996)
- Lífshlaup og æviatriði:
Fædd árið 1907 á Loftsölum í Mýrdal, dáin 1996 í Reykjavík.
For.: Guðbrandur Þorsteinsson bóndi og kona hans Elín Björnsdóttir að Loftsölum. Ólst upp hjá föðursystur sinni, Guðríði Þorsteinsdóttur, og manni hennar, Gunnari Bjarnasyni, í Steig í Mýrdal.
Kaupakona í Mýrdal og Vestmannaeyjum. Fór til Reykjavíkur 1934, hóf störf hjá Álafoss árið eftir og starfaði þar framundir 1980.
Ógift og barnlaus, bjó lengi ásamt systur sinni Vilborgu.Heimild: Morgunblaðið, 20. apríl 1996.
- Varðveislusaga:
Úr fórum ættmenna
- Um afhendingu:
Björgvin Salómonsson, systursonur Sigurlínar, afhenti Kvennasögusafni Íslands 13. október 2015.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Persónuleg gögn úr fórum Sigurlínar ásamt kompum af ýmsum gerðum og stærðum, sem innihalda dagbækur hennar og heimilisbókhald í margar áratugi.
- Grisjun:
Með þessum gögnum fylgdi mikill fjöldi skráa frá Þjóðleikhúsinu og LA og var þeim komið til þjóðdeildar Landsbókasafns.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Auður Styrkársdóttir skráði 21. október 2015. Rakel Adolphsdóttir gerði ítarlegri skráningu á dag- og minnisbókum í apríl 2019 og fjölgaði um leið öskjunum úr fjórum í sjö.
- Dagsetning lýsingar:
21. október 2015.
Skjalaskrá
A – Persónuleg skjöl
Askja 1
- Álafoss: bæklingur um Álafoss – Álafossvísurnar, 1934 – Jólakort og áramótakort
- Uppskrifuð ljóð
- Símskeyti, 1922-1992
- Sögufélag Skaftfellinga/Skaftfellingamót
- Þórunn Guðbrandsdóttir, dánarbú
- Guðbrandur Þorsteinsson, Loftsölum, Mýrdal:Minningarorð. Hamingjuósk frá dætrum.
- Erfðamál Sigurlínar, m.a. erfðaskrá
- Útför Sigurlínar, reikningar
- Afrit af gestabók við útför Sigurlínar
- Persónulegt: Fæðingarvottorð – ”Öll systkini mín” (handskrifað) – Viðurkenningarskjal frá
- Landssambandi iðnverkafólks – Ættarferð 1984
- Ljósrit af minningargrein um Sigurlínu í Morgunblaðinu 20. apríl 1996.
- 65 Tækifæriskort:
- 25 ódagsett
- 3 frá 1915-1919
- 17 frá 1922-1929
- 14 frá 1930-1939
- 5 frá 1940 og 1941
- 1 frá 1990
B Minnisbækur, dagbækur og heimilisbókhald
Askja 2
Dagbækur 1935–1959
Askja 3
Dagbækur 1960–1980
Askja 4
Dagbækur 1981–1991
Askja 5
Dagbækur og minningabækur, 11 talsins í mismunandi stærðum. 1942–1979
Askja 6
Minnisbækur, 6 talsins í mismunandi stærðum (kvæði, lög, námskeiðsglósur, „þýðing spilanna“ o.s.frv., ódagsettar
Askja 7
Heimilisbókhald, 15 talsins í mismunandi stærðum, 1930–1983