Skip to content

Sigurveig Guðmundsdóttir (1909-2010) kennari og húsmóðir

Sigurveig Guðmundsdóttir (1909-2010) kennari og húsmóðir

Safnmark: KSS 2022/21

Lýsandi samantekt

  • Varðveislustaður:

    Kvennasögusafn Íslands

  • Safnmark:

    KSS 2022/21

  • Titill:

    Sigurveig Guðmundsdóttir

  • Tímabil:

    1924-2002

  • Umfang:

    Fimm öskjur, fjórar í opnum aðgangi.

  • Tilvitnun:

    Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2022/21. Sigurveig Guðmundsdóttir. Einkaskjalasafn.

Samhengi

  • Nöfn skjalamyndara:

    Sigurveig Guðmundsdóttir (1909-2010) kennari og húsmóðir

  • Lífshlaup og æviatriði:

    Sigurveig ólst upp í Hafnarfirði. Eftir barnaskólanám stundaði hún nám í Flensborgarskóla og síðar í Kvennaskólanum og lauk námi þaðan. Sigurveig útskrifaðist frá Kennaraskóla Íslands 1933. Að námi loknu stundaði hún kennslu við Landakotsskóla í átta ár en lengst af kenndi hún við Lækjarskóla í Hafnarfirði. Sigurveig hafði alla tíð mikil afskipti af félagsmálum. Hún var um skeið formaður Kvenréttindafélagsins, var um langa hríð virk í starfi Sjálfstæðisflokksins og var síðar meðal stofnenda Kvennalistans. Hún var einnig fyrsti formaður Félags kaþólskra leikmanna og lét víðar til sín taka. Árið 2005 var Sigurveig sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir félagsstörf. Ævisaga hennar, Þegar sálin fer á kreik, kom út árið 1991. Heimild: Minningagrein, Morgunblaðið 20. apríl 2010, bls. 20-21.

  • Varðveislusaga:

    Úr fórum afkomenda

  • Um afhendingu:

    Þann 19. desember 2022 bárust um hendur Margrétar Hrefnu Sæmundsdóttur gögn móður hennar, Sigurveigar Guðmundsdóttur. Um er að ræða framhaldsafhendingu, aðrar afhendingar sem tengjast Sigurveigu eru á safnmörkunum KSS 26 og KSS 2018/12 og KSS 2024/19.

Um aðgengi og not

  • Um aðgengi og not:

    Aðgangur er takmarkaður að hluta

Tengt efni

  • Tengt efni:

    Söfn Sigurveigar á Kvennasögusafni: KSS 26, KSS 2018/12, KSS 2022/21 og KSS 2024/19.

Um lýsinguna

  • Athugasemdir skjalavarðar:

    Rakel Adolphsdóttir skráði

  • Reglur eða aðferð:

    Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum

  • Dagsetning lýsingar:

    27. ágúst 2025

Skjalaskrá

askja 1

[Raðað eins og það var afhent í rauðri skjalamöppu, flokkað af gefanda í plastvasa, fært af skjalaverði yfir í arkir]

  • örk 1: Bréf frá Jóni Helgasyni prófessor í Kaupmannahöfn 1952, bréf frá Þóroddi Guðmundssyni frá Sandi 1950, jólakort
  • örk 2: Framboðsræður í Hafnarfirði, Sjálfstæðisflokkurinn
  • örk 3: Bréf Til fjölskyldu Róm 12. maí 1960
  • örk 4: Ljósrit og úrklippur
  • örk 5: Heilög Cecilia Verndardýrlingur tónlistarinnar
  • örk 6: Frásögn af reimleikum í Laugargerðisskóla 5. nóvember 1973
  • örk 7: Sýnin í fjallinu
  • örk 8: Úr öræfaskarð
  • örk 9: Úrklippa og bréf
  • örk 10: Ræða um sonum sem 17. október 1975
  • örk 11: Úrklippa
  • örk 12: Tilkynningum um samkvæmishald í Hafnarfirði á kvennaárinu 1975
  • örk 13: Ræða haldin fyrir önd Bandalags kvenna í Hafnarfirði 1975
  • örk 14: Bréf til Bjarna Benediktssonar vegna átaka í Hafnarfirði 1966. Ræðan sem olli fjaðrafoki á fundi í Vonboðanum 1966
  • örk 15: Hamar. ÚTg. Sjálfsflokki blað
  • örk 16: Ræður af landsfundi Sjálfstæðisflokks og frá fundi í Vorboðanum:
    • Landsfundur 1965 um stjórnmálaþátttöku kvenna
    • Ræða á Vorboðafundi
    • Kosningaljóð tileinkað Mattíasi Á. Hatthiesen alþingismanni, apríl 1966
    • Eitt lítil blað
    • Morgunfundur, ræða og nótur af fundinum
  • örk 17: Fundur um bæjarmálin 1968
  • örk 18: Sendibréf til Matthísar Jóhannesson, séra Sigurðaur Pálssonar, Guðmundar á Brjánslæk 23. mars 1965
  • örk 19: 17. júní 1968, ræða flutt á útihátíð í Hafnarfirði
  • örk 20: Úrklippur
  • örk 21: Ræða flutt slysavarnarfélag um hlutverk kvenna
    • Minning um draum júní 1964
    • Kort vegna látinnar félagskonu [mögulega Guðrún Jónasson]
  • örk 22: Erindi á fundum Guðspekifélagsins um Teresu frá Avila
  • örk 23: Úrklippur: viðtal við Sigurveigu, minningagreinar
  • örk 24: Bréfritari, Nanna (Jónína Jónsdóttir Kudsk 1907-1983), Kaupmannahöfn 19. ágúst 1960 og minningagrein
  • örk 25: Húsið Hverfisgata 52 b. Hafnarfirði [vélrit], Útgáfusamningur við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur 1. maí 1991, til Vésteinn Luðvíkssonar skáld, bréf frá Jórunni Sigurðardóttur 2000, Svör við spurningum um bónorðsbréf, Elín Sigurðardóttir skáldkona skrifað á Hrafnistu 1999
  • örk 26: Handskrifað „Í Rússlandi“
  • örk 27: Siðaskipti
  • örk 28: Kynni Sigurveigar af Aðalbjörgu Sigurðardóttur 1928
  • örk 29: Frásagnir
  • örk 30: Minningar úr Kvennaskólanum Reykjavík 1924
  • örk 31: Kvennaskólaminning 1925
  • örk 32: Fjörutíu ára minningar úr Kvennaskólanum
  • örk 33: Endurminningar frá barnæsku, til Sæmundar 6. júlí 1976
  • örk 34: Veikin
  • örk 35: Ævintýrin við ána Oder 1969
  • örk 36: Finnland og Pólland 1969, dagbókarbrot
  • örk 37: úrklippur
  • örk 38: Um frk. Guðrúnu Jónasdóttur kennara í Landakoti
  • örk 39: Frásögn af því þegar S.G. var þjónustu stúlka í veiðihúsi 1935 „Sextíu krónur á mánuði“
  • örk 40: Kynni mín af hernáminu [ástandið], afmælisræða um Rannveigu Vigfúsdóttur formanni Hraunaprýði
  • örk 41: Kynni af Sigríði Hafstað nuddlækni og Þuríði Eyjólfsdóttur, um Einar Benediktsson og hirð hans
  • örk 42: Listi sem fylgdi afhendingu

 

askja 2

  • örk 1: Kortabók, bréfspjaldabók
  • örk 2: Kvennaskólinn, þrjár bækur 1927, 1932
  • örk 3: Minningabók, Sigurveig og vinkonur skrifa á Vífilstöðum
  • örk 4: Minnisbók 1971
  • örk 5: Mappa [ferðagögn?]
  • örk 6: minnisbók

 

askja 3 sendibréf

  • örk 1: Bréfritari: Jónína Jónsdóttir / Nanna Jónsson / (Jónína Jónsdóttir Kudsk 1907-1983)
    • Gullfoss 28. janúar 1934
    • Kaupmannahöfn 4. apríl 1935 [tvö blöð]
    • Kaupmannahöfn 24. maí 1935
    • Kaupmannahöfn 4. október 1938
    • miði, nótur Hymno
    • Oresundhospitalet 14. mars 1939
    • Blönduós 29. júlí 1939
    • Ódagsett bréf [eitt blað]
    • umslag
  • örk 2: Bréfritari: Nanna Snæland
    • Budapest 22. júlí 1938
    • Budapest 17. október 1938
    • umslag
  • örk 3: Bréfritari: Nanna Snæland
    • Álaborg 6. desember 1939
    • Umslag
  • örk 4: Bréfritari Nanna Snæland
    • Álaborg 21. ágúst 1938
    • Álaborg 15. apríl 1939
    • Álaborg 10. júní 1939
    • Álaborg 3. október 1939
    • Kaupmannahöfn 4. júlí 1956
  • örk 5: Bréfritari: Jón Stefánsson, Grund
    • október 1950
    • nóvember 1950
    • janúar 1951
  • örk 6: Bréfritari, Guðrún Jónsdóttir kennari við Landakotsskóla
    • Reykjavík 6. júlí 1938
  • örk 7: Bréfbútur, danska, Laura Calssen [ódagsett]

 

askja 4 prentað efni

askja 5 – rannsóknaraðgangur

Bréf og kort frá barnabörnum Sigurveigar