Skip to content

Teofani-samkeppnin 1930

Teofani-samkeppnin 1930

Árið 1930 stóð heildsalinn Þórður Sveinsson og Co., sem flutti inn sígarettumerkið Teofani, fyrir viðburði sem kalla má fyrstu íslensku fegurðarsamkeppnina. Hugmyndin átti uppruna sinn í Englandi. Íslenskar konur voru hvattar til að senda inn mynd af sér, sem voru síðan fjölfaldaðar og dreift í íslensku sígarettupakkana. Upphaflega hugmyndin var sú að almenningur greiddi atkvæði með því að senda myndirnar aftur til fyrirtækisins og átti ein mynd að jafngilda einu atkvæði. Þegar til kastanna kom var hinsvegar breskur leikstjóri, Charles B. Cochrane, fenginn til að dæma um sigurvegarana. Í kjölfar fegurðarsamkeppninnar fór fram önnur samkeppni, þar sem fólk var hvatt til að safna myndunum. Sá sem yrði fyrstur til að safna öllum 50 myndunum fengi að launum útsýnisflug yfir Reykjavík. Um sama leyti stóð Tóbaksverslun ríkisins, sem flutti inn sígarettumerkið Commander, fyrir svipaðri markaðsherferð. Hjá Commander voru það hins vegar landslagsmyndir sem prýddu sígarettupakkana.

Auglýsing Tíminn 7. september 1929 bls 196 Auglýsing sem birtist í Tímanum 7. september 1929 bls 196

Úrslitin í Teofani-keppninni voru tilkynnt á Alþingishátíðinni 26. júní 1930. Þrjár stúlkur hrepptu efstu sætin og hlutu allvegleg peningaverðlaun. Skoðanir fólks á þessu uppátæki sígarettufyrirtækisins voru skiptar og sumum stúlkunum sem tóku þátt fannst tilstandið í kringum keppnina vandræðalegt. Lesa má nánar um keppnina í umfjöllun DV frá árinu 1982.

Árið 2008 stóð Kvennasögusafn Íslands fyrir átaki til að nafngreina konurnar á myndunum. Af þeim 48 myndum sem eru varðveittar hefur tekist að nafngreina allar nema sex. Kvennasögusafn þakkar öllum sem lögðu hönd á plóginn. Kvennasögusafn tekur vel á móti öllum ábendingum varðandi Teofani samkeppnina.

Sæunn Þorleifsdóttir 1909-1981
Magnea Jónína Magnúsdóttir 1912-2007
Hildur Grímsdóttir 1912-2001, einnig 39
Sigríður Júlíana Bjarnadóttir 1910-1997, einnig 32
Margrét Magnúsdóttir 1888-1970
Ingibjörg Auður Matthíasdóttir t.v. 1911-2002 og Kristín Pálsdóttir 1911-1999
Guðrún Kristinsdóttir 1911-1995
Rannveig Ólafsdóttir 1906-1969
Hulda Brynjólfsdóttir 1911-1978
Fanney Guðmundsdóttir
Hanna Valdís Gisladóttir 1908-2001
Jakobína Ragnheiður Guðmundsdóttir 1880-1952
Ólafía Sigurðardóttir 1900-1970
Sigríður Sigursteinsdóttir 1915-1994
Aðalbjörg Sigfúsdóttir 1912-1960
óþekkt
Þuríður Guðlaug Gísladóttir 1909-1971
Unnur Stefánsdóttir 1912-2004
Katrín Ólafsdóttir 1912-1998
óþekkt
Ólöf Björnsdóttir 1903-1981
óþekkt
Sigríður Gíslína Guðmundsdóttir 1912-1998
Ólafía Sigurðardóttir 1913-2001
Magnea Guðrún Ágústsdóttir 1913-1988
Guðrún Benediktsdóttir 1912-1972
Guðmunda Línberg Brandfríður Óladóttir 1896-1963
óþekkt
Sigurbjörg Lárusdóttir
Fanney Tómasdóttir 1912-2001
Sigríður Júlíana Bjarnadóttir 1912-1997, sjá einnig nr. 4
Kristín Bjarnadóttir 1905-1971, systir nr. 32
Jóhanna Eiríksdóttir 1908-2007
Sigurbjorg Lárusdóttir, sama og nr. 30
óþekkt
Alfa Regína Hraundal 1911-1965
Hildur Grímsdóttir 1912-2001, sama og nr 3
Sigurbjörg Ólasdóttir 1898-1985
Ólafía Sigurðardóttir, sama og nr. 24
Þórunn Jóna Þórðardóttir 1911-1996
Soffía Jóhannesdóttir 1902-1984
óþekkt
Sigurbjort Klara Luthersdottir 1911-2008
Sigþrúður Einarsdóttir (síðar Thorderson) 1909-2006
Sigrún Hjördís Stefánsdóttir 1909-1982
Jakobína Hansína Hansdóttir Beck (síðar Schröder) 1909-2005
Guðrún Helga Theodórsdóttir 1907-1991
Steinunn Finnbogadóttir 1907-1999

*Fyrst birt árið 2008. Síðast uppfært 23. júní 2020.