Safnmark: KSS 2020/10
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 2020/10
- Titill:
Adda Bára Sigfúsdóttir
- Tímabil:
1940–2017
- Umfang:
13 öskjur í mismunandi stærðum
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2020/4. Adda Bára Sigfúsdóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Adda Bára Sigfúsdóttir (1926-2022), veðurfræðingur og borgarfulltrúi
- Lífshlaup og æviatriði:
Fædd í Reykjavík 30. desember 1926. Foreldrar: Sigfús Sigurhjartarson alþingismaður og kona hans Sigríður Stefánsdóttir húsmóðir. Stúdent frá MR 1946. Veðurfræðingur, lærði í Oslóarháskóla 1947–1953. Fulltrúi Sósíalistaflokksins í borgarstjórn 1962–1966 og fyrir Alþýðubandalagið 1970–1986. Varaformaður Alþýðubandalagsins 1968-1974. Adda Bára starfaði með Kvenréttindafélagi Íslands um áratugaskeið og var í stjórn félagsins 1952–1957 og 1988-1992. Adda Bára var gift Bjarna Benediktssyni frá Hofteigi (1922–1968). Synir þeirra eru Sigfús, líffræðingur og fyrrum deildarstjóri hjá Umhverfisstofnun Evrópu, og Kolbeinn, tónlistarmaður. Hún lést 5. mars 2022.
- Varðveislusaga:
Úr fórum skjalamyndara
- Um afhendingu:
Afhent til Kvennasögusafns af syni Öddu Báru, Kolbeini Bjarnasyni, þann 26. ágúst 2020.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Safnið inniheldur dagbækur (í lokuðum aðgangi), gögn tengd stjórnmálastarfi og jafnréttisbaráttu auk skólaskírteina og annars persónulegs efnis Öddu Báru Sigfúsdóttur.
- Grisjun:
Margtökum var eytt
- Viðbætur:
Viðbóta gæti verið von á næstu árum
- Frágangur og skipulag:
Safnið er fullfrágengið. Það er skráð niður á arkir í fimm skjalaflokka. Gögn í hverri örk eru í þeirri röð sem þau bárust. Skjalaflokkar eru eftirfarandi:
A Kvenréttindafélag Íslands (askja 1)
B Kvennaráðstefnur (askja 1)
C Stjórmálaflokkastarf (öskjur 2-5)
D Persónuleg gögn (askja 6)
E Dagbækur (öskjur 7-13) [lokaður aðgangur til 2035]
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er takmarkaður að hluta
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska, norska og sænska
- Umfang og tæknilegar þarfir:
Einungis pappírs gögn. Ein bók var endurgerð stafrænt og er aðgengileg á vefnum einkaskjalasafn.is.
- Leiðarvísar:
Enginn leiðarvísir var til staðar fyrir skráningu
Tengt efni
- Staðsetning afrita:
C1, askja 2: Stafræn endurgerð af fundargerðarbók Kvennanefndar Sósíalistaflokksins 1953-1964
- Tengt efni:
KSS 6. Kvenréttindafélag Íslands.
Miðstöð munnlegrar sögu: MMS 25. Konur í borgarstjórn.
Handritasafn: Gögn Sósíalistafélags Reykjavíkur
Þjóðskjalasafn Íslands: Skjalasafn Sögusafns ASÍ
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Rakel Adolphsdóttir flokkaði, skráði og tók saman lýsandi samantekt
- Reglur eða aðferð:
Lýsingin byggir á ISAD(G) staðlinum
- Dagsetning lýsingar:
4. nóvember 2020
Skjalaskrá
askja 1
A. Kvenréttindafélag Íslands
- örk 1: fundargerð 6. landsfundar íslenskra kvenna 1944 [ljósrit]
- örk 2: útdráttur úr fundargerð fulltrúaráðsfundar K.R.F.Í. 19.–22. júní 1950
- örk 3: fundargerð 8. landsfundar K.R.F.Í. 1952 [merkt Valborg Benediktsdóttir]
- örk 4: fundargerð 9. landsfundar K.R.F.Í. 1956 [bæklingur innan í: Fundarsköp fyrir landsfund]
- örk 5: útdráttur úr fundargerð 6. fulltrúaráðsfundar K.R.F.Í. 20.-21. júní 1958
- örk 6: Launa- og atvinnumál af 10. landsfundi K.R.F.Í. [stakt blað]
- örk 7: 12. landsfundur Kvenréttindafélags Íslands – 8.–11. júní 1968, tillaga að nýjum félagslögum
- örk 8: ýmis blöð um fjármál fjölskyldna 1956–1960
- örk 9: ýmis blöð um launajafnrétti ca. 1961–1972
- örk 10: Anna Sigurðardóttir á norrænni ráðstefnu í Danmörku 6.-9. september 1964 [danska]
- örk 11: Aðstöðunefnd kvenna 1970
- örk 12: Álit ABS á sambandi Rauðsokkahreyfingarinnar og KRFÍ [ódagsett]
- örk 13: Stofnskrá Kvennasögusafns Íslands 1975 og dreifirit um kvennafrí
- örk 14: Félagsbréf Félags einstæðra foreldra 1975
B Kvennaráðstefnur
B1. 12. þing norrænna kvenréttindafélaga Þingvellir, Ísland, 12.–16. júní 1968
- örk 1:
- Erindi frá Íslandi: Margrét Sigurðardóttir
- Erindi frá Íslandi: Steinunn Finnbogadóttir
- Erindi frá Danmörku: Else Westerberg
- Erindi frá Danmörku: Mette Groes
- Erindi frá Noregi: Elle Woxen
- Erindi frá Noregi: Gertrud Gunther
B2. Kvennaársráðstefnan haldin á Hótel Loftleiðum 20.–21. júní 1975
- örk 1: Dagskrá ráðstefnunnar og dagskrá hvers starfshópar
- örk 2: Eva Kolstad 14. júní í Reykjavík erindi þýtt á íslensku
- örk 3: Vélritað erindi, óheilt [3 blöð]
B3. ASÍ-BSRB kvennaársráðstefna í Munaðarnesi september 1975
- örk 1: Fulltrúaskrá
- örk 2: Skýrsla um ráðstefnuna
- örk 3: Frá ráðstefnunni, niðurstöður starfshópa
- örk 4: Kvenþjóðin og þjóðartekjur, töflur og myndrit með erindi Jóns Sigurðssonar
- örk 5: Verkalýðshreyfingin og fjölskyldumálin
- örk 6: Laus blöð sem fylgdu með möppu ABS um ráðstefnuna:
- Tillaga frá Öddu Báru í Borgarstjórn Reykjavíkur um um jafnréttisnefnd 6. nóvember 1975
- Fréttatilkynning frá jafnréttisnefnd Kópavogs
- Bréf til sambands íslenskra sveitarfélaga um jafnréttisnefndir í öllum bæjar- og sveitarfélögum. Undirritað af Guðrúnu Erlendsdóttur. 11. september 1975 [ljósrit]
- Dreifirit: Hvers vegna kvennafrí?
- Fréttabréf frá jafnréttisnefnd Kópavogs: Umburðarbréf 1975
- Ljósrit um jafnréttislög [1 blað]
askja 2
C. Stjórnmálaflokkastarf
C1. Sameiningarflokkur alþýðu – Sósíalistaflokkurinn
- Fundargerðarbók kvennanefndar Sósíalistaflokksins 1953–1964 [aðgengileg rafrænt á vefnum einkaskjol.is, smellið til að opna]
- örk 1: Laus blöð sem voru í fundargerðarbókinni [sjá athugasemd skjalavarðar]
- örk 2: „Sósíalisminn er stefna kvenfólkins“ Flutt á fundi í Listamannaskálanum 1946, prentað í Þjóðviljanum [handskrifað, 10 blöð]
- örk 3: Um jafnlaunamál: Jafnlaunasamþykkt 1951, tillögur til þingsályktunar um skipun jafnlaunanefndar 1957, greinargerð um skattamál hjóna, tölur um skattgjald hjóna
- örk 4: Ýmis skjöl um stjórnmálastarf sósíalistaflokksins, m.a. greinargerðir, ávarp og áskorun frá málfundafélagi jafnaðarmanna 1962, frumdrög að stjórnmálaályktun, álit dönsku skattlaganefndarinnar um frádrátt vegna atvinnu giftra konu 1948.
- örk 5: 11. þing Sósíalistaflokks nóvember – desember 1957: þingskjöl og stefna flokksins
askja 3
- örk 6: 12. þing Sósíalistaflokks mars 1960, þingskjöl og handskrifaðar nótur
- örk 7: 13. þing Sósíalistaflokksins 25.–27. nóvember 1962, þingskjöl og handskrifaðar nótur
- örk 8: Ýmis skjöl frá stjórnmálastarfi, mest frá 1963-1964 og um Alþýðubandalagið
- örk 9: Samningsnefnd sósílistaflokks um skipulagningu Alþýðubandalags: nokkur skjöl, sum handskrifuð auk þess umslag sem skjölin voru í
- Neðst liggja möppur sem fylgdu utan um gögn frá 11. og 13. þingi Sósíalistaflokks
askja 4
C2. Alþýðubandalagið
- örk 1: Landsfundur Alþýðubandalagsins 1966, prentuð skrá
- örk 2: Menningarmálanefnd Alþýðubandalagsins 1966
- örk 3: Landsfundur Alþýðubandalagsins 1968, þingskjöl og handskrifaðar nótur
- örk 4: Ýmis skjöl tengd Alþýðubandalaginu 1968–1970, m.a. Rekstrar- og efnahagsreikningar 1968, ályktanir um einstaka mál, um flokkinn á ensku og handskrifaðar nótur
- örk 5: Ýmis skjöl tengd Alþýðubandalaginu 1970, m.a. bréf Harðar Bergmanns í mismunandi útgáfum, ályktanir flokksráðs um ýmis mál og gögn um fundi það ár
- örk 6: Landsfundur 1974 og flokksráðsfundir 1972–1975 ásamt fleiri skjölum, m.a. ályktun um jafnréttisbaráttu 1975, frá ráðstefnu ungra sósíalista, tillaga frá umræðuhópi um skattamál
- örk 7: Kjósum Guðrúnu í borgarstjórn dreifirit
askja 5
C3. Borgarstjórn
- örk 1: Konur í atvinnulífinu [handskrifað, 10 blöð, ódagsett]
- örk 2: Staða kvenna í atvinnulífinu, erindi [handskrifað, 10 blöð] ásamt glósum
- örk 3: Erindi staða kvenna í nútímaþjóðfélag ca. 1965, erindi og glósur
- örk 4: Um lífeyrissjóðsréttindi 1965, bréf og handskrifað erindi
- örk 5: Útvarpserindi 1965
- örk 6: Ýmislegt um launakjör, töflur og úttektir 1960–1967 [var saman í umslagi merkt ríkisskattstjóri, Hr. Áki Pétursson]
- örk 7: Um tekjuskatt 1971–1973, m.a. tillaga að tekjuskattkerfi eftir Þorkel Helgason 1972, vinnuhugmynd um bráðabirgðabreytingu á skattalögum 1973, tekjuskattur hjóna tafla, Lög um tekjuskatt og eignarskatt 1971
- örk 8: Lög á Íslandi um menntaskóla [á sænsku], menntaskólar eiga að vera samskólar eftir Öddu Báru og Strömpa rit 1972
- örk 9: Kærumál starfsstúlkna Alþingis 1976
- örk 10: Saga úr borgarstjórn 1984
askja 6
D. Persónuleg gögn
- örk 1: staðfesting á stúdentsprófi í stærðfræði frá MR 1946, eitt á íslensku og annað á dönsku
- örk 2: útskriftarskírteini Oslóarháskóli 1953 og fleira frá háskólanum
- örk 3: Tristamenta Diasponentia 1979 [bók með teikningum af vinahóp]
- örk 4: Sextugsafmæli heillakort 1987
- örk 5: Ýmis minningarorð og úrklippur
- örk 6: Úrklippur
- örk 7: Úrklippur frh.
- örk 8: Bréf 1997–1998
- örk 9: Sigfúsarsjóður, skjal frá 2002
- Gestabók 1987
öskjur 7-13 sem innihalda dagbækur 1989-2017 eru lokaðar til ársins 2035