Safnmark: KSS 2021/18
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 2021/18
- Titill:
Anna Pjetursson
- Umfang:
Ein askja
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Anna Pjetursson (1845-1921), píanókennari
Anna Sigríður Vigfúsdóttir Thorarensen Pjetursson
- Lífshlaup og æviatriði:
Anna Sigríður var fædd 6. mars 1845 og lést 6. júní 1921.
„[Hún] var fyrsta konan sem 1870
gerði píanókennslu að ævistarfi sínu. Hún er jafnframt talin vera fyrsta konan sem tók kennarapróf í söng- og píanókennslu. Anna fór ung að árum í fóstur hjá móðurbróður sínum, Sigurði Melsteð, og Ástríði, konu hans. Ástríður Melsteð var vel menntuð og spilaði á píanó. Hún mun hafa verið önnur tveggja kvenna hérlendis sem kenndi hljóðfæraslátt á þessum tíma. Anna lærði fyrst að spila á píanó hjá fóstru sinni og fékk síðan ókeypis tilsögn í að leika og kenna á píanó hjá Olufu Finsen. Anna var 15 ára þegar hún fékk til sín fyrstu nemendurna. Hún kenndi fyrst á heimili fósturforeldra sinna, en gerði kennsluna að aðalstarfi sínu er hún giftist Pjetri Pjeturssyni 1870. Anna fór til Kaupmannahafnar 1884 og tók kennarapróf í tónlist. Hún fór síðan aftur til Hafnar 1892 til að kynna sér nýjungar í kennslunni. Á sínum yngri árum lék hún oft á dansleikjum í Reykjavík. Anna tók virkan þátt í undirbúningi Kvennalistans í bæjarstjórnarkosningunum 1908 og var beðin um að gefa kost á sér, en fékkst ekki til þess. Hún kenndi fram á síðasta dag og frægt er orðið að í sextíu ár tók hún aðeins 50 aura fyrir kennslustundina þrátt fyrir að verðlag tæki miklum breytingum á þessu tímabili.“
Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna, bls. 81.
- Um afhendingu:
2. september 2021 Einar Matthíasson afthenti skjöl Önnu Sigríðar Vigfúsdóttur (1845-1921) sem starfaði sem píanókennari, fyrst kvenna á Íslandi. Afhending inniheldur bréfaskipti milli Önnu og sonar hennar Helga, minnisbók sem sýnir m.a. að hún kenndi á milli átta að morgni til níu að kvöldi, ræður o.fl. [KSS 2021/18]
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Tengt efni
- Staðsetning afrita:
Upplýsingar um staðsetningu frumgerða sendibréf fylgdu ekki afhendingunni.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Rakel Adolphsdóttir skráði 7. ágúst 2025
Skjalaskrá
askja 1
örk 1
- Húskveðja við jarðarför Önnu Sigríðar Pjetursson [handskrifað]
- Eitt kort til Önnu frá nemendum hennar 6. mars 1905 [handskrifað]
- Minnisbók [tekjur, listi yfir nemendur og fleira, illa farin]
örk 2:
- Uppskrifuð bréf frá Önnu til Helga Péturssonar [afrit]
örk 3:
Ljósrit af bréfum Önnu Pjetursson til Helga Pjetursson [afrit]
örk 4:
Fálkinn 1942 þar skrifar Helgi sonur Önnu Sigríðar greinina „Ágætar formæður“
Bók: Helgi Ó. Þórarinsson, Smiðjustígur 5b : fjölskyldusaga, 2006. [til útláns á Landsbókasafni]