Safnmark: KSS 88
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 88
- Titill:
Ásdís Jóhannsdóttir
- Tímabil:
1948–1958
- Umfang:
Ein askja
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 88. Ásdís Jóhannsdóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Ásdís Jóhannsdóttir (1933–1959)
- Lífshlaup og æviatriði:
Fædd 10. janúar 1933 í Fáskrúðsfirði, látin 21. október 1959 í Vestur-Þýskalandi. Foreldrar hennar voru þau Jóhann Árnason (1897-1950) og Jónína Kristín Benediktsdóttir (1888-1981). Stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1953. Var við nám í efnafræði við náttúruvísindadeild háskólans í Göttingen í V-Þýskalandi 1953-1958 og síðan við Tækniháskólann í Darmstadt í V-Þýskalandi 1958-1959.
Heimild: Æviskrár MA stúdenta 1945-1954, bls. 497-498. Sjá líka vef skald.is.
- Varðveislusaga:
Gögnin voru í varðveislu Sigríðar Jóhannsdóttur, systur Ásdísar.
- Um afhendingu:
Sigríður Jóhannsdóttir afhenti Kvennasögusafni gögnin þann 18 maí 2010.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Safnið inniheldur dagbók er Ásdís skrifaði í á árunum 1948-1950, þá 15-17 ára. Í hana ritaði hún afrit af bréfum er hún sendi systur og vinkonum, ljóð er hún orti, hugleiðingar um eitt og annað og lýsingu á degi í gagnfræðaskóla. Einnig stílabók með handskrifuðum ljóðum og vélrituð ljóð er birtust í bók hennar Vængjaþytur vorsins (2002).
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Sigríður Jóhannsdóttir afhenti dagbókina og stílabókina og síðan vélrituðu ljóðin í plastumbúðum. Auður Styrkársdóttir raðaði efninu, fjarlægði plastumbúðir og gekk frá í öskju. Hún skrifaði einnig lýsingu í maí 2009 og setti á safnmark KSS.
- Dagsetning lýsingar:
maí 2009
Skjalaskrá
Askja 1
- Ljóð eftir Ásdísi (birtust flest í bók hennar Vængjaþytur vorsins) vélrituð á blöð
- Eyðublað til útfyllingar fyrir Æviskrár MA stúdenta – Dómur um bókina Vængjaþytur vorsins, tekið af vefnum www.ljod.is – Skólavísur 1947 – Ljósrit úr Verkamanninum 13. Mars 1953 af ræðu er Ásdís flutti á almennum fundi um friðarmál í Alþýðuhúsinu á Akureyri – Ræða er Ásdís flutti 1948 sennilega, “Íþróttalíf Íslendinga”
- Dagbók 1948-1949
- Stílabók með ljóðum