Safnmark: KSS 121
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 121
- Titill:
Aþena – málfundafélag
- Tímabil:
1964-1971
- Umfang:
Tvær fundargerðarbækur
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 121. Aþena – málfundafélag.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Aþena – málfundafélag.
- Lífshlaup og æviatriði:
Félagið var stofnað af stúlkum í Menntaskólanum í Reykjavík 13. janúar 1964. Það var lauslega byggt á grunni eldra félags sem var nafnlaust og starfaði í skólanum undir lok fimmta áratugarins. Síðasta fundargerð er rituð í júní 1971 af Unni Halldórsdóttur. Þar kemur fram að á aðalfundi 16. apríl 1971 hafi Kristjana Bergsdóttir verið kosinn formaður, Sigurlaug Karlsdóttir ritari og Katrín Valgeirsdóttir gjaldkeri. Óvíst er um starfsemi félagsins eftir 1971.
Sjá kafla Vigdísar Finnbogadóttir í afmælisriti Menntaskólans í Reykjavík 1967, bls. 80-82.
- Varðveislusaga:
Úr fórum meðlima.
- Um afhendingu:
Unnur Halldórsdóttir afhenti þann 17. júlí 1979.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Tvær fundagerðarbækur
- Grisjun:
Engu var eytt.
- Viðbætur:
Ekki von á viðbótum
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgengi ótakmarkað
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Skv. reglum Kvennasögusafns um ljósritun og myndun
- Tungumál:
Íslenska
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Var áður í öskju 436. Rakel Adolphsdóttir færði á safnmarkið KSS 121 í febrúar 2017 og skráði rafrænt í mars 2018.
- Dagsetning lýsingar:
22. mars 2018
Skjalaskrá
Askja 1
Tvær fundargerðabækur:
1. 1964-1966
2. 1967-1971