Safnmark: KSS 81
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 81
- Titill:
Birgitta Guðmundsdóttir
- Umfang:
Tvær öskjur
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 81. Birgitta Guðmundsdóttir. Einkaskjalasafn
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Birgitta Guðmundsdóttir (1908–2003)
- Lífshlaup og æviatriði:
- 8.10. 1908, d. 29.08. 2003. For.: Salvör Þorkelsdóttir og Guðmundur Jónsson.
Maki: Sigvaldi Jónasson. Eignuðust einn son: Guðmund.
Birgitta gegndi formennsku í Félagi afgreiðslustúlkna í mjólkur- og brauðbúðum um árabil og sótti þing ASÍ.
Sjá nánar: Morgunblaðið, 05.09. 2003, bls. 38
- Um afhendingu:
Halldóra Þorsteinsdóttir afhenti árið 2009.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Safnið geymir gögn er tengjast félagi Afgreiðslustúlkna í brauð- og mjólkurbúðum, en Birgitta var lengi formaður þess, og ýmis gögn frá Alþýðusambandi Íslands. Einnig gögn er tengjast Sósíalistaflokknum.
- Grisjun:
Engu var eytt
- Viðbætur:
Ekki er kunnugt um viðbætur
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Auður Styrkársdóttir raðaði í öskju, skráði og setti í safnmark. Í ágúst 2012 skrifaði hún lýsandi samantekt.
- Dagsetning lýsingar:
ágúst 2012
Skjalaskrá
Askja 1:
„ASB 15 ára, undirritað Guðrún Finnsdóttir – Úrklippa úr NT, viðtal við Birgittu Guðmundsdóttur
Taxtar og samningar ASB og fleiri félaga
Handskrifaðar athugasemdir og nótur frá fundum ASB
- Frá hagræðingardeild ASÍ og Efnahagsstofnun Íslands
- Samningar og kauptaxtar
- Bréf og erindi frá ASÍ, MFA, Lúðrasveit verkalýðsins ofl.
- Samþykktir og bréf ASB
- Handskrifaðar athugasemdir og nótur frá fundum ASB
- „ASB 15 ára“ undirritað Guðrún Finnsdóttir, 2 bls. – Úrklippa úr NT með viðtali við Birgittu Guðmundsdóttur
Askja 2:
- Kjörskrá ASB 1964 (2 eintök). – Frv. til laga um áætlunarráð ríkisins (Flm. Einar Olgeirsson). – Bréf frá Sósíalistafélagi Reykjavíkur til félaga, 22 apríl 1968. – Bréf frá Sósíalistafélagi Reykjavíkur til félaga, 9 apríl 1968. – Bréf frá Sósíalistafélagi Reykjavíkur til ASB 8 okt. 1969. – Dagskrá flokksstjórnarfundar (Sameiningarflokks alþýðu) 3-5 des. 1965. – Drög að stjórnmála-ályktun (Sameiningarflokks alþýðu), ódagsett. – Drög að ályktun um starfsemi flokksins (Sameiningarflokks alþýðu), ódagsett
- 12. þing Sameiningarflokks alþýðu – Sósíalistaflokksins (1960): Dagskrá. – Tillögur. – Ályktanir. – Lög eins og þau sem samþykkt voru 1938 með áorðnum breytingum fram að 12 þingi 1960
- 13. þing Sameiningarflokks alþýðu – Sósíalistaflokksins (1962): Dagsrká. – Tillögur. – Ályktanir
- 14. þing Sameiningarflokks alþýðu – Sósíalistaflokksins (1964): Dagskrá. – Tillögur. – Ályktanir
- 16. þing Sameiningarflokks alþýðu- Sósíalistaflokksins (1968?): Dagskrá. – Fulltrúalisti. – Ályktanir. – Handskrifuð blöð með ýmsum nöfnum
- 29. þing Alþýðusambands Íslands. Þingskjöl 3-41. (þingskjal nr. 1 var prentuð þingtíðindi 28. þings ASÍ og þingskjal nr. 2 var Skýrsla um störf forseta miðstjórnar ASÍ árin 1962-1964. Prentuð rit fara í þjóðdeild)
- Flokksráðsfundur Alþýðubandalagsins á skíðahótelinu við Akureyri 4 okt. 1969