Safnmark: KSS 2021/28
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Kvennasögusafn Íslands
- Safnmark:
KSS 2021/28
- Titill:
Erna S. Egilsdóttir
- Tímabil:
1973-1982
- Umfang:
Sjö öskjur. Safnið hefur að geyma skjöl úr vörslu Ernu S. Egilsdóttur sem varða að mestu Rauðsokkahreyfinguna en einnig sitthvað fleira tengt félaga- og stjórnmálastarfi hennar.
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2021/28. Erna S. Egilsdóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Erna Sigrún Egilsdóttir (f. 1945)
- Lífshlaup og æviatriði:
Erna er fædd 6. júní 1945. Hún tók þátt í starfi Rauðsokkahreyfingarinnar í Reykjavík frá 1973-1975. Hún bjó í Neskaupstað frá árunum 1975-1981 og tók þá þátt í starfi Jafnréttisnefndar Neskaupstaðar. Erna starfaði sem skrifstofumaður, meðal annars á Þjónustumiðstöð Bókasafna.
- Varðveislusaga:
Gerður G. Óskarsdóttir afhenti þann 15. nóvember 2021 á fundir Rauðsokkahreyfingarinnar og Landsbókasafn (varðandi vefsíðu RSH) fyrir hönd Ernu Egilsdóttur. Skjölin varða starf Ernu í Rauðsokkahreyfingunni.
- Um afhendingu:
Barst um hendur Gerðar G. Óskarsdóttur þann 15. nóvember 2021 og viðbót 18. janúar 2022.
Innihald og uppbygging
- Frágangur og skipulag:
Innri formgerð skjalasafns var viðhaldið en afhendingaraðili var búinn að flokka efnið út frá tegund efnis, því var síðan raðað í tímaröð.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
- Leiðarvísar:
A. Starfsmannafélag S.Í.S frá árinu 1973
B. Rauðsokkahreyfingin:
B1. Ráðstefna í Skógum sumarið 1974 / Ráðstefna um kjör láglaunakvenna 1975
B2. Handritað efni í „Forvitin Rauð“ 1. maí 1974
B3. Kvennaráðstefnan 1975
B4. Miðstöð Rauðsokkahreyfingarinnar árin 1974-1976. Húsnæðismál hreyfingarinnar Sokkholt, daglegur rekstur.
B5. Námsflokkar Neskaupstaðar: námshópur um jafnréttismál á vorönn 1976
B6. Dreifbýlishópur Rauðsokkahreyfingarinnar 1976-1977C. Alþýðubandalagið 1981-1982
D. Ýmislegt
E. Viðbót, afhent 2022.
Tengt efni
- Staðsetning afrita:
Stafrænt afrit af myndbandi er aðgengilegt á Kvennasögusafni. Búta úr myndbandinu má finna á sérvef um Rauðsokkahreyfinguna.
- Tengt efni:
KSS 63. Rauðsokkahreyfingin. Einkaskjalasafn.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Emma Björk Hjálmarsdóttir skráði í nóvember 2021.
- Reglur eða aðferð:
Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum
- Dagsetning lýsingar:
26. nóvember 2021 og janúar 2022
Skjalaskrá
Askja 1
A. Starfsmannafélag S.Í.S frá árinu 1973
örk 1: Handskrifuð fundargerð, 25. mars 1973.
örk 2: Könnun um dagheimili, samvinnufyrirtækin í Reykjavík.
örk 3: Bréf til Gunnars Grímssonar 23. október 1973 frá Jóakim, klúbbur um jafnréttismál. Bréf til hússtjórnar Hamragarðar, frá Jóakim klúbbur um jafnréttismál.
örk 4: Svar frá Gunnari Grímssyni til Bjarkar Thomsen. Erindi um barnaheimil.
örk 5: Greinargerð um könnun á launamun kynjanna. Skjöl sem varða könnunina, launatöflur.
Askja 2
B. Rauðsokkahreyfingin
B1. Ráðstefna í Skógum sumarið 1974 / Ráðstefna um kjör láglaunakvenna 1975.
örk 1: Dagskrá ráðstefnunnar á Skógum, 1974. Stefnuskrá hreyfingarinnar og tillaga að stefnuskrá hreyfingarinnar.
örk 2: Fréttatilkynning um ráðstefnu um kjör láglaunakvenna. Álit ráðstefnu um kjör láglaunakvenna.
örk 3: Þáttur uppeldisins í misrétti kynjanna, erindi flutt á ráðstefnu ASÍ og BSRB um stöðu kynjanna í atvinnulífinu, 1975. Gerður G. Óskarsdóttir.
örk 4: Almenn menntun og starfsmenntun, erindi flutt á ráðstefnu ASÍ og BSRB. Helga Sigurjónsdóttir.
Askja 3
B2. Handritað efni í „Forvitin Rauð“ 1. maí 1974
örk 1: Ómaginn og stritið. Þuríður Kvaran.
örk 2: Síldarsaga mín – eða sérsamningar, Dóra Guðmundsdóttir. Eru karlar og konur jafningjar? Vilborg Sigurðardóttir.
örk 3: Eymingja ég eftir Árna Björnsson.
örk 4: Sjálfsgagnrýni eftir Elísabetu Gunnarsdóttur.
örk 5: Grein eftir Lilju Ólafsdóttur um jafnrétti kynjanna.
örk 6: Krafa tímans. Eygló Eyjólfsdóttir.
örk 7: Nokkur orð um almannatryggingar, Guðrún Helgadóttir.
örk 8: Þeir sem ráða húsum, Guðmundur R. Jóhannsson.
örk 9: Þýðingar úr bókinni Skæruliðarnir.
örk 10: Bréf frá Bjarnínu Engilráðsdóttur til Sveins Garibaldason.
örk 11: Gullkorn úr ágripi af fimleikafræði eftir J. Lindhard í þýðingu Björns Jakobssonar.
örk 12: Söngvar Rauðsokka.
örk 13: Handskrifað blað um sambýli nemenda K.H.Í.
örk 14: Grein, rauðsokkum kennt um skort á einkariturum.
örk 15: Handskrifað blað, „ertu ánægð?“ og um starfshópa Rauðsokkahreyfingarinnar.
örk 16: Um fyrirvinnuhugtakið.
örk 17: Úrklippa úr Þjóðviljanum. 2. nóvember 1973.
örk 18: Handskrifað blöð, vélrituð blöð um fjölskylduna. Auður Þorbergsdóttir.
örk 19: Grein eftir Auði Þorbergs, án titils.
B3. Kvennaráðstefnan 1975
örk 1: Ræða Evu Kolstad, 14. Júní í Reykjavík um SÞ, kvenréttindi og kvennaár.
örk 2: Ljósritað efni um Kolstad úr dagblöðum.
örk 3: Kvennaársráðstefnan 1975. Dagskrá og niðurstöður starfshópa.
Askja 4
B4. Miðstöð Rauðsokkahreyfingarinnar árin 1974-1976. Húsnæðismál hreyfingarinnar Sokkholt, daglegur rekstur.
örk 1: Bréf frá starfshópi um varðveislu rauðsokkaefnis, 1994. Vilborg Harðar og Erna Egils. Kvittanir varðandi afritun á Forvitin Rauð.
örk 2: Staglið, frá desember 1976 og annað ódagsett líka frá 1976.
örk 3: Um annað þing Rauðsokka.
örk 4: Tillögur um grundvöll Rauðsokkahreyfingarinnar, skipulag og verkefni framundan, 1976.
örk 5: Handskrifað blað varðandi veitingar á fundi, fréttatilkynning frá 1974 um útgáfu Forvitin Rauð., listi yfir vaktafyrirkomulag í Sokkholti.
örk 6: Gögn um Sokkholt. Bréf frá forsætisráðuneytinu, bréf til menntamálaráðherra Vilhjálms Hjálmarssonar.
örk 7: Bréf frá Guðrúni Þóru Bragadóttur 1974.
örk 8: Útsölustaðir Rauðsokkablaðsins Forvitin Rauð og fréttatilkynning frá Rauðsokkum um fyrirvinnuhugtakið.
örk 9: Alþýðubandalagið upplýsingar, um Goðsögnin um konuna eftir Betty Friedan, upplýsingar um launajafnrétti/misrétti og upplýsingar um fréttabréf kvenréttindafélags Edinborgar. 1974.
örk 10: Upplýsingar um fjölskyldumál og gullkorn úr sjúkrahússlækninum eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur.
örk 11: Lög um jafnrétti kvenna og karla. Staglið, 1. Bréf 1975. Staða konunnar í Íslenskum landbúnaði eftir Ágústu Þorkelsdóttur, birtist í Þjóðviljanum.
Askja 5
B5. Námsflokkar Neskaupstaðar: námshópur um jafnréttismál á vorönn 1976
örk 1: Námshópur um jafnréttismál, könnun á kynjamismunun í lestextum skólabóka. Skattamál, breytingatillögur. Bréf til fjármálaráðherra, Halldórs E. Sigurðssonar vegna skattamála.
örk 2: Námshópur um jafnréttismál, starfsáætlun vorönn 1976. Skoðanakönnun um misrétti kynjanna. Listi yfir bækur um jafnréttismál. Ljósritað hefti námshópur um jafnréttismál með kjörorðið „Allir dagar eru baráttudagar“. Þáttur uppeldisins í misrétti kynjanna.
örk 3: Verkefni 1 og 3, jafnréttishópur neskaupstaðar.
örk 4: Ljósrit, um kvennasögu.
örk 5: Stefnuskrá fyrir Kvindefronten.
örk 6: Útdráttur úr nokkrum köflum bókarinnar Kvinden i klassesamfundet eftir Hanne Reintoft.
örk 7: Drög um dagvistunarmál.
örk 8: Spurningalisti á vegum jafnlaunaráðs.
örk 9: Um börn, umfjöllun eftir Hrönn Eggertsdóttur frá árinu 1978.
örk 10: Saga norrænna kvenna í 10.000 ár.
örk 11: Samantekt um fjölskylduna, Kristín Ástgeirsd. 1980.
B6. Dreifbýlishópur Rauðsokkahreyfingarinnar 1976-1977
örk 1: Álit ráðstefnu um kjör láglaunakvenna.
örk 2: Útvarpserindi Guðrúnar Friðgeirsdóttur um barnaheimili, 1972.
örk 3: Bæklingur um Kvennaárið 1975, upplýsingar um tengla Rauðsokkahreyfingarinnar og leshringi hreyfingarinnar.
örk 4: Gullkorn úr ágripi af fimleikafræði eftir J. Lindhard í þýðingu Björns Jakobs. Staðall fyrir flugfreyjur búið til af Rauðsokkahreyfingunni sem ádeila. Framsöguerindi Stellu Stefánsdóttur, trúnaðarmanns í Bæjarútgerð Reykjavíkur. Um starfshópa.
Askja 6
C. Alþýðubandalagið 1981-1982
örk 1: Gögn frá kvennamiðstöð Alþýðubandalagsins. Dreifibréf kvennamiðstöðvar Alþýðubandalagsins.
örk 2: Kvennabréf, dreifibréf kvennamiðstöðvar nr. 5 og 6.
örk 3: Kvennabréf nr. 1 og 3.
D. Ýmislegt
Örk 1: Þakkarkort frá Önnu Sigurðardóttur frá árinum: 1973, 1976 og 1980.
Askja 7
E. Viðbót 2022
- örk 1: Myndband frá árum Rauðsokkahreyfingarinnar, VHS spóla. [stafrænt afrit hefur verið gert.] Upplýsingar um myndbönd Ernu S. Egilsdóttur.
- örk 2: Lög um jafnlaunaráð frá 1973.
- örk 3: Drög að greinargerð við stefnuyfirlýsingu Rauðsokkahreyfingarinnar 1974.
- örk 4: Tillögur um skipulag Rauðsokkahreyfingarinnar.
- örk 5: Minnisbók frá 1974. Um Kvennaár Sameinuðu þjóðanna 1975.
- örk 6: Húsnæðismál Rauðsokka 1974. Viðtal Hildar Hákonardóttur við Ernu Egilsd. um hússkoðun. Uppkast af bréfi til Ólafs Jóhannessonar, forsætisráðherra. Afrit af bréfi til forsætisráðherra og svar við erindinu.
- örk 7: Þreyttu húsmóðurinni komið fyrir í Austurstræti ásamt jólatré, 1974. Tölvupóstssamskipti Hildar og Ernu árið 2005 og viðtal við Ernu um flutninginn á þreyttu húsmóðurinni.
- örk 8: Barátta fyrir dagvistunarmálum fyrir börn. Starfshópur rauðsokka fjallar um tillögur borgarstjórnar um dagvistarmál barna.
- örk 9: Frá starfshópi nr. 4 líklega frá 1974.
- örk 10: Sérsköttun hjóna. Umsögn jafnréttisráðs um frumvarp til laga um tekjuskatt og eignarskatt.
- örk 11: Orðsending frá Jón Sigurðarssyni, fjármálaráðuneyti, 26. mars 1974. Bréf frá Rauðsokkum um skattamál.
- örk 12: Kröfur barnaársnefndar ASÍ, 1980.
- örk 13: Bréf frá Önnu Sigurðardóttur, Kvennasögusafni Íslands, við Rauðsokka. 1975.
- örk 14: Lokakafli Verkakonur á Íslandi í 1100 ár eftir Önnu Sigurðardóttur.
- örk 15: Ártöl í sögu kvenna, Anna Sigurðardóttir. Konur launþegar á Íslandi, kafli úr erindi Önnu á ASÍ og BSRB fundi árið 1975.
- örk 16: Samstarf Rauðsokka við ASÍ um baráttu fyrir dagvistun barna. Bréf frá Rauðsokkum til aðildafélaga ASÍ frá 18.9.1976
- örk 17: Verkalýðsbarátta kvenna, meðal annars frá Akranesi. 1976-1981. Um verkfall fiskverkunarkvenna á Akranesi í mars 1976, greinar og viðtöl úr Þjóðviljanum.
- örk 18: Bjarnfríður Leósdóttir um fiskvinnslu, 1981.
- örk 19: Neisti, 10. tölublað 1981 ljósrit. Umfjöllun um ráðstefnu í Ölfusborgum og fleira.
- örk 20: Ræða Vilborgar Harðardóttur flutt á fundi feminísta í byrjun nýrrar aldar.