Safnmark: KSS 2020/2
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 2020/2
- Titill:
Guðný Guðmundsdóttir
- Tímabil:
1983–1988
- Umfang:
Ein askja (löng)
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2020/2. Guðný Guðmundsdóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Guðný Guðmundsdóttir (f. 1943)
- Lífshlaup og æviatriði:
Guðný Guðmundsdóttir (f. 1943) tók virkan þátt í starfinu og var í fyrstu framkvæmdanefnd Reykjanesanga og í skemmtinefnd. Hún tók aldrei sæti á framboðslista Kvennalistans.
- Varðveislusaga:
Úr fórum Guðnýjar.
- Um afhendingu:
Guðný tók þátt í viðburði sem Kvennasögusafn hélt 28. febrúar 2020 í samstarfi við Sæunni Ólafsdóttur, meistaranema í safnafræði, þar sem Kvennalistakonur komu og báru kennsl á ljósmyndir í KSS 11. Í leiðinni afhenti hún þessi gögn og skýrði frá tilurð þeirra.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
59 ljósmyndir af Reykjanesanga Kvennalistans auk söngtexta og korts.
- Frágangur og skipulag:
Ljósmyndir eru í ljósmyndaplasti og númeraðar, sérstök skrá er til um ljósmyndirnar. Annað efni var skráð í arkir. Safnið er ekki skráð í skjalaflokka vegna smæðar þess.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska, norska og finnska.
Tengt efni
- Staðsetning afrita:
Stafræn afrit verða gerð.
- Tengt efni:
Á Kvennasögusafni:
KSS 15. Kvennalistinn á Reykjanesi. Einkaskjalasafn.
KSS 11. Kvennalistinn. Einkaskjalasafn.
KSS 154. Edda Bjarnadóttir. Einkaskjalasafn.
KSS 2017/6. Kristín Jónsdóttir. Einkaskjalasafn.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Rakel Adolphsdóttir skráði í janúar 2021. Ragnhildur Hólmgeirsdóttir tók saman megnið af lýsandi samantekt vorið 2020.
- Dagsetning lýsingar:
6. janúar 2021
Skjalaskrá
askja 1
- Í ljósmyndaplasti: 59 ljósmyndir af Reykjanesanga Kvennalistans, mest af ferð með Kvennarútunni og margar myndir af lautarferð á Þingvöllum. Sjá nánar í sérstakri ljósmyndaskrá.
- Örk 1: Tvær filmur sem voru ekki framkallaðar
- Örk 2: Kort til Guðnýjar Guðmundsdóttur frá öðrum kvennalistakonum í Reykjaneskjördæmi 29. maí 1983.
- örk 3: Söngbækur Kvennalistans [fimm mismunandi útgáfur]
- örk 4: Söngtextar [8 blöð]
- örk 5: Finnsk blaðaúrklippa um Kvennalistann [Ártal óvíst, líklega ljósrit]
- örk 6: Norsk blaðaúrklippa um Kvennalistann 3. ágúst 1988