Safnmark: KSS 146
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 146
- Titill:
Guðrún Ágústsdóttir
- Tímabil:
1974–2011
- Umfang:
Ein askja
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 146. Guðrún Ágústsdóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Guðrún Ágústsdóttir (f. 1947)
- Lífshlaup og æviatriði:
Fædd 1. janúar 1947. Menntun: Gagnfræðapróf frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1964, enskunám í London 1965-1966 og við Edinborgarháskóla 1976. Nám við MH 1979-1982.
Starfsferill: Starfsmaður Landsbanka Íslands 1965-1966. Flugfreyja hjá Flugfélagi Íslands 1966 og 1967. Skrifstofumaður hjá Sjóvátryggingafélagi Íslands 1968-1970. Fulltrúi hjá Hjúkrunarskóla Íslands 1971-1975 og 1978-1987. Framkvæmdastjóri 1986-1988 við undirbúning Norræns kvennaþings í Ósló og í framkvæmdastjórn þingsins á vegum Norrænuráðherranefndarinnar. Aðstoðarmaður menntamálaráðherra 1988-1991. Starfsmaður Þjóðviljans 1991. Framkvæmdastjóri 1991-1992 við undirbúning Vestnorræns kvennaþings á Egilsstöðum. Fræðslu- og kynningarfulltrúi Kvennaathvarfsins 1991-1994. Borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins 1982-1990 og Reykjavíkurlistans 1994-2002, leyfi frá störfum frá 1999. Varaborgarfulltrúi Alþýðubandalagsins 1974-1982 og 1990-1994. Í borgarráði 1994-1998.
Önnur störf: Í framkvæmdastjórn og/eða miðstjórn Alþýðubandalagsins 1974-1999 og oft í stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík. Gegndi fjölda trúnaðarstarfa á vegum Reykjavíkurborgar. Ritstörf: Ritstjóri Tilveru, blaðs Kvennaathvarfsins, 1991-1994. Í ritstjórn kynningarrits á ensku um íslenska menningu, 1990-1991. Auk þess greinar í blöðum og tímaritum.
Heimild: Samtíðarmenn 2003 - Varðveislusaga:
Úr fórum Guðrúnar.
- Um afhendingu:
Guðrún Ágústsdóttir afhenti Kvennasögusafni þann 21. september 2016.
Innihald og uppbygging
- Grisjun:
Forvitin rauð 1. og 2. tbl., 1. árg.
- Viðbætur:
Viðbóta gæti verið von
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Tengt efni
- Tengt efni:
KSS 63. Rauðsokkahreyfingin.
MMS 19. Konur sem störfuðu með Rauðsokkahreyfingunni.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Rakel Adolphsdóttir skráði í nóvember 2018
- Dagsetning lýsingar:
16. nóvember 2018
Skjalaskrá
A Rauðsokkahreyfingin, innra starf
B Kvennafrí og kvennaárið 1975
C Fóstureyðingar, var saman í möppu
D Menntamál
E Þýðingar
askja 1
A Rauðsokkahreyfingin, innra starf
- Erindi um Rauðsokkahreyfinguna, flutt 2011
- Handskrifaðar glósur, voru saman í möppu, um Rauðsokkahreyfinguna
- Fréttatilkynning Rauðsokkahreyfingarinnar: Fyrirvinnuhugtakið
- Ráðstefnan Skógum 1974, samþykkt, skipulag, handskrifaðar glósur
- Bréf frá Fjármálaráðuneytinu varðandi söluskatt af Forvitin rauð, 14. Des. 1972
- Hjúskapur og skattamál [vélrituð greinagerð með handskrifuðum athugasemdum]
- Félagsform Rauðsokkahreyfingarinnar
- Syngjandi sokkar, prentuð söngvabók
- Dreifirit: Eru þetta okkar jól? [23. desember 1974]
- Úrklippur
B Kvennafrí og kvennaárið 1975
- Hvers vegna kvennafrí? [Dreifirit, vélritað]
- Tillögur að efnisatriðum ályktunar [vélritað]
- bréf frá forsætisráðuneytinu 18. Janúar 1975
C Fóstureyðingar, var saman í möppu
- Dreifirit um 9. nóvember
- Drög að dreifiriti 20. Nóvember 1971 aftan á er handskrifað innlegg Guðrúnar í útvarpsþátt Rauðsokka um leikskóla
- Handskrifað blað um starfshópa
- Frumvarp til laga um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir, 1974
- Staglið, fréttabréf Rauðsokkahreyfingarinnar 2. Bréf 1975
- Tillaga undirbúningsnefndar: Drögn að reglum fyrir: „Baráttusamtök fyrir sjálfsákvörðunarrétti kvenna til löglegrar fóstureyðingar“
D Menntamál
- Handskrifað, var saman í möppu, sögulegt yfirlit um skólagöngu kvenna
- Lagaleg þróun jafnréttis, vélritað með handskrifuðum athugasemdum
- Menntun, vélritað blað um menntun kynja
- Bókalisti Norræna hússins um jafnrétti þegnanna í menntun og löggjöf, október 1972
E Þýðingar
- Heima og heiman, vélrituð þýðing af danskri grein, danska greinin fylgir með
- Second sex, útvarpserindi þýtt af Soffíu Guðmundsdóttur, vélritað
Neðst liggur blá mappa sem gögnin voru afhent í.