Safnmark: KSS 77
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 77
- Titill:
Guðrún Jónasson
- Tímabil:
1940-1950
- Umfang:
Ein askja
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 77. Guðrún Jónasson. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Guðrún Jónasson (1877–1958)
- Lífshlaup og æviatriði:
- 8.2. 1877 að Felli í Biskupstungum, d. 5.10. 1958 í Reykjavík
Flutti ung til Vesturheims með foreldrum sínum en sneri til baka um aldamótin 1900. Stofnaði og rak vefnaðarvöruverslun með Gunnþórunni Halldórsdóttur að Amtmannsstíg 5 og 5a í Reykjavík. Guðrún var félagi í Góðtemplarareglunni, formaður kvennadeildar Slysavarnarfélags Íslands frá stofnun 1930 til dauðadags, formaður Sjálfstæðiskvennafélagsins Hvatar frá stofnun 1937-1955. Þá var hún lengi formaður fjáröflunarnefndar Kvennaheimilisins Hallveigarstaðir. Guðrún var fulltrúi í bæjarstjórn Reykjavíkur 1928-1946
Sjá nánar Morgunblaðið 14.10. 1958, s. 8 og 21. okt. s. 2
- Varðveislusaga:
Úr fórum Jóns Brynjólfs Jónssonar, fóstursonar Gunnþórunnar Halldórsdóttur.
- Um afhendingu:
Eiginkona Jóns, Hulda Kristjánsdóttir, afhenti Kvennasögusafni 14 október 2008.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Safnið geymir nokkur skjöl og skeyti.
- Grisjun:
Engu var eytt
- Viðbætur:
Ekki er von á viðbótum
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Tengt efni
- Tengt efni:
KSS 78. Gunnþórunn Halldórsdóttir. Einkaskjalasafn.
KSS 2021/19. Guðrún Jónasson og Gunnþórunn Halldórsdóttir.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Auður Styrkársdóttir raðaði í öskju, skráði og setti á safnmarki og skrifaði lýsandi samantekt í ágúst 2012. Rakel Adolphsdóttir bætti skráningu og bætti ljósmyndum við safnið 1. desember 2020. Rakel setti jafnframt hárfléttuna í sérstaka öskju 14. mars 2023 sem verður ekki til útláns á lessal heldur einungis til sýnis ásamt skjalaverði.
- Dagsetning lýsingar:
ágúst 2012
Skjalaskrá
Askja 1
- örk 1: Passi Guðrúnar dags. 13. júlí 1946, fermingarorð á hvítasunnu 5. júní 1892 sér Hafsteinn Pjétursson, Guðrún Jónasson sextug tvær úrklippur, handskrifað ljóð við lag til Guðrúnar
- örk 2: Símskeyti frá Halb. 8. febrúar 1940
- örk 3: Ljósmyndir:
- Ljósmynd, brjóstmynd af Guðrúnu Jónasson frá því hún var ung. Myndin er fest á þykkan pappa. Á myndinni er Guðrún í silkikjól með blúndu bróderingu.
- Svarthvít plötu-ljósmynd, tekin af Láru Ólafsdóttir á Stokkseyri. Á myndinni má sjá konu í svörtum kjól, með fléttur og skotthúfu, sem situr á stól.
- Svarthvít ljósmynd, brjóstmynd af Guðrúnu Jónasson með heiðursorðu áfasta klæðum sínum.
- Mynd af Gunnþórunni Halldórsdóttir í hlutverki í leikritinu Vopn Guðanna e. Davíð Stefánsson.
- Ljósmynd sem sýnir tvo lögreglumenn ganga upp Suðurgötu á undan líkför Guðrúnar Jónasson 14. október 1958.
- Ljósmynd sem sýnir Guðrúnu Jónasson í stofu sinni, umkringda blómum.
- Örk 4
- Jólakort frá borgarstjóranum í Reykjavík, Bjarna Benediktsson. Á kortinu er svarthvít ljósmynd af Hljómskálagarðinum.
- Samskonar jólakort frá borgarstjóranum í Reykjavík, undirskrift Vala og Gunnar Thoroddsen.
Ekki í örk:
- Tilkynning um riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu 3. júní 1944
- Tilkynning um veitingu stórriddarakrossins 28. apríl 1955
- Símskeyti í leðurbandi frá Sjálfstæðiskvennafélaginu Hvöt 8. febrúar 1940
- Heiðursskjal Slysavarnarfélags Íslands 8. febrúar 1947
- Heiðursskjal frá Sjálfstæðiskvennafélaginu Hvöt 23. maí 1955
Askja 2 [ath. ekki til útláns á lessal, einungis til sýnis með skjalaverði]
- Hárflétta í sígarettuboxi