Safnmark: KSS 2024/1
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Kvennasögusafn Íslands
- Safnmark:
KSS 2024/1
- Titill:
Guðrún Lárusdóttir
- Tímabil:
1929-1938
- Umfang:
Ellefu öskjur í ýmsum stærðum.
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2024/1. Guðrún Lárusdóttir.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Guðrún Lárusdóttir (1880-1938), þingmaður og rithöfundur
- Lífshlaup og æviatriði:
Guðrún Lárusdóttir f. 8. janúar 1880, d. 20. ágúst 1938. Húsmóðir, rithöfundur og stjórnmálakona. Í bæjarstjórn Reykjavíkur 1912–1918. Fátækrafulltrúi í Reykjavík 1930–1938. Landskjörin alþingismaður 1930–1934, landskjörinn alþingismaður (Reykjavíkinga) 1934–1938. Formaður Kristniboðsfélags kvenna í Reykjavík 1926–1938 og fyrsti formaður Húsmæðrafélags Reykjavíkur 1935–1938. Fyrsta bókin hennar kom út árið 1903, sjá lista yfir ritverk hennar á vefnum skald.is. Gift Sigurbirni Á. Gíslasyni árið 1902. Þau eignuðust 10 börn: Lárus (1903), Halldór (1905), Kristín Guðrún (1906), Gísli (1907), Kristín Sigurbjörg (1909), Friðrik Baldur (1911), Kirstín Lára (1913), Guðrún Valgerður (1915), Sigrún Kristín (1920), Gústaf (1924). Heimild: Björg Einarsdóttir, Úr ævi og starfi íslenskra kvenna. II. bindi. Reykjavík 1986. Bls. 350-371.
- Varðveislusaga:
Úr fórum afkomenda
- Um afhendingu:
Sigrún V. Ásgeirsdóttir (f. 1944) afhenti fyrir hönd fjölskyldu sinnar fyrirlestrar og erindi Guðrúnar Lárusdóttur (1880–1938) í einum pappakassa. Erindin fjalla einkum um pólitíska þátttöku Guðrúnar sem og trúmál og önnur samfélagsmál, þá er einnig þýðingar hennar og frumsamin skrif hennar.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Tengt efni
- Tengt efni:
KSS 2020/4. Guðrún Lárusdóttir og Sigurbjörn Á Gíslason. Bréfasafn.
Sjá einnig gögn Guðrúnar á handritasafni Landsbókasafns
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Rakel Adolphsdóttir skráði, 4. nóvember 2024
Skjalaskrá
askja 1
Alþingi
- örk 1:Getnaðarvarnir
- örk 2:Kvenréttindi [óheilt]
- örk 3:Alþingi kvenréttindi [1932?]
- örk 4:Mjólkurmálið
- örk 5:„ófríða konan“ [bls. 2-9]
- örk 6:Áfengislöggjöf
- örk 7:Áfengismál [1931?]
- örk 8:Áfengisskatturinn
- örk 9:Áfengismál
- örk 10:Framsöguræða um heilsuhæli handa drykkjumönnum 1937
- örk 11:Áfengisbölið
- örk 12:Áfengisbölið [bls. 6-12]
- örk 13:Samið um kaup/sölu á kjöti til/frá Noregi [bls. 1-7]
- örk 14:Alþingi umræður
- örk 15:Alþingi
- örk 16:Þingmenn yfirlit 1931
- örk 17:Greinargerð með lögum
- örk 18:Fátækralög
- örk 19:Æskulýðshreyfing, ungmennafélag
- örk 20: Framsöguræða um vistarskóla fyrir vanheil börn og unglinga 1934
- örk 21: Umræður um félagsmál
- örk 22: Fávitahæli
- örk 23: Hæli fyrir fávita, febrúar 1932
- örk 24: Daufdumbir, blindir, fatlaðir, málhaltir
- örk 25: Um kirkjuna
- örk 26: Kirkjumál
- örk 27: óvíst
askja 2
Mjólkurmálið
- örk 1:Tvö umslög [öll skjöl í þessari öskju voru saman í umslagi merktu „mjólkurmálið“ í þessari röð]
- örk 2:Sáttakæra, afrit. Frá mjólkursölunefnd [15. mars 1935]
- örk 3:Vottorð fjósa 1934
- örk 4:Áskorun fundar húsmæðra [ódagsett]
- örk 5:Tillögur og ályktanir húsmæðrafunda 1935
- örk 6:Læknisvottorð einstaklinga 1934
- örk 7:Morgunblaðið janúar 1935
- örk 8:ræða [byrjar á „Eg kann sjálfstæðiflokknum góðar þakkir fyrir að gefa mér…“]
- örk 9:ræða
- örk 10:Tillögur húsmæðra til Alþingis 18. febrúar 1935
- örk 11:Bréf frá útvarpsráði 22. janúar 1935 [Helgi Hjörvar]
- örk 12:Ræða [byrjar á „heiðruðu húsmæður“]
- örk 13:Drög að ályktun fundar húsmæðra [handskrifuð]
askja 3
Erindi
- örk 1:Mappa sem var utan um erindin [sem eru nú í þessari öskju, í sömu röð og þau voru í möppunni]
- örk 2:Erindi, mögulega hjá Kristniboðsfélagi kvenna
- örk 3:Erindi KFUK 6. febrúar 1931
- örk 4:Erindi, mögulega flutt á páskum
- örk 5:Bernskuár Livingstons
- örk 6:„Siðferðismál vor“ erindi flutt í dómkirkju Reykjavíkur 15. október 1930 [bók]
- örk 7:Ýmis erindi flutt árið 1935 [bók]
- örk 8:Erindi [tengt áfengi]
- örk 9:„Treystu Guði. Sönn saga“
- örk 10:Þýdd smásaga
- örk 11:Saga eftir Carl Hanne þýðing
- örk 12:„Píslarvottur nútímans“
- örk 13:„Samtök kvenna“ flutt í Framtíðinni veturinn 1936-27
- örk 14:Ræða sumardaginn fyrsta 1932
- örk 15:„Páll litli og …“ Þýdd smásaga, lesin á basar KFUK desember 1916
- örk 16:Ræða í Betaníu á páskunum 1935
- örk 17: Erindi flutt á Betaníu haust 1934
askja 4
Erindi
[var í möppu merkt „félagsmál ýmis“ við afhendingu]
- örk 1:mappan, reglur um flutning útvarpsefnis
- örk 2: „Ég vil vera starfsmaður ríkisins með föstum launum“ [mögulega Halldóra Bjarnadóttir]
- örk 3:Úrklippur
- örk 4:Börn, mæður [bls. 1-14, 19-25]
- örk 5:erindi [efni óvíst]
- örk 6: erindi [efni óvíst]
- örk 7:Um barnaheimili, starfsemi fyrir börn
- örk 8:Mæðradagurinn 27. maí 1934
- örk 9:erindi [efni óvíst]
- örk 10:erindi [efni óvíst]
- örk 11:Börnin í Reykjavík
- örk 12:KFUK beðið fyrir kristnu fólki í Rússlandi [1930?]
- örk 13:Á sumardaginn fyrsta
- örk 14:Dýravernd
askja 5
Erindi
- örk 1: Erindi I, bók 1931-1932:
- Erindi flutt í KFUM 10. október 1931
- Kirkjan og líknarstörfin erindi flutt 26. október 1931
- Vegurinn erindi flutt í Betaníu 17. nóvember 1931
- Betanía erindi flutt í KFUK í Hafnarfirði 22. nóvember 1931
- Á föstudaginn langa 1932, Hafnarfjörður KFUK
- örk 2: Erindi, bók II
- Minnisgrein í ræðu um áfengsimál
- Lausleg þýðing á kafla úr lokaræðu MR. KElly‘s
- Úr ævi O.L. Moody
- Á mæðradaginn 22. maí 1938
- örk 3: Bók:
- Verðmæti lífsins, smásaga þýdd af GL
- Erindi flutt á … KFUM 1932
- Nokkur orð um Biblíuna, erindi flutt á skemmtikvöldi KFUK 5. nóvember 1932
- Barnið
- Ævintýri hans Valters
- Minning mæðradagsins 23. júní 1937
- örk 4: Theresa Newmann
- Erindi flutt í Nýja bíó 16. maí á fundi KFUK 7. febrúar 1930
- Þýðing [bók]
- örk 5 : Útvarpserindi, R. Richters, um dansinn. Endurtekið í Nýja-Bíó 6. janúar 1929 [vélritað]
- örk 6: Fyrir ekkjurnar
- örk 7: Stofnun KFUK
- örk 8: Draumur
- örk 9: Ekkjan frá Nain
- örk 10: „útvarpserindi“
askja 6
Erindi
- örk 1:Hvítabandið
- örk 2:Konur og stjórnmál
- örk 3:Ung ar stúlkur í Reykjavík [var saman í umslagi]
- sveitastúlka kemur til borgarinnar
- stúlkur dvelja vetrarlangt í Reykjavík
- örk 4:Heimili fyrir afvegaleiddar stúlkur
- örk 5:Kvenréttindi, til hjálpar ungum stúlkum
- örk 6:Um börn
- örk 7:Kirkens korshær, um barnaheimili í Danmörku
- örk 8:Sitt af hverju um barnaheimili
- örk 9:Húsmæðraskólar
- örk 10:Heimili drykkjumanna
- örk 11:Gott heimili
- örk 12:Heimili vor
- örk 13:Mæðradagur
- örk 14:
- Nokkur orð um bláa krossinn
- Mæðradagurinn 1935
- örk 15:Hinn fyrsti kristni söfnuður
- örk 16:Já, kristilegt er það
- örk 17:Kristilegt er það
- örk 18:Jólafrásögn
- örk 19: Dia konsiusstarf
askja 7
Frumsamið og þýtt
- örk 1: Ástandið í Þýskalandi
- örk 2: Teater og Tempel
- örk 3: Varmaria
- örk 4: Saga Einars, endursögn úr dönsku
- örk 5: Týndi sonurinn
- örk 6: Bænir sem eigi hlutu bænheyrslu
- örk 7: Pilatus [1-21]
- örk 8: Esterarbók
- örk 9: Hallveig Fróðadóttir, 17. júní 1932
- örk 10: Jóhann Húss – Ungverjaland
- örk 11: Indland
- [ath. að hluta skrifað aftan á vélritað bréf sem Ólafía Jóhannsdóttir ritaði til SÁG 9. nóvember 1907]
- örk 12: Ekkjur í Indlandi [28 blaðsíður]
- örk 13: Börnin á Indlandi
- örk 14: Saga Gyðingaþjóðarinnar 24-15.-
- örk 15: Kína í dag, frá Kína
- örk 16: Bræðrasöfnuðurinn í Christiansfeld
- örk 17: Ræða flutt ungu fólki um vor/sumar
- örk 18: Föstudagurinn 22. júní 1928
- örk 19: Bænadagur kvenna
- örk 20: Frásögn 13. ágúst 1938, Vígsla trúboða í Noregi 1936
- örk 21: Hallgrímur Pétursson, erindi flutt í Hafnarfjarðakirkju 1. júní 1936 á Hallgrímshátíð
- örk 22: Dýrin í sveitinni [3-18]
- örk 23: Ráðvandur piltur
askja 8
Frumsamið og þýtt frh.
- örk 1: Lárus Sigurbjörnsson glósur 1939-1940 [1 blað]
- örk 2: Sumar í sveitinni
- örk 3: Sagan um Siggu
- örk 4: Þegar samviskan vaknar
- örk 5: Sigur kærleikans
- örk 6: Tengdasonur biskupsins
- örk 7: Fáeinar heimsóknir
- örk 8: Þýddar sögur (bók)
- örk 9: Ræninginn [smásaga], Gamla lagið úr Familie Journal
- örk 10: Matthildur Wrede, Vinur fanganna, þýtt fyrir Bjarma
- örk 11: Þýðing [vantar síðu 1]
- örk 12: Þýðingar
- örk 13: Bók, þýtt og frumsamið, flutt í útvarpi eða birt í tímaritum
askja 9
Ýmis brot
- örk 1: KFUM „Fr. Friðriksson“, 15. október 1938
- örk 2: Ýmis brot „Ef sögð væri saga Reykjavíkur…“
- örk 3: Ýmis brot
- örk 4: Ýmis brot
- örk 5: Ýmis brot „Ég ætla að seilast langt aptur í tímann…“
- örk 6: Ýmis brot
- örk 7: Ýmis brot
askja 10
Annað
- örk 1. Bréf, Elín til Guðrúnar
- örk 2: Bréf 3. desember 1932, óþekkt
- örk 3: Listi yfir gögnin eins og þau voru afhent til Kvennasögusafns („LISTI yfir gögn Guðrúnar Lárusdóttur sem voru í vörslu Lárusar Sigurbjörnssonar og síðar Guðrúnar Helgu, dóttur hans. Skráð í febrúar 2018 SVÁ)
- örk 4: Útprentuð ljósmynd af niðjum Guðrúnar
- Mappa
askja 11
Umbúðir og umslög