Safnmark: KSS 91
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 91
- Titill:
Gunnlaugur Finnsson
- Tímabil:
1892-1980
- Umfang:
Fimm öskjur í opnun aðgangi.
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 91. Gunnlaugur Finnsson. Bréfasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Gunnlaugur Finnsson (1928–2010), bóndi og alþingismaður. Foreldrar: Finnur Finnsson (1876-1956) og Guðlaug Sveinsdóttir (1885-1981).
Maki (14. júní 1952): Sigríður Jóhanna Bjarnadóttir (fædd 19. mars 1926) húsmóðir. Börn: Sigurlaug (1953), Halldóra Valgerður (1955), María (1956), Finnur Magnús (1958), Bergljót (1960), Birna (1961), Einar Þór (1964).
Stúdentspróf MA 1949. Bóndi á Hvilft síðan 1950. Kennari við Héraðsskólann á Núpi 1953–1954 og við barna- og unglingaskóla á Flateyri 1959–1974. Kaupfélagsstjóri á Flateyri 1980–1988. Alþingismaður Vestfirðinga 1974–1978 (Framsóknarflokkur).
Heimild: Alþingi.is
- Lífshlaup og æviatriði:
Fæddur á Hvilft í Önundarfirði 11. maí 1928, dáinn 13. janúar 2010.
- Varðveislusaga:
Úr fórum afkomenda.
- Um afhendingu:
Gögnin afhentu Kvennasögusafni Halldóra og Sigurlaug Gunnlaugsdætur 3. mars 2011.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Safnið hefur að geyma bréfasafn Gunnlaugs Finnssonar (1928-2010), bónda að Hvilft í Önundarfirði og alþingismanns. Bréfin eru frá foreldrum hans og systkinum er hann dvaldi að Menntaskólanum á Akureyri, bréf frá skólasystkinum og öðrum vinum, nokkur bréf frá stuðningsmönnum og kjósendum.
- Grisjun:
Engu var eytt
- Viðbætur:
Ekki er von á viðbótum
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er takmarkaður að hluta
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Skjölin komu í öskjum sem Kvennasögusafn lagði til. Auður Styrkársdóttir endurraðaði að nokkru. Hún skrifaði einnig lýsingu í mars 2011 og setti á safnmark.
Askja 1 var í opnum aðgangi við afhendingu. Öskjur 2-5 voru í lokuðu aðgengi þar til 3. mars 2018. Allt safnið verður aðgengilegt 3. mars 2041.
- Dagsetning lýsingar:
23. mars 2011
Skjalaskrá
Askja 1:
Bréf Sigríðar Þórarinsdóttur (föðurömmu Gunnlaugs) til bróður (1892) og sonar (1906–1908) og dagbækur sonarins (1904–1910), Finns Finnssonar.
Askja 2:
Bréf til Gunnlaugs Finnssonar frá foreldrum, ca. 1946–1965. Efst liggja passamyndir af Gunnlaugi
Askja 3:
Bréf til Gunnlaugs Finnssonar frá systkinum: Hjálmar Finnsson – Jóhann Finnsson – Kristín Finnsdóttir – María Finnsdóttir – Málfríður Finnsdóttir – Ragnheiður Finnsdóttir – Sigríður Finnsdóttir – Sveinbjörn Finnsson – Sveinn Finnsson
Askja 4:
Bréf frá öðrum ættingjum: Árni Matthíasson – Gunnar Sveinbjörnsson (Canada) – Þórunn G. Jenson (Danmörku) – Sigrid – Svein – Ellen May Nilsen – Árni Matthíasson. Bréf frá Leifi Guðjónssyni. – Bréf frá Eysteini G. Gíslasyni, Skáleyjum
Askja 5:
Í örkum: Bréf frá skólafélögum o.fl.: Ólöf Jónsdóttir, Skólavörðustíg 17b – Vilborg Guðjónsdóttir, Skólavörðustíg 17b – Björg Ólafsdóttir, Akureyri – “Siva” – Jón Ármann Héðinsson – Jón Arngrímsson – Lesley Rogers – Einar Pálsson – Böðvar, Gautlöndum – Bragi Erlendsson – Ólafur Kristjánsson, skólastjóri Reykjum – Halldór Kristjánsson, Kirkjubóli – Danskir vinnumenn – .
Örk: Ýmsir bréfritarar: “Alla” – Sigrún, Sólvöllum – Lilja Bergþórsdóttir – Anna María, Selfossi – Helgi Ágústsson – Ragnar Árnason – Jólakort
Örk: Bréf frá árunum 1970-1980
Örk:Bréf frá árunum1964-1969
Örk: Bréf frá árunum 1950-1956