Safnmark: KSS 2020/8
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 2020/8
- Titill:
Ína Gissurardóttir
- Tímabil:
1982–1999
- Umfang:
Átta öskjur
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2020/8. Ína Gissurardóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Þorgerður Ína Gissurardóttir (f. 1943)
- Lífshlaup og æviatriði:
Fædd 10. júlí 1943. Foreldrar: Guðrún Jónsdóttir (1907–1988) og Gissur Kristjánsson (1904–1993). Giftist Halldóri Skaftasyni (1942–2018) árið 1962. Börn þeirra: Arna Björk (f. 1962), Hallur (f. 1963), Sigurvegi (f. 1967). Starfaði sem deildarstjóri hjá Happdrætti Háskóla Íslands. Ein af stofnendum Kvennalistans. Starfskona Kvennalistans um tíma. Var á framboðslista til Borgarstjórnar og Alþingis.
Heimild: Morgunblaðið, 10. september 2018. Og C1, örk 6.
- Varðveislusaga:
Úr fórum hennar sjálfrar.
- Um afhendingu:
Barst um hendur Kristínar Jónsdóttur (f. 1947) á skrifstofu Kvennasögusafns 30. júní 2020.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Átta öskjur, þar af fjórar þunnar, sem innihalda skjöl flest tengd starfi Kvennalistans og ráðstefnum sem hún tók þátt í á þeirra vegum, nokkur skjöl tengd Rauðsokkahreyfingunni auk efni á öðrum miðlum og þ.a.l. ekki pappírsgögn.
- Grisjun:
Margtökum var eytt.
Alþýðublaðið 27. maí 1994
Kvennapósturinn: Fréttabréf Reykjavíkuranga
Pylsaþytur afmælisblað Kvennalistans 1. tbl. 1. árg. 1991Pylsaþytur afmælisblað Kvennalistans 1. tbl. 2. árg. 1993
The Women‘s Alliance Policy Statement 1987
Þjóðviljinn 6. ágúst 1988 (á blaðsíðu 9 er fjallað um Nordisk Forum í Osló)
- Viðbætur:
Ekki er von á viðbótum.
- Frágangur og skipulag:
Raðað í skjalaflokka eftir þemum. Raðað eftir árum innan þema. Efninu var raðað í arkir eftir upprunareglunni, það er hvernig gögnin voru fest saman við afhendingu. Hver örk innan hvers skjala- og undirskjalaflokks er númeruð.
Skjalaflokkar eru eftirfarandi:
A Kvennalistinn / Reykjavíkurlistinn
A1 Starf í tímaröð
A2 Skorradalur
A3 Fjármál
A4 Vera
A5 Fjáröflun – happadrætti
A6 Prentað efni
B Rauðsokkahreyfingin
C Ráðstefnur
C1 Skotland 1988
C2 Nordisk Forum 1988
C3 Jafnréttisráðstefna Osló 1988
D Unndórsrímur og fleira frá Helga Hósassyni
E Úrklippur
F Aðrir miðlar
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska, danska, norska og enska.
- Umfang og tæknilegar þarfir:
Efni í skjalaflokki F, sem er á öðrum miðlum þarf sérstök tæki til að skoða.
Tengt efni
- Tengt efni:
KSS 10. Kvennaframboð og Kvennalisti í Reykjavík.
KSS 11. Kvennalistinn.
KSS 15. Reykjanesangi Kvennalistans.
KSS 80. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
KSS 93. Eyrún Ingadóttir.
KSS 150. Kristín Jónsdóttir.
KSS 154. Edda Bjarnadóttir.
KSS 2017/6. Kvennalistinn. Ljósmyndir.
KSS 2018/2. Kvennalistinn. Ljósmyndir.
KSS 2019/15. Kristín Jónsdóttir.
KSS 2020/2. Guðný Guðmundsdóttir.
- Not:
Líklega voru einhver af þessum gögnum notuð við gerð vefsins www.kvennalistinn.is
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Rakel Adolphsdóttir flokkaði, skráði og vann lýsingu.
- Dagsetning lýsingar:
15. október 2020
Skjalaskrá
askja 1
A Kvennalistinn / Reykjavíkurlistinn
A1 Starf í tímaröð
- örk 1982–1987:
- a. Dagskrá funda, fundarboð, uppstillingar, málefnagrundvöllur Kvennalistans í stjórnarmyndunarviðræðum 1987, tillaga til þingsályktunar
- örk 1988:
- a. Fundarboð, dreifibréf, frá ritnefnd Veru, uppkast að yfirlýsingu um aðgerðir í efnahagsmálum
- örk 1989:
- a. Fundarboð, dagskrá funda, dreifirit, jómfrúarræða Sigrúnar Helgadóttur á Alþingi, tilkynning frá uppstillingarnefnd, tillaga til þingsályktunar
- örk, 19. júní 1989
- a. Bréf um skipulag dagsins, dagskrá og um ávarp Helenu Coldicott
- örk 1990:
- a. Fundarboð, fundardagskrá, undirbúningur kosninga, stefnuskrá í borgarmálum
- örk 1991:
- a. stutt erindi á kynningarkvöldi, ljósrit af glósum, undirbúningur kosninga
- örk 1992:
- a. fundarboð, dagskrá funda, um íslenska kvennaskólann, ljósrit af fundargerð, ræða Kristínar Einarsdóttur á Alþingi um evrópskt efnahagssvæði
- örk 1993–1999:
- a. fundarboð, dagskrá funda, bréf til Kvennalistakvenna, um landsfund 1998, boð á afhendingu gagna til Kvennasögusafns 1999
- örk ódagsett:
- a. bréf um einstaka mál, uppstillingar, söngtextar, dagskrá funda, handskrifuð starfslýsing
askja 2
A2 Skorradalur
- örk:
- Bæklingur um Kvennalistann á ensku og íslensku
- Glósur skrifaðar á umslag
- Glósur á pappírsrenninga
- Dagskrá fundar með handskrifuðum skilaboðum
- Kort af Skorradal
- Annað kort af Skorradal
A3 Vera
- örk:
- Handskrifaður listi með símanúmerum
- Listar með nöfnum o.fl.
A4 Fjármál
- örk
- Rekstrarreikningur Kvennalistans 1.10.88–30.09.89
- Kvittanir
- Sparibók
- Samtök um Kvennalista ársreikningur 1. september 1997 til 31. ágúst 1988
A5 Fjáröflun og happadrætti
- örk: Gögn tengd fjáröflun og happadrættis Kvennalistans
A6 Prentað efni
- örk: Ýmis dreifirit Kvennalistans
- örk: Ýmis dreifirit, Reykjavíkurlistinn 1988
- örk, ýmislegt prentað efni tengt Kvennalistanum:
- löggjafarþing, 1. mál. 411. Nefndarálit.
- „Höfum það sem sannara reynist. Svör Reykjavíkurlistans við bæklingi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík“ [17 blöð]
- Hlutur kvenna í opinberum nefndum, stjórnum og ráðum í Apríl 1990. Jafnréttisráð 1991. [7 blöð]
- Drög að stefnuskrá Kvennalistans í borgarmálum 1990 – lögð fram 17. apríl 1990
- Stefnuskráardrög. Fyrsti hluti. Landsfundur kvennalistans 2.-4. nóvember 1990
- Stjórnarkerfi Reykjavíkurborgar. Skrifstofa borgarstjóra, ágúst 1998
askja 3
B Rauðsokkahreyfingin
- örk: Skipulag [ódagsett]
- örk: Dagskrá ráðstefnu á Selfossi 27.-28. október 1979
- örk: Grundvöllur Rauðsokkahreyfingarinnar – Skipulag og starf. Af III þingi rauðsokka á Selfossi september 1980
- örk: Drög að grundvelli Rauðsokkahreyfingarinnar – Skipulag og starf. Af III þingi rauðsokka á Selfossi september 1980
- örk: Grundvöllur Rauðsokkahreyfingarinnar. Tillaga lögð fram á III. þingi september 1980 [tvö eintök]
C Ráðstefnur
askja 4
C1 Skotland 1988
- örk:
- Ræða: Dear Scottish sisters and friends [6 blöð]
- Drög að ræðu sem var líklega aldrei flutt [langt fax]
- Úrklippa: „Women Advance in Iceland“ Radical Scotland Apr / May ´88 [2 blöð]
- Women‘s Forum [4 blöð]
- Scottish joint action group Decade for women 1976-1985. 21. sept 1989. [2 blöð]
- Einn miði frá Ínu til Kristínar Jónsdóttur um gögnin
- Einn miði „með þökk, Happadrætti Íslands“
- örk: Ræða „Dear sisters and friends in Scotland!“ [11 blöð]
- örk:
- „Possible questions“
- Guðrún Agnarsdóttir: „The progress of the Icelandic Women‘s Alliance“, The Women‘s Poltical Associoation. 11th Annual seminar 28th November 1987
- örk:
- Umslag „Ína Gissurardóttir Kvennahúsið Hótel Vík“
- Bréf frá Margréti
- „Spurningar um nýju Kvennahreyfinguna“ [12 blöð]
- örk:
- Fax á ensku með undirbúning fyrir ræðu á ensku [5 blöð]
- Bréf frá Distu um faxið 10. mars
- örk:
- Upplýsingar um Hólmfríði Árnadóttur (Día)
- Upplýsingar um Ínu Gissurardóttur
- „Spurningar um flokka o.fl.“ [6 blöð]
- Úrklippa Glasgow Herald mars 1988
- Bréf til June, frá Díu 13. apríl 1988
- „Skotlandsferð Dínu“ [2 blöð]
- örk:
- Nóta frá Grace Franklin
- Handskrifað glósublað
- Kvittun fyrir böggli
- Handskrifað lítið blað
- Nafnspjald: Karen Howards
- örk: Handskrifaðar glósur [1 blað]
- örk: Bréf og umslag til Sigrúnar Jónsdóttir frá Women‘s Committee Unit, 17. febrúar 1988
- örk: Bréf og umslag til Ínu frá Dínu, 9. mars 1996
- örk: Bréf og umslag til Ínu og Díu frá Ritu, 30. mars 1988
- örk: Bréf til Ínu frá Karen Howard, 25. maí 1988
- örk: Jólakort og umslag til Ínu og Díu frá Ritu, desember 1988
- örk: Bréf til June frá Ínu og Díu, 13. apríl 1988
- örk:
- Götukort af Edinborg
- Handskrifuð nóta
- Ljósrituð nafnspjöld [1 blað]
- Handskrifuð nóta um hótel þeirra
- Upplýsingar um hótelið Mount Royal Hotel
- Dreifirit um Mount Royal Hotel
- örk: Póstkort og bæklingar um Skotland
- örk: Conference Report
- örk, The City of Edinburgh District Council Women‘s Committee, prentað efni:
- Women‘s Committee Annual Progress Report and Policy Plan, 1987-1988
- Women walt 3, dreifirit
- Information Pack
- örk: Edinburgh Women‘s Liberation Newsletter, mars/apríl 1988
- örk, Scottish Convention of Women, prentað efni:
- Convention Notes No. 20, vor 1988
- Convention Notes 21, haust 1988
- Dreifirit um félagið
- Drög að meðlimakorti félagsins
- örk, annað prentað efni frá Skotlandi:
- Our Times, janúar 1988
- Radical Scotland, feb/mars 1988
- Heritage Scotland vetur 1986
- Glasgow Herald, 29. mars 1988
askja 5
C2 Nordisk Forum 1988
- örk: Skipulag Nordisk Forum
- Program for Kulturen i Oslo by Nordisk Forum 1988
- Kynningarbæklingur
- Aldri mer Hiroshime [dreifirit]
- Kristelig folkepartis kvinner [dreifirit]
- Verdens Dom [söngtexti]
- Kort af svæðinu
- Takk for din pamelding
- Yfirlit yfir bása [11 blöð]
- Nordisk Forum Program [A4 stærð tímarit]
- Dagblað um Nordisk Forum, 1988
- Nyhetsbrev Nordisk Forum 88, 1987
- örk: Íslenskt skipulag
- Kerlinga-Bók 2, söngbók
- Fréttabréf Norrænt kvennaþing í Osló ´88, 1. tbl. 2. árg.
- Fréttabréf Norrænt kvennaþing í Osló ´88, 2. tbl. 2. árg.
- Kvennalistakonur á Nordisk Forum, fyrir utan dagskrá
- Tíu tíma dagskrá Kvennalistans verður á eftirfarandi stöðum
- Stand-Alternativer [4 blöð]
- Nordens fackliga samorganisation [4 blöð]
- Osló Osló 14. júlí 1988 [2 blöð]
- Ráðstefnusvæðið
- Hugmyndir að „themu“ á norrænu kvennaþingi [2 blöð]
- Dómar heimsins [söngtexti, þýðing á verdens dom]
- Vera et feminist tidskrift [dreifirit, norska]
- Handskrifaðar glósur um kostnað [1 blað]
- Fréttabréf Norrænt kvennaþing í Osló ´88, 1. tbl. 1. árg.
- Bréf BSRB 16. mars 1988
- Eyðublað um þátttöku
- Um skráningu
- Um skráningu, önnur gerð
- Ýmsar hagnýtar upplýsingar um Nordisk forum
- Bréf frá BSRB 21. júní 1988 [2 blöð]
- Bréf frá BSRB 19. júlí 1988
- Bréf frá Kvennalistanum 10. maí 1988
- Bréf frá Kvennalistanum „stundin nálgast“ [ódagsett]
- Framhaldsforum BSRB í Munaðarnesi febrúar 1989 [2 blöð og umslag]
- örk: Kvittanir Ínu fyrir þátttöku
- örk: Dagblað: Klassekampen júlí 1988
C3 Jafnréttisráðstefna Osló 1988
- örk: The Women‘s Alliance [2 blöð, enska]
- örk: Kvinnepolitik er hverken höyre eller venstre. Kvinnepolitik er den tredje dimmensjonen [7 3. blöð, norska og íslenska, klippt saman]
- örk: Kvinnepolitik er hverken höyre elle venstre. Kvinnepolitik er den tredje dimmensjonen [7 blöð, norska og íslenska, ljósrit]
- örk: Kvinnearbeid må bli synliggjort. Kvinner m å bli synliggjört. [11 blöð, norska og íslenska, ljósrit]
- örk: Hvorfor må kvinner in på menns arbeidsfelt? Hvorfor ikke bar lonne kvinner ordentlig.? [3 blöð, norska]
- örk: Glósur
- örk: Til íslenskra þátttakenda í norrænu jafnréttisráðstefnunni í Osló frá Bahá‘í samfélaginu á Íslandi [1 blað íslenska]
- „Þetta var fyrsta vers, svo kemur …“ [1 blað, íslenska]
- Til íslenskra þátttakenda í norrænu jafnréttis ráðstefnunni í Osló: fimm póstkort og einn límmiði, í umslagi
askja 6
D Unndórsrímur og fleira frá Helga Hósassyni
- örk:
- Unndórslof, rímur af Unndóri Jónssyni 1967
- Rímur af Ésú Kryssti
- Gamall kirkjureikningur, teikning Halldór Pétursson
- Póstfac frá Ínu til Ingibjargar Bjarnadóttur 23. október 1990
- Íslensk ættarsaga, Valtýr Stefánsson ritstjóri
askja 7
E Úrklippur
askja 8
F Aðrir miðlar
- Stórir floppy diskar, þrír [óvíst hvaða efni er á þeim]
- VHS spóla [óvíst hvaða efni er á henni]
- USB minnislykill, ljósmyndir Kvennalistans og myndir af ræðum frá ráðstefnu í Skotlandi, afrit af ræðunum eru líka í pappírsformi í safninu [afrit af myndum á drifi Kvennasögusafns]