Safnmark: KSS 35
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 35
- Titill:
Ingibjörg Ólafsdóttir Briem Þórðarson (1886-1953)
- Tímabil:
1915-1935
- Umfang:
Ein askja
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 35. Ingibjörg Ólafsdóttir Briem Þórðarson. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Ingibjörg Ólafsdóttir Briem Þórðarson (1886-1953), húsmóðir
- Lífshlaup og æviatriði:
Ingibjörg fæddist þann 9. júlí 1886. Foreldrar hennar voru Ólafur Briem, alþingismaður, og Halldóra Pétursdóttir. Ingibjörg giftist Birni Þórðarsyni, lögmanni og forsætisráðherra (1942–1944) þann 20. ágúst 1914þ-. Þau eignuðust tvö börn: Þórð ríkissaksóknara (f. 1916) og Dóru (f. 1917), búsett lengst af í Kaupmannahöfn. Þau ólu upp Karitas (Kaju) Jochumsdóttur, bróðurdóttur Björns. Ingibjörg 1. maí 1953.
- Um afhendingu:
Guðfinna Guðmundsdóttir, tengdadóttir Ingibjargar, afhenti gögnin 4. mars 2003.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Ein askja.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Safnið er opið
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Tengt efni
- Tengt efni:
KSS 2018/18. Elín Briem. Einkaskjalasafn.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur:
Einkaskjalasafn nr. 470. Dr. Juris Björn Þórðarson.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Auður Styrkársdóttir skráði skömmu eftir afhendingu.
- Dagsetning lýsingar:
2004
Skjalaskrá
askja 1
- 2 bréf frá ,,Kaju“, Karítasi Jochumsdóttur, fósturdóttir Ingibjargar og manns hennar Björns Þórðarsonar og bróðurdóttir hans: Kaupmannahöfn 17. janúar og 25. mars 1935
- 1 bréf frá systur hennar, Hönnu: New York 25. maí 1919
- 1 bréf frá Guðrúnu: 23. nóvember 1928
- 1 bréf frá Halldóri Briem: 9. september 1915
- 1 bréf frá Halldóru, móður Ingibjargar: 20. júní 1915
- 3 bréf til Dóru Þórðarson frá Ingibjörgu: 19. september 1938, 19. október 1938, 8. desember 1938
- Tíu jólakort og bréfspjöld, frá ca. 1910-1933
- Ljósmynd af Ingibjörgu
- Cahier [líklega æfingar í frönsku 1913]