Safnmark: KSS 80
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 80
- Titill:
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
- Tímabil:
1981–1986
- Umfang:
Tvær öskjur
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 80. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (f. 1954), borgarstjóri og ráðherra.
- Lífshlaup og æviatriði:
Sjá Alþingismannatal
- Varðveislusaga:
Úr fórum Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
- Um afhendingu:
Um hendur Hjörleifs Sveinbjörnssonar, eiginmanns Ingibjargar, barst safninu kassi með skjölum og blöðum í eigu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur þann 14 apríl 2009.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Safnið inniheldur ýmislegt efni er varðar Kvennaframboð í Reykjavík á árunum 1982–1986. Einnig eru lesefni og glósur úr námskeiði: „Teoretiske og metodiske problemer i kvindehistorie“.
- Grisjun:
Borið saman við efni sem fyrir er og varða Kvennaframboð og Kvennalista, tvítökum fargað.
- Viðbætur:
Ekki er kunnugt um viðbætur
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska og danska.
Tengt efni
- Tengt efni:
KSS 10. Kvennaframboðið og Kvennalistinn í Reykjavík. Einkaskjalasafn.
KSS 11. Kvennalistinn. Einkaskjalasafn.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Auður Styrkársdóttir raðaði í öskju, skráði og setti í safnmark. Í ágúst 2012 skrifaði hún lýsandi samantekt.
- Dagsetning lýsingar:
ágúst 2012
Skjalaskrá
Askja 1:
Gögn varðandi kvennaframboðið í Reykjavík og úr borgarstjórn.
- Nokkur ósamstæð plögg; blaðaúrklippur vegna hugsanlegs framboðs til þings
- Kjörbréf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur frá yfirkjörstjórninni í Reykjavík 13 júní 1986. – 3 bréf borgarstjóra vegna kosninga í borgarráð 1986
- Gögn varðandi fund Málfundafélags félagshyggjufólks 7 maí 1985 að Hótel Hofi: fundarboð frá stjórn félagsins og ræða Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttir, nokkrar blaðaúrklippur
- Tilkynning frá skrifstofu borgarstjóra um kjör Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur sem skrifara borgarstjórnar, dags. 6 júní 1983. – Bréf yfirkjörstjórnar Reykjavíkur um úrslit borgarstjórnarkosninga 22 maí 1982. – Bréf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur vegna borgarfulltrúatals, dags. 14 jan. 1986
- Bréf Kristjáns Benediktssonar og samningur minnihlutaflokka í borgarstjórn, 7 júní 1985. – Minnisblað merkt Sigurður E. Guðmundsson, 3 júní 1982, um kjör í nefndir borgarstjórnar
- „Kosningabaráttan í Reykjavík. Umræðupunktar teknir saman af Kristínu Ástgeirsdóttur og Kristínu Árnadóttur“. – Fréttatilkynning vegna kjarnorkuvopna frá Kvennaframboðinu í Rvk. 31 mars 1984.- Lög fyrir samtök um kvennaframboð, ódagsett. – Tillögur og þankar um framkvæmdir innan Kvennaframboðsins vegna Veru, félagafjölgun og fjáröflun, ódags. – Tillögur um sameiginlegan rekstur „Nafnlausa bandalagsins“ (þ.e. Kvennaframboð og Kvennalisti, Vera og ýmsir kvennahópar), ódags. – Bréf frá samstarfshópi kvenna úr öllum stjórnmálahreyfingum til heilbrigðisráðherra og menntamálaráðherra, dags. 10 júní 1983, varðandi ráðgjöf og fræðslu um kynlíf
- „Er þörf á fleiri vinstri flokkum?“ Erindi ISG. – Bréf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur til fréttastofu RÚV vegna viðtals við Svan Kristjánsson 30 apríl (vantar ár). – Minnisblað úr Alþýðubandalaginu og tillaga að kynjakvóta á framboðslistum þess, 1985. Óundirritað. – Bréf ISG til borgarráðs vegna fæðingarorlofs hennar, dags. 27 des. 1982
- Ráðstefna í Ölfusborgum 25 og 26 september 1982: Dagskrá og ályktanir vinnuhópa, handskrifuð ræða ISG um hvort kvennaframboðið eigi að bjóða fram til þings
- Ýmislegt úr stefnuskrárvinnu Kvennaframboðs
- Lög fyrir samtök um kvennaframboð (Lög Samtaka um kvennaframboð). – Stefnuskrá kvennaframboðs (drög), lögð fyrir félagsfund 6 mars 1982. – Stefnuskrá lögð fyrir félagsfund 13 mars 1982.
- Ráðstefna kvennaframboðsins um borgarmál, 4 sept. 1982
- 4 bréf frá i til félaga, 1981-1982
- Kosningabaráttan, 1982. Plan
- „Frambjóðendur í kvennaframboði. Útilega 2-3 apríl 1982
- Gögn frá ráðstefnu um kvennaframboð 9 janúar 1982
- Undirbúningshópur kvennaframboðs – nafnalisti.
- „Punktar. Líklegar spurningar“ (ódagsett). – Verðhugmyndir vegna kvennaframboðsblaðs, dags. 20 júlí 1981
- Úr bréfi Kristínar Ástgeirsdóttur 19-20 maí 1982 þar sem kvennaframboð er boðað (ISG hefur skrifað 1981, en það getur ekki verið rétt).
Askja 2:
Lesefni og glósur Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í kúrsinum „Teoretiske og metodiske problemer i kvindehistorie“ á vormisseri 1981 (ekki verður séð af plöggum við hvaða skóla). Efst liggja tvær bækur: „… ég sé í spilunum“ áritað aftast Til Sollu, Svala Sigurleifsdóttir; „Litli dýravinurinn“, skrifað á saurblað m.a. Ingibjörg.