Safnmark: KSS 186
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Kvennasögusafn Íslands
- Safnmark:
KSS 186
- Titill:
International Alliance of Women (IAW/IWSA)
- Tímabil:
1911-1986
- Umfang:
tvær öskjur og sjö innbundnar skýrslur
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 186. International Alliance of Women.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
International Alliance of Women
Anna Sigurðardóttir
- Lífshlaup og æviatriði:
Stofnað 1904 í Berlín af Carrie Chapman Catt, Millicent Fawcett, Susan B. Anthony og fleirum. Þá hét félagið International Woman Suffrage Alliance (IWSA). Höfuðstöðvarnar voru fyrst um sinn í London. Félagið breytti nafni sínu seint á þriðja áratug 20. aldar í International Alliance of Women (IAW). Einkennislitur félagsins er gull.
Félagið átti sinn þátt í að Kvenréttindafélag Íslands var stofnað og Carria Chapman Catt var í bréfasambandi við Bríeti Bjarnhéðinsdóttur. Bríet, Laufey Valdimarsdóttir og Inga Lára Lárusdóttir voru meðal fulltrúa Íslands á alþjóðaþingum kvenna sem félagið stóð fyrir. Kvenréttindafélag Íslands er enn aðili að sambandinu.
- Varðveislusaga:
Myndaðist hjá Önnu Sigurðardóttur og á Kvennasögusafni.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
enska
Tengt efni
- Tengt efni:
KSS 6. Kvenréttindafélag Íslands.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Rakel Adolphsdóttir setti á safnmark í október 2024 og tók saman lýsandi samantekt. Emma Björk tók saman innihald öskju 1 þegar hún var sumarstarfsmaður Kvennasögusafns 2021-2022.
- Reglur eða aðferð:
Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum
- Dagsetning lýsingar:
14. október 2024
Skjalaskrá
askja 1
Bréf á milli Önnu Sigurðardóttur og samtakanna, fréttabréf og fleira prentað efni
International Alliance of women
[Ath. járn/stál hefti í tímaritum]
- International Women‘s News tímarit, frá nr. 44 – 55.
- Fréttabréf frá International Women‘s News frá nr. 66 – 89.
- Auglýsing fyrir þingi International Alliance of Women haldið í Amsterdam, 18-23 júlí 1949.
- Skráningareyðublað (í tvíriti) fyrir þing haldið í háskólanum í Trieste 19. ágúst – 2. september, 1964.
- Dagskrá þingsins í Trieste, Ítalíu árið 1964.
- Dagskrá móttöku, 21 ráðstefnu International Alliance of Women, 3 ágúst 1967. Merkt á bakhlið, Elísabet Howard.
- Bréf, skrifað á blátt bréfsefni til Önnu Sigurðard. frá Helen Prociek, 1973.
- Bleikur bæklingur IAW, um starfsemina frá árinu 1976-1979.
- Ljósfjólubleikur bæklingur IAW, um starfsemina frá árinu 1979-1982.
- Gulur bæklingur IAW, um starfsemina frá árinu 1982-1985.
- Brúnn bæklingur, skýrsla frá árinu 1925-1926, um starfsemi Consultative Commitee of Women‘s Organisations.
- Bæklingur frá þingi IAW, Golden Jubilee í Colombo, Srí Lanka, árið 1955.
- Bæklingur um lög gagnvart ógiftum mæðrum og börnum þeirra.
- Blár bæklingur IAW frá árinu 1973-1976.
- Gulur bæklingur frá IAW, um starfsemina frá 1904-1964.
- Bæklingur um 23. ráðstefnu IAW, haldin í Indlandi árið 1973.
- Bæklingur frá 20. ráðstefnu í Englandi, 1967.
- Bæklingur frá 21. ráðstefnu í Þýskalandi, árið 1970.
- Grænn bæklingur IAW, frá árinu 1989-1992.
- Blár bæklingur IAW, frá árinu 1986-1989.
- Skær appelsínugulur bæklingur – dagskrá frá 21. þingi IAW, 1967.
- Útprentað hefti, ávarp Alice Yotopoulos-Marangopolous, Grikklandi, 1. júlí 1992. Heftað við umslag stílað á Önnu Sigurðard.
- Hefti, ávarp forseta IAW frá árinu 1991, Alice Marangopoulos.
- Hefti, auglýsing fyrir 19. þingi IAW, haldið í Írlandi.
- Meðlimagjald A.S og bréf til Annette Wegniere gjaldkera IAW.
- Vélrituð bréf til meðlima IAW frá A.S.
- Ályktanir alþjóðafundar IAW 1962, birtar í 19. júní.
- Ítrekun um meðlimagjöld, stíluð á A.S.
- Meðlimakort A.S. frá árinu 1958.
- Bréf frá Grete Borgman til meðlima IAW.
- Vélritað uppkast af þing, ráðstefnu og pallborðsumræðu IAW.
- Ávarp forseta IAW, bréf frá árinu 1985, 1982 og 1988.
- Bréf frá Grete Borgman, 1979.
- Samþykktir 16. þings Alþjóðakvenréttindafélagsins, birt í 19. júní.
- Greiðslukvittun A.S. fyrir tveimur eintökum af bókinni, A history of the International Alliance of Women 1902-1978 eftir Arnold Whittick.
- Dagskrá 25. þing IAW í Líberíu, 1979.
- Bréf til meðlima frá Grete Borgman, 1980, 3 stykki.
- Bréf forseta IAW, Olive Bloomer, frá árinu 1980.
- Eyðublað vegna þáttöku á 23. þingi IAW á Indlandi, 1973.
- Rútumiðar á IAW þing.
- Ferða eyðublað vegna þingsins í Líberíu 1979.
- Tvö eyðublöð vegna 25. þings IAW, 1979.
- Auglýsing um starf á vegum Sameinuðu þjóðanna.
- Fréttabréf frá höfuðstöðvum IAW, 1976, 1967.
- Þrjú bréf til IAW frá A.S. um stöðu kvenna á Íslandi.
- Listi yfir þáttakendur í 21. þingi IAW.
askja 2
Fréttabréf og fleira prentað efni
Ekki í öskju:
Innbundnar skýrslur IWSA congress: 1911, 1913, 1920, 1923, 1926, 1929, 1949 [skrifstofa Kvennasögusafns]