Safnmark: KSS 61
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 61
- Titill:
Katrín Gísladóttir
- Tímabil:
Óvíst
- Umfang:
Fimm öskjur
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 61. Katrín Gísladóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Katrín Gísladóttir (1903–1997) yfirhjúkrunarkona
- Lífshlaup og æviatriði:
Fædd að Heiðarbæ í Þingvallasveit 2. apríl 1903, dáin í Reykjavík 5 sept. 1997.
For.: Guðríður Jóhannsdóttir frá Nesjavöllum í Grafningi og Gísli Guðmundsson frá Saurbæ í Ölfusi.
Hóf hjúkrunarnám við Landspítalann 1930 og lauk prófi 1933, stundaði að því loknu nám í Finnlandi í 6 mánuði. Starfaði síðan á Vífilsstöðum í tíu ár og eftir það á skurðstofu Landspítalans, lengst sem yfirhjúkrunarkona, til ársins 1982.
Var áður vinnukona í norska sendiráðinu í Reykjavík og í Noregi og Þýskalandi hjá norsku söngkonunni Ericu Darboe.Giftist ekki. Bjó lengi með Vilborgu (Minnie) Ólafsdóttur (1917-1978) að Blómvallagötu 13 í Reykjavík.
Heimildir: Morgunblaðið, 12 sept. 1997, s. 39. Púlsinn, október 1994, s. 7-8.
- Varðveislusaga:
Gögnin komu úr dánarbúi Katrínar að Blómvallagötu 13 í Reykjavík.
- Um afhendingu:
Gögnin bárust um hendur Hrefnu Clausen 12 ágúst 2014 (Katrín var afasystir Hrefnu
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Safnið hefur að geyma fimm öskjur og innihalda þær bréf til Katrínar, minnisbækur og vasabækur ásamt kortum af ýmsu tagi
- Grisjun:
Nokkuð var grisjað af póstkortum og jólakortum
- Viðbætur:
Ekki er von á viðbótum
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd.
- Tungumál:
Íslenska
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Auður Styrkársdóttir skrifaði lýsingu í október 2014. Emma Björk Hjálmarsdóttir hreinsaði hefti, slétti úr skjölum og bætti við upplýsingum í ágúst 2020.
- Dagsetning lýsingar:
október 2014
Skjalaskrá
Askja 1:
Bréf til Katrínar. Bréfritarar:
- Dísa (Herdís Matthewman), Derby, Englandi (1987, 1991, 1992, 1982-1993)
- Erla Þorsteinsdóttir frá Lambavatni (1993)
- Inga og Sven Larsen, Billings, Montana (19987, 1993)
- Marit Teisen, Damörk (1986, 1989)
- Margot Frost, Breslau (1930, 1931)
- Robert Traustason (Tobbi), Tokyo (1995)
- Ruth og Finn Teisen, Danmörk (1983, 1984)
- Minnie (Vilborg Ólafsdóttir) (1956)
- Þóra, Osló (1958)
- Ýmsir
Askja 2:
- Örk nr.1: Um Katrínu (m.a. ljósrit af minningargreinum).
- Útfararskrá.
- Viðtal við Katrínu í Púlsinum, 1994.
- Afrit af viðtalinu sem birtist í Púlsinum.
- Ljósrit af minningargreinum.
- 19. júní frá 1956. Viðtal við Katrínu á bls. 3.
- Símskeyti frá Ölmu og Hjalta Þórarinsson. 1968.
- Símskeyti frá Kristíni Bogadóttir, 1968.
- Símskeyti frá Ella, 1968.
- Tvær svarthvítar ljósmyndir.
- Farþegalisti í Miðevrópuferð 21. ágúst, vantar ártal.
- Farþegalisti yfir Páskaferð, 4. apríl 1968.
- Farþegalisti yfir Þýskalandsferð, 21. ágúst 1985.
- Minnispunktar.
- Úrklippa, minningarorð um Vilborgu Ólafsd.
- Örk nr. 2: Símskeyti á 60 ára afmæli Minniar (Vilborg Ólafsdóttur)
- Örk nr. 3: Símskeyti á 80 ára afmæli Katrínar Gísladóttur
- Græn blómamappa: Bréf til Þóru, sent 22. ágúst, 1980.
- Bréf til Ingu, sent 7. maí 1978.
- Bréf til Marit, sent 10. desember. Vantar ártal.
- Kort sent í tilefni 93. ára afmælis Katrínar[?].
- Örk nr. 4, Bréf til Hrefnu Gunnarsdóttur:
- Bréf frá Gunnari Þorsteinssyni, 31. október 1990. Fylgir með umslag með bogfimi-frímerki.
- Ljósmynd af barni í umslagi.
- Kort til Þorsteins Þorsteinssonar, með fylgir ljósmynd.
- Örk nr. 5, Halldóra Sigríður Árnadóttir (1909-1993), æviágrip.
- Örk nr. 6, Bréf til Minnie Ólafsdóttur:
- Umslag með fjórum ljósmyndum og bréfi. Stílað á Minnie Ólafsdóttir, frá 17. janúar 1975.
- Sendandi Marit Björnstad.
- Fermingarvottorð frá árinu 1931, Vilborg Ólafsdóttir.
- Bréf frá Marit Björnstad, 30. nóvember 1976. Í umslaginu fylgdi servíetta merkt
- Elverdamskroen
- Örk nr. 7, Gögn varðandi sumarhús hjúkrunarkvenna (m.a. afrit af bréfi til sakadómarans í Reykjavík 1940). Kvittanir, nótur, rafmagnsreikningar og fleira.
Askja 3:
- Sænsk stílabók, merkt Minnie Ólafs (aðeins nokkrar pennateikningar)
- „Píslarþankar hljóðandi um þá ena fyrri og síðari herleiðingu ens eðla dánumanns Ólafs Friðrikssonar“ diktaðir af Jónatan Pálssyni, revisor m.m. Frá árinu 1912.
- Nýja testamentið og sálmarnir, áritað til Vilborgar Ólafsdóttur frá fermingarföður
- Lítil minnisbók með dagatali o.fl. frá Sjálfstæðisflokknum, 1946
- Skólaminningabók merkt Minnie Ólafsdóttur, frá Reykholti 1932-33.
- Gestabók (1974-1987)
- Skilti með nafni Katrínar Gíslad. og Minnie Ólafsd.
- Vegabréf Katrínar Gíslad. frá árinu 1946.
- Gestabók úr eftirkaffi eftir útför Katrínar Gísladóttur á Hótel Sögu, 12 sept. 1997.
Askja 4: Minnisbækur, vasabækur
- Lítil minnisbók með almanaki, frá árinu 1978.
- Minnisblokk.
- Adressubók.
- Dagbók með almanaki frá árinu 1969, Happdrætti Háskóla Íslands.
- Minnisbók frá árinu 1967.
- Lítil minnisblokk merkt Katríni Gíslad.
- Lítil minnisblokk, köflótt mynstur frá árinu 1973.
- Minnisbókin frá árinu 1988.
- Minnisbókin frá árinu 1973.
- Stór línurituð skrifblokk.
- Eitt stakt ómerkt umslag.
- Dagbók ársins 1960.
- Vasadagbók frá árinu 1984 merkt Verzlunarfélagi Reykjavíkur.
- Lítil vasabók, 1975.
- Minnisbókin, 1976.
- Vasabók, 1978.
- Vasabók með íslenzk ensku orðasafni frá árinu 1977.
- Vasadagbók frá árinu 1962.
- Vasabók frá árinu 1980.
- Vasadagbók frá árinu 1974.
- Vasabók með almanaki frá 1940.
Askja 5: Kort; póstkort og jólakort. Grisjað
- Jólakort frá 1964, 1967, 1968, 1975, 1976, 1977, 1981, 1991, 1992, 1993.
- Póstkort frá 1973, 1977, 1978, 1981, 1982, 1983, 1987, 1996, 1991, 1992 og mörg ódagsett.
- Þakkarkort frá fjölmörgum brúðhjónum.
- Þakkarkort frá aðstandendum.
- Í sér örk: ýmsar úrklippur úr dagblöðum.