Safnmark: KSS 2017/10
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 2017/10
- Titill:
Kolfinna Gerður Pálsdóttir
- Tímabil:
1938-1967
- Umfang:
Fimm öskjur; 14 handskrifaðar vinnubækur, 3 vélritaðar vinnubækur auk viðbótar
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2017/10. Kolfinna Gerður Pálsdóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Kolfinna Gerður Pálsdóttir (1924–2020), húsmæðrakennari
- Lífshlaup og æviatriði:
Kolfinna Gerður Pálsdóttir er fædd 12. ágúst 1924. Hún er húsmæðrakennari. Kolfinna útskrifaðist úr Húsmæðrakennaraskólanum árið 1946. Hún lést í ágúst árið 2020.
Heimild: Tíminn, 1. júní 1946, bls. 1. Fréttablaðið 15. ágúst 2020, bls. 27.
- Varðveislusaga:
Úr fórum ættmenna.
- Um afhendingu:
Dóttir Kolfinnu, Anna Friðriksdóttir, afhenti Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni efni móður sinnar. Óprentað efni verður varðveitt á Kvennasögusafni. Það efni kom á Kvennasögusafn 25. september 2017. Prentað efni og bæklingar fara til Íslandssafn. Listi yfir allt efni fylgdi afhendingunni.
Viðbætur komu seinna sama ár og eru í öskju 5.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Safnið inniheldur handskrifaðar og vélritaðar vinnubækur úr Hússtjórnarskóla Íslands frá Kolfinnu Gerði Pálsdóttir sem og handskrifaðra vinnubóka annarra aðila.
- Viðbætur:
Viðbætur bættust við skömmu eftir skráningu og voru skráðar sem flokkur C og settar í öskju 5.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Rakel Adolphsdóttir skráði 26. september 2017. Viðbætur komu seinna sama ár og eru í öskju 5, þær voru skráðar í maí 2019.
- Dagsetning lýsingar:
26. september 2017
Skjalaskrá
A Handskrifaðar vinnubækur
B Vélritaðar vinnubækur
C Viðbætur
askja 1
A Handskrifaðar vinnubækur
- Vinnubók: Hreingerningar, háttvísi og fleira. Gerður Pálsdóttir. [Ártal óvíst, 5 laus blöð inn í bókinni]
- Vinnubók: Þvottur og Ræsting. Guðríður Eiríksdóttir. H.S.L.
- Vinnubók: Gerður Pálsdóttir. H.K.Í.
- Vinnubók: Hjúkrun í heimahúsum og hjálp í viðlögum. Kolfinna Gerður Pálsdóttir. [30 laus blöð inn í bókinni]
- Vinnubók: Sýningarkennsla 1945. [10 laus blöð inn í bókinni]
askja 2
- Vinnubók: Frá fyrstu kennsluárunum á Laugavatni. Gerður Pálsdóttir. [Aðallega uppskriftir. Vísa aftast.]
- Vinubók: Uppskriftir
- Vinnubók: Í eðlisfræði. Hólmfríður Hólmgeirsdóttir. Uppskriftir í seinni hluta bókarinnar úr matreiðslu úr Barnaskóla Akureyrar 1938-1939.
- Vinnubók: Laugalandsskóli. Ester Þorsteinsdóttir. 1966-1967. [Líklega heimilisfræði]
askja 3
- Vinnubók: Kolfinna Gerður Pálsdóttir. Húsmæðrakennaraskóli Íslands að Laugarvatni 1945.
- Vinnubók: Matseðill í Húsmæðraskóla Reykjavíkur heimagöngu veturinn 1943 16. sept til 22. nóv.
- Vinnubók: Uppskriftir [3 laus blöð í bókinni, auk eins vorprófs í manneldisfræði, höf: Þóra Guðmundsdóttir]
askja 4
- Vinnubók: Sýningarkennsla H.K.Í. 1946
- Vinnubók: Gerður Pálsdóttir. Húsmæðrakennaraskóli Íslands. Uppskriftir.
B Vélritaðar vinnubækur
- Sláturstörf [3 eintök]
- Uppskriftir og fleira. Sýnikennslunámskeið. Kennari: Rannveig Kristjánsdóttir. 1943.
- Lýsing á máli Natans Ketilssonar, Agnesar Magnúsdóttur og Friðriks Sigurðssonar. Frá Ragnheiði Viggósdóttur [stimplað Bandalag kvenna í Reykjavík aftan á]
askja 5
C Viðbætur
- Mataruppskriftir frá Kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1940-41, Guðbjörg Hermannsdóttir, Húsavík
- Guðbjörg Sveinsdóttir (f. 1896) – Uppskrifuð matreiðslubók eftir handskrifaðri matreiðslubók hennar frá 1916 – Í umslagi inn í bókinni er upprunalega bókin
- Guðrún Þórðardóttir, Brekkubæ Akranesi – Handskrifuð matreiðslubók 1912 [nokkrir lausir miðar inn í bók]
- Ljósrit – „Ýmislegt þýtt úr dönsku“ Ársrit Húnvetninga
- Ljósrit – Réttir úr manneldisfiskmjölinu fiskur, fiska og fisk