Safnmark: KSS 42
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 42
- Titill:
Kristín Sigfúsdóttir (1876-1953)
- Tímabil:
1920-1950
- Umfang:
Tvær öskjur
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 42. Kristín Sigfúsdóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Kristín Sigfúsdóttir (1876-1953)
- Lífshlaup og æviatriði:
Fæddist að Helgastöðum í Saurbæjarhreppi 13. júlí 1876, d. á Akureyri 28. sept. 1953.
For.: Sigfús Hansson, bóndi, og kona hans Guðrún Jónsdóttir frá Helgastöðum.
Giftist 1901 Pálma Jóhannessyni. Bjuggu að Helgastöðum og Kálfagerði og frá 1930 á Akureyri.
Eignuðust sex börn: Hólmgeir (f. 1903), Sigrúnu (f. 1907), Hannes (f. 1909), Jakobínu (f. 1912), Jóhannes (f. 1914) og Guðrúnu (f.1917). Einnig ólu þau hjónin upp Lilju Jónsdóttur.Sjá nánar um feril Kristínar á vefnum skald.is.
- Varðveislusaga:
Guðrún Pálmadóttir, dóttir Kristínar Sigfúsdóttur, Lilja Jónsdóttir, uppeldisdóttir Kristínar, og dr. Sigrún Klara Hannesdóttir afhentu gögn þessi Kvennasögusafni Íslands 29 ágúst 1994, sbr. Gjafabók 3 (svört). Hinn 10 des. 1996 barst safninu: frásögn Aðalsteins Ólafssonar, ýmislegt um Kristínu, lýsingar á aðstæðum Kristínar til skáldskapar og kvæði ofl.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Tvær öskjur. Safnið hefur að geyma sendibréf til Kristínar Sigfúsdóttur og handrit að sögum hennar auk annarra persónulegra gagna.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Safnið er opið
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Skjölin komu í pappakassa. Auður Styrkársdóttir endurraðaði árið 2011. Hún skrifaði lýsingu í nóvember 2011. Rakel Adolphsdóttir uppfærði skráningu á innihaldi í maí 2020.
- Dagsetning lýsingar:
nóvember 2011
Skjalaskrá
A Handrit
B Bréf
C Annað
Askja 1:
A Handrit
- Kveðjur. Ljóð 1927-1932. Handskrifuð
- Viðhorf ellinnar. Smásaga. Handskrifuð
- Ljóð. Bók með handskrifuðum ljóðum, 192 bls. Skrifað upp af syni Kristínar
- Stjúpan. Leikur í 5 þáttum. Handskrifað
- Melkorka. Sjónleikur í 5 þáttum. Vélritað
• Hestar og menn. Handrit - Vorleysing. Smásaga, handskrifuð og vélrituð
Uppskriftir af kvæðum frá Kristínu til ýmissa aðila sem og til Kristínar frá ýmsum
Askja 2:
B Bréf
BA Bréf frá Kristínu
- Bréf Kristínar Sigfúsdóttur til sonar síns. Skrifuð á árunum 1936-1943
- Bréf Kristínar Sigfúsdóttur til sonar síns. Skrifuð á árunum 1944-1950
- Bréf (1) Kristínar Sigfúsdóttur til Ingibjargar Benediktsdóttur 1929
BB Bréf til Kristínar:
- Carl Roos, Kaupmannahöfn 4. janúar 1950 [á dönsku]
- Charlotte Edelstein, Reykjavík 2. júní 1951
- Einar Thorlacius (4),
- Reykjavík 16. mars 1944, 17. mars 1944, 9. okt. 1944, 19. mars 1945
- Gunnar Benediktsson, Ásbjarnarstöðum 31. júlí 1951
- Haraldur Björnsson, Reykjavík 3. júlí 1944
- Ingibjörg Benediktsdóttir (4),
- Reykjavík 11. apríl 1939, Reykjavík 4. maí 1944, Akureyri 22. okt. 1944, Reykjavík 14. des. 1944
- Ísafoldarprentsmiðja (3),
- Reykjavík 12. feb. 1945, 30. apríl 1945, 3. sept 1945,
- Lárus Pálsson, Reykjavík 5. mars 1942
- Leikfélag Reykjavíkur, Reykjavík 30. sept. 1946
- Pálmi Jósepsson, Reykjavík 13. ágúst 1947
- Steingrímur J. Þorsteinsson (4),
- Reykjavík 3. maí 1940, 9. júní 1940, 15. feb. 1942, 16. júlí 1950
C Annað
- Lýsing á vinnuaðstöðu Kristínar; hvernig hún orti. Ritað árið 1969 af Jakobínu Pálmadóttur og Lilju Jónsdóttur
- Ýmsar minningar um Kristínu
- Frásögn Aðalsteins Ólafssonar frá Melgerði, eftir beiðni Laufeyjar Sigurðardóttur frá Torfufelli, um Kristínu Sigfúsdóttur
- Ljósrit af heiðursfélagaskjali Kristínar í Sambandi norðlenskra kvenna og Ljósrit af frumdrögum skipulagsskrár fyrir Kristínarsjóð
- Spjöld um leikrit
- Leikskrá: Melkorka, sögulegt leikrit í fimm þáttum, Leikfélagið Iðunn Hrafnagilshreppi