Safnmark: KSS 17
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 17
- Titill:
Kvenfélag Sósíalista
- Tímabil:
1939-1992
- Umfang:
13 öskjur
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 17. Kvenfélag sósíalista. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Kvenfélag Sósíalista (1939-1992)
- Lífshlaup og æviatriði:
Kvenfélag Sósíalista var stofnað 30. mars 1939. Það var lagt niður árið 1992. Árið 1946 var gerð sú breyting á félaginu þátttaka ekki bundin því að vera félagi í Sósíalistaflokknum. Nánar má lesa um félagið í bók Sigríðar Th. Erlendsdóttur, Margar hlýjar hendur (1981), bls. 204-205.
- Varðveislusaga:
Úr fórum Kvenfélags Sósíalista. Stjórn félagsins var eftirfarandi árið 1992: Elín Guðmundsdóttir, Bergljót Stefánsdóttir, Erla Ísleifsdóttir, Lilja Kristjánsdóttir, Sigríður Friðriksdóttir, Helga Rafnsdóttir.
- Um afhendingu:
Afhent Kvennasögusafni í nóvember 1992 þegar félagið var lagt niður.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
13 öskjur
- Grisjun:
Pelikan stimpilbleki/stimpilpúði var grisjaður 31. maí 2019, hafði verið geymdur óskráður í kassa með öðrum munum (nú askja 13)
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Safnið er opið
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Tengt efni
- Tengt efni:
KSS 4 Anna Sigurðardóttir. Einkaskjalasafn. (Anna hélt stundum ræður á fundum Kvenfélags Sósíalista, uppskrift af sumum þeirra má finna í safni hennar).
KSS 75 Elín Guðmundsdóttir. Einkaskjalasafn.
KSS 2017/7 Elín Guðmundsdóttir. Einkaskjalasfn.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Rakel Adolphsdóttir tók saman lýsandi samantekt og endurraðaði safninu í skjalaflokka í maí 2017.
- Dagsetning lýsingar:
23. maí 2017
Skjalaskrá
Safninu er skipt í eftirfarandi flokka:
A Bækur: Fundargerðir, sjóðsbækur og félagatal (öskjur 1-5)
B Almenn starfsemi (askja 6)
C Þing og ráðstefnur (askja 7)
D Önnur kvenfélagasamtök (öskjur 8-9)
E Sjóðir og fjáraflanir (öskjur 10-11)
F Prentað efni (askja 12)
G Munir (askja 13)
A Bækur: Fundargerðir, sjóðsbækur og félagatal
Askja 1
AA Fundargerðarbækur
- Fundargerðabók 1: 1939-1951
- Fundargerðabók 2: 1952-1959
- Fundargerðabók 3: 1959-1969
Askja 2
- Fundargerðabók 4: 1969-1982
- Fundargerðarbók stjórnar: 1954-1965
- Fundargerðarbók stjórnar: 1965-1992
- Fundarboð: 1946, 1947, 1948, 1949, 1950, 1970, 1971, 1973, 1974, 1982, ódagsett [20 blöð]
Askja 3
AB Sjóðsbækur og reikningar
- Fylgiskjöl/reikningar 1946-1982
Askja 4
- Sjóðbók (félagsgjöld o.fl.) 1946-1992
AC Félagatal
- Félagatal, bók 1
Askja 5
- Félagatal, bók 2
- Félagatal, vélritaður listi, ártal óvíst
- Félagatal, kvennatal Sósíalistafélags Reykjavíkur, ártal óvíst
- Úrsagnir 1969
- Inntökubeiðnir 1969
Askja 6 – mjó
B Almenn starfsemi
- Afmæli Kvenfélags Sósíalista 10 ára, dagskrá, 1949
- Afmæli Kvenfélags Sósíalista 25 ára, úrklippur og skeyti, 1964
- Afmæli Kvenfélags Sósíalista 30 ára, dagskrá og skeyti og þátttökutal, 1969
- Sagan, skrifuð af Elínu Guðmundsdóttur 1982
- Kvennasögusafn Íslands, bréf og fjáröflun o.fl. [ath. sumt varðveitt á Kvss. fyrir afhendingu og svo sameinað einkaskjalasafni Kvenfélags sósíalista eftir afhendingu], 1975-1992
- Bréf og bréfspjöld
- Tillögur kvennanefndar miðstjórnar og Sósíalistafélags Reykjavíkur [líklega 1947]
- Norges komunistiske parti, Kvennautvalget, Oslo 30. januar 1947
- 7. fundur Sósialistaflokks – Sameingarflokks alþýðu, fundarskjöl 1949
Askja 7
C Þing og ráðstefnur
- Heimsþing kvenna í Kaupmannahöfn 1953
- Heimsþing kvenna í Kaupmannahöfn 1953, frh.
- Heimsþing kvenna í Helsinki 1969
- Kvennaráðstefna Eystrasaltsríkja 1987
Askja 8
D Önnur kvenfélagasamtök
Ýmis gögn, aðallega aðsend. M.a. frá Bandalagi kvenna í Reykjavík og KÍ. Tilkynningar um fundi og ráðstefnur o.fl. tengt störfum Bandalags kvenna og KÍ. Má grisja síðar á viðeigandi staði.
Í örkum eru:
- Samtök um Kvennaathvarf
- Friðarhreyfing kvenna
- Nokkur fundarboð frá Kvenfélagasambandi Íslands
- Fundarboð o.fl. frá Bandalagi kvenna, aðallega frá 1982 og 1983
Askja 9
Ýmis gögn, m.a. bréf frá sömu félögum og nefnd eru í öskju 8.
T.d. afrit bréfs til stjórnar og þjóða Sovétríkjanna þar sem Kvenfélag Sósíalista, Þvottakvennafélagið Freyja og Húsmæðradeild MÍR votta samúð vegna andláts Stalíns.
E Sjóðir og fjáraflanir
Askja 10
EA Carólínusjóður / Karólínusjóður, stofnaður 1949:
- Efnahagsbók 1964-1974
- Fundargerðabók Karólínusjóðsstjórnar 1963-1969
- maí kaffisala 1966-1968
- maí kaffi 1969-71
- maí kaffi 1972-75. Heimsþing kvenna 1975.
- Reglugerð Karólínusjóðs 1949 og 1963. Skipulagsskrá sömu ár, þakkarbréf
Askja 11
EB Sovétsöfnun 1945
- Ýmis gögn varðandi söfnunina
- Þakkarbréf frá Sovétríkjunum
EC Þjóðviljinn
- Fjöldi hlutabréfa í Þjóðviljanum, u.þ.b. 20.000kr samtals
Askja 12
F Prentað efni
Dreifibréf
Tímarit
Skýrslur
Askja 13
G Munir
- Slidesmyndir og skýringartextar. Frá Deutsch – Nordisch Gesellschaft
- Útskorin gestabók. Aðeins notuð við tvö tækifæri
- Fundarhamar, útskorinn. Gjöf á 25 ára afmæli félagsins
- Tveir stimplar með nafni félagsins
- Bjalla til notkunar á fundum. Grafið í hana KS 31. 7. ‘61