Safnmark: KSS 178
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Kvennasögusafn Íslands
- Safnmark:
KSS 178
- Titill:
Laufey Björg Magnúsdóttir Engilberts
- Tímabil:
1956
- Umfang:
Ein askja, þunn.
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 179. Laufey Björg Magnúsdóttir Engilberts. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Laufey Björg Magnúsdóttir Engilberts (1908-1996)
- Lífshlaup og æviatriði:
Laufey Björg Magnúsdóttir Engilberts fæddist í Reykjavík 26. júlí 1908. Hún lést 9. apríl síðastliðinn. Laufey var dóttir Margrétar Magnúsdóttur frá Horni i Skorradal og Magnúsar Magnússonar frá Beitistöðum í Leirársveit, verkamanns í Reykjavík. Systkini Laufeyjar voru Magnea Ingileif húsfreyja, 1905-1958, Þórunn Elfa rithöfundur, 1910-1995, og Gunnar Aðalsteinn, klæðskeri og kaupmaður, 1913-1990. Árið 1944 giftist hún Grími Alfreð Engilberts Sigurjónssyni, prentara og síðar ritstjóra Æskunnar, 1912-1988, og eignuðust þau soninn Sigurjón Birgi. Útför Laufeyjar hefur farið fram í kyrrþey.
Var í Kvenfélagi sósíalista og Prentarakvennafélaginu Eddu – og í stjórn beggja um tíma.
Bjó lengi á Njálsgötu.
Heimild: Morgunblaðið 19. apríl 1996: https://timarit.is/page/1852207?iabr=on
- Um afhendingu:
3. maí 1984 Laufey Magnúsdóttir Engilberts gaf plögg og bréf frá Japan m.a. frá konu í Esperantófélaginu þar í landi – eru a.m.k. minni esperanto safnsins Laufey undirskriftum að bréfi gegn kjarnorku og irefnisprengjum sjá þakkarbréfið.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska, esperanto, japanska
Tengt efni
- Tengt efni:
Kvennasögusafn:
KSS 17. Kvenfélag sósíalista.
KSS 188. Prentarakvennafélagið Edda.
Handritasafn: Lbs 811 NF Grímur og Laufey Engilberts (sjö öskjur)
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Rakel Adolphsdóttir vann lýsandi samantekt og setti á safnmark, nóvember 2025.
Skjölin voru áður skráð í öskju með samtíminingi.
- Reglur eða aðferð:
Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum
- Dagsetning lýsingar:
21. nóvember 2025
Skjalaskrá
Nokkur bréf og kort: japan, esperanto, kjarnorka, Þorsteinn Finnbjarnarson, Esperantófélag kvenna Japan, 1956