Safnmark: KSS 2017/4
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 2017/4
- Titill:
„Lengi býr að fyrstu gerð. Tónlistar-arfur frá Kirkjuhvoli.“ Sýning 2015.
- Tímabil:
2015–2017
- Umfang:
Ein stór askja.
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2017/4. „Lengi býr að fyrstu gerð. Tónlistar-arfur frá Kirkjuhvoli.“ Sýning 2015. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Kirstín Pétursdóttir Guðjohnsen (1850-1940)
Valgerður Lárusdóttir Briem (1885-1924)
Halldóra Briem (1913-1983)
- Varðveislusaga:
Myndaðist við gerð sýningarinnar „Lengi býr að fyrstu gerð. Tónlistar-arfur frá Kirkjuhvoli.“ á Akranesi árið 2015 um konur Briem fjölskyldunnar og tónlistarstarf þeirra. Langmæðgurnar Kirstín, Valgerður og Halldóra. Sýningin var styrkt af sjóði 100 ára kosningarréttar kvenna á Íslandi. Skjölin voru afhent af Valgerði Bergsdóttur fyrir hönd þeirra sem settu upp sýninguna.
- Um afhendingu:
Valgerður Bergsdóttir afhenti 22. febrúar 2017.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Ein stór askja.
- Grisjun:
Engu var eytt.
- Viðbætur:
Ekki er von á viðbótum.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska og danska.
Tengt efni
- Tengt efni:
Meðlimir Briem fjölskyldunnar eiga einkaskjalasöfn m.a. á handritasafni.
Tónlist er varðveitt á tónverkamiðstöð.
Flestar ljósmyndir eru varðveittar á Þjóðminjasafni.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Haustið 2013 gerði Una Margrét Jónsdóttir 6 útvarpsþætti sem fluttir voru á Rás 1 hjá Ríkisútvarpinu undir heitinu „Tónlist í straujárni“. Þeir fjölluðu um fyrstu íslensku kventónskáldin.
Valgerður Bergsdóttir bjó um skjalasafnið, upprunaleg röðun látin halda sér. Rakel Adolphsdóttir skráði.
- Dagsetning lýsingar:
15. nóvember 2017
Skjalaskrá
askja 1
- Greinargerð um sýninguna 2015 [2 bls.]
- Æviatriði fjölskyldunnar [3 bls.]
- Vísur frá Kirstínu Pétursdóttur, ömmu systranna, til þeirra. [1 bls.]
- Listi yfir nótur sem fylgdu afhendingu og upplýsingar um eina ljósmynd [1 bls.] –
- Ljósmynd: Systurnar við píanó á Hvolsvelli. Frá vinstri til hægri: Valgerður, Kirstín, Guðrún, vinkona, Halldóra
- Ljósmynd af hverfinu Klövern 1
- Texti af sýningu: Halldóra Briem vann 1. Veðrlaun í samkeppni Arkitektasambandsins SAR um fjölbýlishúshverfið Klövern, sem var svo byggt 1951. Árið 1985 var hverfið friðlýst vegna menningar- og byggingarsögulegs gildis.
- Ljósmynd af hverfinu Klövern 2
- Ritgerð / sýningarbæklingur: Lengi býr að fyrstu gerð. Tónlist – Kirkjuhvoli.
- Ljósmyndir af sýningu
- Ljósmyndir og texti af sýningu
- Ljósmyndir og texti af sýningu
- Ljósmyndir og texti af sýningu
- Ljósmynd af sýningu: Ljóð Halldóru sem var flutt við útför hennar sjálfrar, frumsamið á dönsku, þýðing: Steinunn Jóhannsdóttir.
- Ljósmynd af sýningu
- Nótur af sýningu: Kirstín Pétursdóttir (1850–1940): Fjögur lög til systranna, sjá texta meðfylgjandi, vögguvís. Valgerður Lárusdóttir (1885–1924): Vormæturhéla, Hulduljóð, Mansöngur. Halldór Lárusson (1881–1903, bróðir Valgerðar): Litla stúlkan mín. Halldóra Briem (1913–1983): Við leiði minnar móður, Til horfinna vina, María laglína við ljóð eftir Jón Helgason, Laglína við ljóð eftir Hannes Pétursdóttir, Móðir sem dó ung, Bjöllurnar gullu.