Safnmark: KSS 137
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 137
- Titill:
Margrét Guðmundsdóttir
- Tímabil:
1910–1916
- Umfang:
Ein askja
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 137. Margrét Guðmundsdóttir. Bréfasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Margrét Guðmundsdóttir (1834–1919)
- Lífshlaup og æviatriði:
Fædd 2. maí 1834, dáin 19. júní 1919. Bjó á Hrísnesi, Barðaströnd, Vestur-Barðastrandarsýslu. Gift Þórólfi Einarssyni bónda. Átti soninn Sigurð Þórólfsson (1869–1929) sem var faðir Önnu Sigurðardóttur, stofnanda Kvennasögusafns.
Eftirfarandi texti fylgdi afhendingu bréfanna: „Minning móðurömmu minnar, Guðrúnar Guðmundsdóttur ættuð af Seltjarnarnesi, hefir fengið rúm í hefti af Æviminningabók Menningar- og minningarsjóðs kvenna. Föðuramma mín af Barðaströnd verður líka að fá þar inni. Hún hét Margrét Guðmundsdóttir. Ég sá hana aldrei, en ég hefi kynnst henni dálítið af bréfunum sem hún skrifaði föður mínum.
Bréfin sem ekki hafa glatast eru frá árunum 1910 til 1916. Vegna þess að amma minntist oft á ömmur sínar báðar og móður sína einnig, verður þessi grein einnig um þær. Reyndar segir amma margt frá föður sínum og afa, sem hún dáir mikið. Móðuramma ömmu minnar hét Þóra Eyjólfsdóttir, prests Sturlusonar á Brjánslæk, og maddömu Ragnheiðar Vigfúsdóttur“
- Varðveislusaga:
Óvíst
- Um afhendingu:
Óvíst
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Bréf, 27 bréf með dagsetningu auk bréfa án dagsetningar sem eru samtals 13 blöð.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Tengt efni
- Tengt efni:
Minningagrein um Margréti má finna í safni KSS 4. Anna Sigurðardóttir.
KSS 43. Ásdís Margrét Þorgrímsdóttir. Einkaskjalasafn.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Var áður í öskju 172. Rakel Adolphsdóttir setti á KSS númer og skráði í mars 2019. Bréfin voru notuð við gerð bókarinnar Vinna kvenna í 1100 ár eftir Önnu Sigurðardóttur.
- Dagsetning lýsingar:
6. mars 2019
Skjalaskrá
askja 1
Bréf, frá Margréti til sonar hennar Sigurðar Þórólfssonar, öll skrifuð á Hrísnesi.
- 14. febrúar 1910
- 5. apríl 1910
- 5. júlí 1910
- Fyrsta vetrardag 1910
- 28. desember 1910
- 5. apríl 1911
- 22. maí 1911
- 28. júlí 1911
- 11. apríl 1912
- 12. júní 1912
- 8. september 1912
- 2. október 1912
- 8. desember 1912
- 18. maí 1913
- 12. október 1913
- 1. september 1913
- 22. desember 1913
- 10. febrúar 1914
- 20. mars 1914
- 15. júní 1914
- 22. ágúst 1914
- 12. janúar 1915
- 5. apríl 1915
- 8. júlí 1915
- 12. febrúar 1916
- 10. mars 1916
- 20. júlí 1916
- Bréf sem vantar dagsetningar, 13 blöð