Safnmark: KSS 2022/9
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Kvennasögusafn Íslands
- Safnmark:
KSS 2022/9
- Titill:
María Finnsdóttir
- Tímabil:
1979-2006
- Umfang:
Tvær öskjur: Námsritgerðir, gestabækur, jólakort, uppskriftabók, ljósmyndir og fleira.
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2022/9. María Finnsdóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
María Finnsdóttir (1922-2017), forstöðukona og hjúkrunarfræðingur.
- Lífshlaup og æviatriði:
María Finnsdóttir hjúkrunarfræðingur var fædd hinn 18. ágúst 1922 á Hvilft í Önundarfirði. „Foreldar hennar voru Finnur Finnsson bóndi og Guðlaug Jakobína Sveinsdóttir húsmóðir. Systkini Maríu voru Sveinbjörn, Ragnheiður, Hjálmar, Sigríður, Jakob, Sveinn, Jóhann, Málfríður, Kristín og Gunnlaugur.
María lauk gagnfræðaprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1943 og lauk námi við Hjúkrunarskóla Íslands 1952. Hún stundaði framhaldsnám í Bandaríkjunum, Danmörku og Englandi. Þá stundaði hún nám við Háskóla Íslands, félagsvísindadeild, árin 1982-1984.
María var deildarhjúkrunarkona á Landspítalanum 1954-1963, kennari við Hjúkrunarskóla Íslands 1960-1963, forstöðukona á Kleppi 1963-1969, kennari við Háskóla Íslands, námsbraut í hjúkrunarfræði 1975-1976 og fræðslustjóri Hjúkrunarfélags Íslands 1979-1992. Eftir Maríu liggja allmargar greinar og ritgerðir um hjúkrun.
Maríu var margvíslegur sómi sýndur fyrir störf sín. Hún varð heiðursfélagi í Hjúkrunarfélagi Íslands árið 2003 og átti sæti í stjórn félagsins árin 1963-1971.“
Heimild: Morgunblaðið 4. febrúar 2017: https://www.mbl.is/frettir/innlent/2017/02/04/andlat_maria_finnsdottir/
- Um afhendingu:
María Gunnlaugsdóttir (f. 1956) gaf Kvennasögusafni skjöl föðursystur sinni þann 11. ágúst 2022.
Aðrar ljósmyndir Maríu Finnsdóttur fóru á Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
íslenska, enska
Tengt efni
- Tengt efni:
Um lýsinguna
- Dagsetning lýsingar:
Rakel Adolphsdóttir skráði 6. nóvember 2024
Skjalaskrá
askja 1
- Uppskriftir, bók, handskrifaðar
- Upplýsingar um Skrúð
- Jólakort, ljósmyndir fylgja sumum:
- Margrét Hróbjartsdóttir, hjúkrunarfræðingur og kristniboði
- Davíð (sonur Sigríðar), búsettur í Bandaríkjunum
- Guðný Hallgrímsdóttir prestur
- Vegabréf tvö, síður með ljósmyndum (útgefin 1987 og 1998)
- Útför Maríu: samúðarskeyti, kort, skrá
- Útför Maríu: Minningabók (gestabók í erfidrykkju)
- Systurnar María, Málfríður og Sigríður, sigling um karabíska hafið, ljósmyndir
- Ljósmyndir: Fjölskyldumynd, hjúkrunarfélagið / Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, trjárækt í Önundarfirði
askja 2
- Gestabók, útskorin úr tré
- Gestabók 1992-1996
- Skírteini: Heiðursfélagið, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, 1993
- María Finnsdóttir, Börnin á sjúkrahúsi – sálræn áhrif sjúkarhúsvistar á ung börn, 1979 (byggt á BA ritgerð)
- Í möppu, tvær ritgerðir Maríu:
- Fræðsla hjúkrunarfræðinga til ungra barna og foreldra þeirra á sjúkrahúsum í Reykjavík
- Nurses role in teaching children and their parents in Reykjavík hospitals