Safnmark: KSS 2017/2
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands
- Safnmark:
KSS 2017/2
- Titill:
María Hugrún Ólafsdóttir
- Tímabil:
1952-2016
- Umfang:
Tvær öskjur
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2017/2. María Hugrún Ólafsdóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
María Hugrún Ólafsdóttir (1921–1979), myndlistarkona
- Lífshlaup og æviatriði:
María Hugrún Ólafsdóttir myndlistarkona var fædd á Tálknafirði 6. maí 1921 og bjó á Vindheimum ásamt foreldrum sínum og 14 systkinum, en hún var sú tólfta í röðinni. Tíu ára fór hún til Reykjavíkur og hóf sína fyrstu formlegu skólagöngu í Miðbæjarskólanum. Síðar stundaði hún nám í Handíðaskólanum í Reykjavík 1941-1943, Konunglegu listaakademíunni í Kaupmannahöfn 1946-1952 og fór í námsferðir til Hollands og Parísar.
.
María tók þátt í fjölda samsýninga á Íslandi, í Þýskalandi og Danmörku ásamt því að taka þátt í árlegri sýningu „SE“ hópsins í Charlottenborg í 28 ár. Þess að auki hélt hún tvær einkasýningar í Norræna húsinu árin 1973 og 1976. Verk Maríu eru meðal annars í eigu Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Íslands, Menntamálaráði, Skógasafnsins, Statens Museum for Kunst og Undervisningsministeriet. Þá hlaut María heiðursstyrki frá Ekersberg-Thorvaldsensfond, Statens Kunstfond, Anne E. Munch, Dansk-Islandsk fond og Menntamálaráði.
.
María átti lengst af heima í Kaupmannahöfn. Hún kvæntist Alfred Immanuel Jensen (1917-2006) myndlistarmanni árið 1952. Þau áttu tvær dætur saman; Jóhönnu Maríu og Valdísi Elísabetu. Fyrir átti María soninn Vilhjálm. María lést í Kaupmannahöfn árið 1979.
.
[Heimildir: Lífsferill Maríu Hugrúnar ritaður af Helgu Hjörvar og fylgdi með afhendingu. In memorian í Morgunblaðinu 19. september 1979, bls. 29.]
- Varðveislusaga:
Úr fórum ættmenna. Barst um hendur Helgu Hjörvar.
- Um afhendingu:
Helga Hjörvar afhenti gögnin 7. febrúar 2017
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Tvær öskjur sem innihalda m.a. lista yfir sýningar og blaðaumfjallanir, sýningarskrár, ljósrit af nokkrum málverkum og fleira.
- Grisjun:
Engu var eytt.
- Viðbætur:
Viðbóta er ekki von.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska og danska.
Tengt efni
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Rakel Adolphsdóttir skráði.
- Dagsetning lýsingar:
30. ágúst 2017
Skjalaskrá
A Listferill
B Persónuleg gögn
askja 1
A Listferill
AA Sýningar
AAA Prentaðar sýningaskrár
1-23 Prentaðar skrár frá 1952-1976
AAB Ljósritaðar sýningaskrár
- Frá sýningu í Norræna húsinu 1976 [2 blöð]
- Skrá frá sýningum með Kunstnergruppen SE [13 blöð]
AB Blaðaumfjallanir
- Listi yfir blaðaumfjallanir
- Blaðaumfjallanir, útprent
AC Málverk Maríu, myndir og útprent
AD Listi yfir sýningar Maríu
AE Listi yfir bréfaskrifti vegna fyrirhugaðrar sýningar sem hætt var við [2016]
askja 2
B Persónuleg gögn
BA Æviágrip og minningar um Maríu
- Æviágrip frá Helgu Hjörvar [sem afhenti einkaskjalasafnið 2017]
- Minningar Vilhjálms, sonar Maríu [2016]
- Æviágrip frá Jóhönnu, dóttur Maríu
- Æviágrip frá Jytte A. Möller
BB Gögn Alfreds I. Jensens, eiginmanns Maríu
- Póstkort sem Alfred útbjó 1952-1953
- Bók: Þýðing Alfreds á Tímanum og vatninu eftir Stein Steinarr, kom út árið 1965 í Danmörku
- Æviágrip Alfreds, skrifuð af Jóhönnu dóttur hans og Maríu
- Tvær sýningarskrár
BC Gögn Jóhönnu, dóttur Maríu og Alfreds
- Bók: Eftir Jóhönnu. Gennem lys og skyggner. Familiefotografier fra forrige arhundrede til i dag. Danmörk, 1994.
BD Rafræn gögn
- USB lykill [fylgir í öskju, einnig til í rafrænu afriti]
- Heimildarmynd [einungis rafræn] um Maríu, gerð fyrir danskt sjónvarp af Ole Braunstein, sýnd í Danmörku 1979 og á RÚV 11. nóvember 1979. Myndin sem er varðveitt í einkaskjalasafninu er ekki með hljóði og ekki í lokagerð sinni.