Safnmark: KSS 2021/14
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Kvennasögusafn Íslands
- Safnmark:
KSS 2021/14
- Titill:
María Hugrún Ólafsdóttir og Vilhjálmur Knudsen
- Tímabil:
1944–1972
- Umfang:
Ein askja, 15 arkir.
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2021/14. María Hugrún Ólafsdóttir og Vilhjálmur Knudsen. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
María Hugrún Ólafsdóttir (1921–1979), listmálari
Vilhjálmur Knudsen (1944–2020), kvikmyndagerðarmaður
Ósvaldur Knudsen (1899–1975), málarameistar og kvikmyndagerðarmaður
- Lífshlaup og æviatriði:
María Hugrún Ólafsdóttir myndlistarkona var fædd á Tálknafirði 6. maí 1921. Hún stundaði nám í Handíðaskólanum í Reykjavík 1941–1943, Konunglegu listaakademíunni í Kaupmannahöfn 1946–1952 og fór í námsferðir til Hollands og Parísar.
María tók þátt í fjölda samsýninga á Íslandi, í Þýskalandi og Danmörku ásamt því að taka þátt í árlegri sýningu „SE“ hópsins í Charlottenborg í 28 ár. Þess að auki hélt hún tvær einkasýningar í Norræna húsinu árin 1973 og 1976. Verk Maríu eru meðal annars í eigu Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Íslands, Menntamálaráði, Skógasafnsins, Statens Museum for Kunst og Undervisningsministeriet. Þá hlaut María heiðursstyrki frá Ekersberg-Thorvaldsensfond, Statens Kunstfond, Anne E. Munch, Dansk-Islandsk fond og Menntamálaráði.
María átti lengst af heima í Kaupmannahöfn. Hún kvæntist Alfred Immanuel Jensen (1917-2006) myndlistarmanni árið 1952. Þau áttu tvær dætur saman; Johanne Marie Jensen (f. 1953) og Valdis Elsebet Jensen (f. 1957). Fyrir átti María soninn Vilhjálm. María lést í Kaupmannahöfn árið 1979.
—
Vilhálmur Knudsen var kvikmyndagerðarmaður. Hann fæddist á Bíldudal 14. maí 1944, sonur Ósvaldar Knudsen, málarameistara og kvikmyndagerðarmanns, og Maríu H. Ólafsdóttur listmálara. Á yngri árum dvaldi Vilhjálmur hjá móður sinni í Kaupmannahöfn, en hún fór þangað í listnám og settist þar að. María skrifaði m.a. bók um ferðalag Vilhjálms, Villi fer til Kaupmannahafnar.
Vilhjálmur hóf snemma feril sinn við kvikmyndagerð og var aðeins þrettán ára þegar hann hóf að kvikmynda með föður sínum. Sautján ára gamall hóf Vilhjálmur að sýna kvikmyndir föður síns um land allt á sumrin. Vilhjálmur lauk stúdentsprófi frá MR og hóf síðar nám í kvikmyndagerð í London International Film School.
Eftir heimkomu til Íslands var eitt af fyrstu verkum Vilhjálms að mynda eldgosið í Heimaey ásamt föður sínum. Myndin Eldur í Heimaey var sýnd ásamt fleiri myndum í sal þeirra feðga í Hellusundi, húsi sem faðir hans byggði, samfellt frá árinu 1974. Í Hellusundi ólu hann og Lynn Costello Ryyth, fyrrverandi eiginkona hans, upp þrjú börn, þau Ósvald, Elínu og Vilhjálm. Barnabörnin eru fimm talsins.
Árið 2012 hlaut Vilhjálmur heiðursverðlaun Eddunnar fyrir fralag sitt til kvikmyndagerðar og ómetanlega söfnun og varðveislu heimildarmynda um íslenska náttúru og lifnaðarhætti.
(Heimild: andlátstilkynning Morgunblaðið 23. maí 2020)
- Varðveislusaga:
Úr fórum fjölskyldunnar. Barst um hendur Brynhildar Björnsdóttur, eiginkonu Ósvalds Knudsen (f. 1974).
- Um afhendingu:
Þann 30. ágúst 2021 barst um hendur Brynhildar L. Björnsdóttur (f. 1977) nokkur bréf sem María Hugrún Ólafsdóttir (1921–1979) sendi syni sínum Vilhjálmi (1944–2020) ásamt póstkortum og ljósmyndum þeim mæðginum tengdum. Vilhjálmur var tengdafaðir Brynhildar.
–
Einnig fylgdi afhendingunni nokkur póstkort til Jóhönnu Knudsen frá byrjun 20. aldar en Jóhanna var fyrrum mágkona Maríu. Ákveðið var að setja afhendinguna á sitthvort safnmarkið. [safnmark: KSS 2021/14 (María Hugrún Ólafsdóttir) og KSS 2021/17 (Jóhanna Knudsen)]
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Bréf og bréfspjald til Vilhjálms Knudsen frá mömmu hans Maríu Hugrúnu Ólafsdóttur og systur Johanne, eitt bréfspjald til Ósvalds Knudsen ódagsett og átta ljósmyndir tengd Maríu og Vilhjálmi.
- Frágangur og skipulag:
Safninu er raðað eftir aldri bréfa og bréfspjalda til Vilhjálms (arkir 1-13), næst ljósmyndir (örk 14) og síðast eitt bréfspjald til Ósvalds Knudsen (1899–1975) (örk 15)
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska, danska, enska
Tengt efni
- Tengt efni:
Kvennasögusafn Íslands:
KSS 2017/2. María Hugrún Ólafsdóttir. Einkaskjalasafn.
–
Kvikmyndasafn Íslands:
Söfn Vilhjálms Knudsen og Ósvalds Knudsen
Um lýsinguna
- Reglur eða aðferð:
Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum
- Dagsetning lýsingar:
Rakel Adolphsdóttir skráði 12. maí 2023
Skjalaskrá
askja 1
- örk 1: María til Vilhjálms, Kaupmannahöfn 14. október 1971 [íslenska]
- örk 2: María til Vilhjálms, Kaupmannahöfn 24. nóvember 1971 [íslenska]
- örk 3: María til Vilhjálms og Johanne, jólin 1971 [íslenska]
- örk 4: María til Vilhjálms, Kaupmannahöfn 11. febrúar 1972 [íslenska]
- örk 5: Joanna Bell til Vilhjálms, Cambridge 15. apríl 1972 [enska]
- örk 6: Valdis til Vilhjálms, 20. maí 1972 [danska Danish]
- örk 7: María til Vilhjálms, Kaupmannahöfn 25. maí 1972 [íslenska]
- örk 8: Johanne til Vilhjálms, Kaupmannahöfn 26. maí 1972 [danska]
- örk 9: María til Vilhjálms, Kaupmannahöfn 20. júní 1972 [íslenska]
- örk 10: María til Vilhjálms, Kaupmannahöfn 12. júní 1972 [íslenska]
- örk 11:
- Johanne til Vilhjálms, Kaupmannahöfn 16. ágúst 1972 [danska]
- María til Vilhjálms, Kaupmannahöfn 17. ágúst 1972 [íslenska]
- örk 12: María til Vilhjálms, Kaupmannahöfn 7. september 1972 [íslenska] og blaðaúrklippa Næstved Tidende frá 5. september 1972 [danska]
- örk 13: tvö tóm umslög
- örk 14: ljósmyndir
- María og Vilhjálmur, María liggur í grasinu með ungan Vilhjálm í fanginu ca. 1946
- María og Vilhjálmur, sama mynd og 1
- María og Vilhjálmur, sama mynd og 1-2 nema önnur gerð
- María, Vilhjálmur og Ósvaldi, þrjár kynslóðir saman á mynd, Vilhjálmur ungur í fangi Ósvalds fyrir framan torfbæ ca. 1946
- María og Vilhjálmur, í Kaupmannahöfn og Vilhjálmur er á unglingsaldri
- Ólafur, faðir Maríu, með tvö stúlkubörn sín á hestbaki, Vindheimar
- Fjórar ungar konur í buxum upp við grjóthleðslu, ein þeirra er mögulega María ca. 1946
- María Ólafsdóttir í þjóðbúning, Magnús F. Bjarnason (1911–1997) mágur hennar og Sigurfljóð Ólafsdóttir (1908–1996), systir Maríu, sitja í stofu ca. 1970
- örk 15: Bréfspjald til Ósvalds, ódagsett og sendandi óvís