Safnmark: KSS 2020/13
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Kvennasögusafn Íslands
- Safnmark:
KSS 2020/13
- Titill:
Oddný Guðmundsdóttir
- Tímabil:
óvíst
- Umfang:
Þrjár öskjur
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2020/13. Oddný Guðmundsdóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Oddný Guðmundsdóttir (1908–1985), rithöfundur
- Lífshlaup og æviatriði:
„Oddný Guðmundsdóttir fæddist árið 1908 á Hóli á Langanesi. Hún lauk gagnfræðaprófi á Akureyri árið 1929 og stundaði síðan nám og störf á bæði Norðurlöndunum og í Sviss. Frá árinu 1940 var Oddný farkennari í um þrjátíu ár víða um land en lengst á Vestfjarðakjálkanum. Oddný fór allra sinna ferða á hjóli og þótti henni það lítið mál að hjóla frá Langanesinu til Reykjavíkur.
Oddný skrifaði talsvert; skáldsögur, smásögur og greinar auk þess sem hún vann að þýðingum. Þá voru einnig leikrit eftir hana flutt í útvarpi. Hluta úr grein Oddnýjar sem birtist í bókinni Konur skrifa og kom út 1980 má lesa á vefsíðunni Strandir.is: Úr dagbók farkennara. Oddný lést á Raufarhöfn árið 1985.“
Heimild: Skáld.is
- Varðveislusaga:
Sigrún Lilja Jónasdóttir afhenti skjölin en þau foru hluti af sýningu um Oddnýju ættarslóðum hennar árið 2019. Samhliða sýningunni var unnin útvarpsþáttur um Oddnýju sem var fluttur á Rás 1.
- Um afhendingu:
Sigrún Lilja Jónsdóttir afhenti Kvennasögusafni 22. desember 2020.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Handrit, bréf og gönguskór.
- Grisjun:
Eftirfarandi bækur voru afhentar með skjalasafninu:
- Einar Kristjánsson, Undir högg að sækja, Akureyri 1955 [áritað til Oddnýja frá höf. „Frk. Oddný Guðmundsdóttir rithöf. Með bestu kveðju Einar Kristjánsson]
- Oddný Guðmundsdóttir, Síðasta baðstofan, Akureyri 1972
- Oddný Guðmundsdóttir, Svo skal böl bæta, Reykjavík 1943
- Oddný Guðmundsdóttir, Haustnætur í Berjadal. Unglingasaga. Reykjavík 1982
- Oddný Guðmundsdóttir, Tveir júnídagar, Akureyri 1949
- Oddný Guðmundsdóttir, Veltiár, Reykjavík 1946
- Oddný Guðmundsdóttir, Á því herrans ári …, Reykjavík 1954
- Oddný Guðmundsdóttir, Orðaleppar og aðrar ljótar syrpur, 1983
- Frágangur og skipulag:
A. Bréf
B. Handrit
C. Munir
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Tengt efni
- Not:
- Sýning 2019
- Útvarpsþáttur Rás 1, Ein gegn öllum, 2019
- Meistaraprófsritgerð Steinunnar Ingu Óttarsdóttur um Oddnýju, „Aldrei skal ég þagna á því meðan ég tóri“ má lesa í Skemmunni
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Rakel Adolphsdóttir flokkaði og skráði 22. júní 2021
- Reglur eða aðferð:
Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum
- Dagsetning lýsingar:
22. júní 2021
Skjalaskrá
askja 1
A. bréf
- örk 1: Frá Oddnýju Guðmundsdóttur til Gísla Guðmundssonar, Helsingör 14. ágúst [ártal óvíst, þrjú blöð, umslag án frímerkis]
- örk 2: Frá Oddnýju Guðmundsdóttur til Gísla Guðmundssonar [ártal óvíst, tvö blöð]
- örk 3: Frá Oddnýju Guðmundsdóttur til Gísla Guðmundssonar, Stokkhólm 10. desember [ártal óvíst, tvö blöð, umslag án frímerkis]
- örk 4: Frá Oddnýju Guðmundsdóttur til Gísla Guðmundssonar, Skólpastöðum 22. febrúar [ártal óvíst, þrjú blöð, umslag án frímerkis]
- örk 5: Frá mágkonu til Oddnýjar Guðmundsdóttur, Kleppjárnskjörum 25. janúar [ártal óvíst, fimm blöð, umslag án frímerkis]
- örk 6: Frá Siggu til Oddnýja Guðmundsdóttur, jólakort og umslag [ártal óvíst]
askja 2
B. Handrit
- örk 1: Handrit að skáldsögunni Skuld [vélritað, 302 blöð]
- örk 2: Kápa af bókinni Vinirnir eftir Erich Maria Remarque [var undir handriti í möppu við afhendingu]
- örk 3: Mappa sem handritið var í við afhendingu [allt járn fjarlægt]
askja 3
C. Munir
- Gönguskór Oddnýjar [brúnir leður, varðveittir í skókassa sem fylgdi við afhendingu]
askja 4
C. Munir frh.
- Oddný Guðmundsdóttir, Skuld, Reykjavík 1967 [merkt: Margrét og Gísli, ljósmynd af höfundi á fremsta spjaldi í bókinni]