Safnmark: KSS 2021/25
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Kvennasögusafn Íslands
- Safnmark:
KSS 2021/25
- Titill:
Petrína K. Jakobsson
- Tímabil:
1935–1986
- Umfang:
Tvær öskjur
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2021/25. Petrína K. Jakobsson. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Petrína K. Jakobsson (1910–1991), teiknari og bæjarfulltrúi
- Lífshlaup og æviatriði:
Petrína K. Jakobsson var fædd 4. febrúar 1910 á Húsavík. Foreldrar hennar voru Jón Ármann Jakobsson (1866–1939) og Valgerður Pétursdóttir (1874–1962). Hún átti sex bræður: Sigurður, Ásgeir, Pétur Hálfdán, Jakob, Hallgrímur og Áki. Fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur árið 1920. Petrína lauk gagnfræðiprófi frá Menntaskólanum við Reykjavík. Hún var við myndlistarnám í Reykjavík 1931–1935 og lærði í Handíða- og myndlistaskólanum 1939–1944. Þá var hún við nám í landmælingum, stærðfræði og kortagerð hjá Zóphaníasi Pálssyni árin 1946–1948, stundaði nám við lýsingatækni og lampagerð í Hollandi og í London um 1950 og stundaði nám í hýbýlafræðum í Kaupmannahöfn 1960–1962. Petrína starfaði hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur 1930–1944, stjórnaði teiknistofu raforkumálastjóra/Orkustofnunar 1944–1977. Hún sat í bæjarstjórn Reykjavíkur fyrir Sameiningarflokk alþýðu Sósíalistaflokkinn 1954–1958 og var í barnaverndarnefnd 1936–1948. Eiginmaður hennar var Jóhann Magnús Hallgrímsson (1911–1982) húsasmíðameistari. Hún lést 2. september 1991.
Heimild: Morgunblaðið 5. september 1991 bls. 14 og Reykjavík Bæjar- og borgarfulltrúartal 1836-1986 (1986).
- Varðveislusaga:
Úr fórum Guðrúnar Hallgrímsdóttur (f. 1941), bróðurdóttur Petrínu.
- Um afhendingu:
Guðrún Hallgrímsdóttir (f. 1941) afhenti Kvennasögusafni þann 11. október 2021.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Fjögur vegabréf og sex bækur ásamt lausum blöðum sem innihalda aðallega teikningar og einstaka texta.
- Viðbætur:
Viðbóta gæti verið von, þá úr fórum annarra fjölskyldumeðlima en Guðrúnar.
Guðrún Hallgrímsdóttir afhenti tvær prentaðar bækur úr fórum Petrínu 29. nóvember 2021 sem eru varðveittar í öskju 3 í skjalasafninu.
- Frágangur og skipulag:
Raðað eftir efni og aldri en ekki í skjalaflokka.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Tengt efni
- Tengt efni:
KSS 17. Kvenfélag sósíalista. Einkaskjalasafn.
KSS 104. Kvennaheimlið Hallveigarstaðir. Einkaskjalasafn.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Rakel Adolphsdóttir skráði
- Reglur eða aðferð:
Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum
- Dagsetning lýsingar:
3. nóvember 2021
Skjalaskrá
askja 1
- örk 1: Vegbréf: 1935, 1954, 1970, 1986
- örk 2: Stílabók með textum [laus blöð í bókinni, án ártals]
- örk 3: Dagbók [án ártals]
askja 2
- örk 4: Laus blöð með teikningum
- örk 5: Bók með teikningum [án ártals]
- örk 6: Bók með teikningum [án ártals]
- örk 7: Bók með teikningum [án ártals]
- örk 8: Bók með teikningum [laus blöð í bókinni, án ártals]
askja 3
- Prentuð bók, laus glósublöð fylgja bókinni: Erwin Voellmy, Fünfstellige Logarithmen und Zahlentafeln, Zurich 1946
- Prentuð bók: Sixten Olsson, Spanske frontminner, Oslo 1938