Safnmark: KSS 163
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 163
- Titill:
Rannveig Þorsteinsdóttir
- Tímabil:
1946–1974
- Umfang:
Ein askja
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 163. Rannveig Þorsteinsdóttir. Skírteini.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Rannveig Þorsteinsdóttir (1904–1987), hæstaréttarlögmaður og þingkona
- Lífshlaup og æviatriði:
Fædd á Sléttu í Mjóafirði 6. júlí 1904, dáin 18. janúar 1987. Foreldrar: Þorsteinn Sigurðsson (1870-1910) sjómaður þar og Ragnhildur Hansdóttir (1877-1967) húsmóðir. Lauk Samvinnuskólaprófi 1924, stúdentsprófi frá MR 1946, lögfræðiprófi HÍ 1949. Rannveig var fyrst íslenskra kvenna sem fékk rétt til þess að flytja mál fyrir Hæstarétti. Hún var kosin á þing fyrir Framsóknarflokkinn 1949. Rak málflutningsskrifstofu í Reykjavík 1949–1974. Dómari í verðlagsdómi Reykjavíkur 1950–1974. Sat í stjórn Kvenfélagasambands Íslands 1947–1963, formaður frá 1959. Formaður Félags íslenskra háskólakvenna og Kvenstúdentafélags Íslands 1949–1957.
- Varðveislusaga:
Óvíst. Kom frá Þjóðminjasafni Íslands til Kvennasögusafns Íslands.
- Um afhendingu:
Þann 16. júní 2016 bárust um hendur Þjóðminjasafns Íslands nokkur skírteini tilheyrandi Rannveigu Þorsteinsdóttur, hrl. og þingkonu (1904–1987): skírteini frá Université de Poitiers; prófskírteini frá Háskóla Íslands; prófskírteini frá Menntaskólanum í Reykjavík; hamingjuósk frá Félagi framsóknarkvenna í Reykjavík; leyfisbréf frá dómsmálaráðherra; fæðingarvottorð; heiðursfélagaskjal Félags framsóknarkvenna í Reykjavík.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Sjö skírteini Rannveigar Þorsteinsdóttur
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska og enska.
Tengt efni
- Tengt efni:
KSS 6. Kvenréttindafélag Íslands.
KSS 103. Kvenfélagasamband Íslands.
KSS 2018/10. Félag háskólakvenna.
Um lýsinguna
- Reglur eða aðferð:
Rakel Adolphsdóttir skráði.
- Dagsetning lýsingar:
19. október 2020
Skjalaskrá
askja 1
- fæðingarvottorð
- prófskírteini frá Menntaskólanum í Reykjavík 1946
- prófskírteini frá Háskóla Íslands 1949
- skírteini frá Université de Poitiers 1961
- hamingjuósk frá Félagi framsóknarkvenna í Reykjavík 1949
- heiðursfélagaskjal Félags framsóknarkvenna í Reykjavík 1974
- leyfisbréf frá dómsmálaráðherra 1959