Safnmark: KSS 2024/11
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Kvennasögusafn Íslands
- Safnmark:
KSS 2024/11
- Titill:
Sigurborg Magnúsdóttir
- Tímabil:
ca. 1930-1961
- Umfang:
Tvær öskjur
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2024/11. Sigurborg Magnúsdóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Sigurborg Magnúsdóttir (1896–1961), húsmóðir og verkakona (og skúffuskáld)
- Lífshlaup og æviatriði:
Sigurborg Magnúsdóttir var fædd 24. febrúar árið 1896 á Eyri í Seyðisfirði. Foreldrar hennar voru Kristín Einarsdóttir (1861–1952) og Magnús Guðmundsson (1834–1900). Eignaðist tíu börn; eitt með Ólafi Ólafssyni (1888–1957): Kristján Ólafur Ólafsson (1911–1912) og níu með eiginmanni sínum Björn Maríus Hansson (1898–1966): Jón Lúðvík Rósinkrans (1917–1947), Sigurður Rósinkrans (1918-1965) Ragnheiður Kristín (1920-2004), Halldór Sölvi (1922-2005), Svavar Hafsteinn (1923-1981), Jón Böðvar (1924–1971), Unnur Kristín (1926–2010), Sólveig María (1927–2013) og Aðalbjörn Þorgeir (1931–2000). Björn Maríus var sjómaður og m.a. skipstjóri á síldarárunum og bjuggu þau í Hafnarfirði. Björn og Sigurborg slitu samvistum um og upp úr 1935. Sigurborg flutti eftir það til Reykjavíkur. Hún var í Kvæðamannafélagi Reykjavíkur. Bjó Kamp Knox E21 í febrúar 1957. Hún lést 15. maí 1961.
- Varðveislusaga:
Barnabarn Sigurborgar gaf gögnin en móðir hans, Ragnheiður Kristín Björnsdóttir, elsta dóttir Sigurborgar hafði passað upp á gögnin móður sinnar.
- Um afhendingu:
Sveinbjörn K. Þorkelsson (f. 1952) gaf Kvennasögusafn gögnin í mars 2024. Hann var ætleiddur af Ragnheiði og Þorkeli Ág. Guðbjartssyni (1915–1981).
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Ljóðahandrit, leikritahandrit, að mestu skrifuð í Hafnarfirði og Reykjavík um og upp úr 1930 og þar til 1961.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
íslenska
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Rakel Adolphsdóttir skráði útfrá grófskráningu gefanda.
- Dagsetning lýsingar:
12. september 2024
Skjalaskrá
askja 1
- Ljóðabók [handskrifuð, merkt Hellusund 7]
- Ljóðabók [handskrifuð]
- Ljóðabók [handskrifuð]
- Ljóðabók [handskrifuð]
- Ljóðabók [handskrifuð]
- Ljóðabók [handskrifuð]
askja 2
- upplýsingar um Sigurborgu frá gefanda, ein ljósmynd af Sigurborgu og eiginmanni
- bréf til Sigurborgar frá Eyju vinkonu: Holti 23. apríl 1936
- bréf Sigurborgu til Rögnu [Ragnheiður Kristín, dóttir]:
- júlí 1951
- Reykjavík 31. október 1952
- blátt blað, ódagsett
- blandað, brot og tilraunir [145 blöð]
- leikrit [nokkur leikrit, 29 blöð samtals]
- vélritað ljós og frásögn [7 blöð, eitt handskrifað]
- dæmi: [verkakona: Ég er ein úr öreigana hóp / aðeins lítil fátæk verkakona, / oft í æsku ergelsið mér skóp / að eiga ei glæstar sagnir minna vona.]
- ljóð [85 blöð]