Safnmark: KSS 2021/26
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Kvennasögusafn Íslands
- Safnmark:
KSS 2021/26
- Titill:
Sólveig Ólafsdóttir
- Tímabil:
1926-1956
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2021/26. Sólveig Ólafsdóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Sólveig Ólafsdóttir (1904–1997) húsmóðir
- Lífshlaup og æviatriði:
Sólveig Ólafsdóttir, húsmóðir, var fædd 24. febrúar 1904 að Strandseljum við Ísafjarðardjúp. Sólveig var við nám við matreiðsludeild kvennaskólans á Blönduósi veturinn 1926–1927. Hún var gift Hannibali Valdimarssyni (1903–1991), alþingismanni og ráðherra, en þau stofnuðu heimili á Ísafirði árið 1934 og bjuggu þar til 1952. Áttu þau fimm börn saman: Arnór (f. 1934) prófessor við Háskóla Íslands, Ólafur Kristján (f. 1935) blaðamaður, Elín (f. 1936) kennari, Guðríður (f. 1937) bankastarfsmaður, Jón Baldvin (f. 1939) alþingismaður. Sólveig tók virkan þátt í félagsstarfi og var m.a. formaður Kvenfélags Alþýðuflokks á Ísafirði um skeið. Þá bauð hún sig fram til Alþingis árið 1956 en náði ekki kjöri. Hún lést 11. maí 1997.
Heimild: Morgunblaðið 13. maí 1997
- Varðveislusaga:
Hafa verið í vörslu Elínar Hannibalsdóttur frá andláti Sólveigar.
- Um afhendingu:
Elín Hannibalsdóttir, dóttir Sólveigar, afhenti bækurnar þann 11. október 2021.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Ein askja sem inniheldur fimm handskrifaðar bækur, fjórar þeirra skrifaði Sólveig sem hluta af námi sínu á matreiðsludeild kvennaskólans á Blönduósi veturinn 1926–1927 og ein er minnisbók hennar frá svipuðu tímabili.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska, handskrifað
Tengt efni
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Rakel Adolphsdóttir skráði
- Reglur eða aðferð:
Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum
- Dagsetning lýsingar:
19. október 2021
Skjalaskrá
askja 1
- örk 1: Æviágrip Sólveigar Ólafsdóttur, ritari er Elín Hannibalsdóttir
- örk 2: Framboðsbréf Sólveigar Ólafsdóttur til húsfrúa 1956
- örk 3: Matreiðslubók skrifuð í matreiðsludeild kvennaskólans Blönduósi veturinn 1926–1927
- örk 4: Matreiðslubók skrifuð í matreiðsludeild kvennaskólans Blönduósi veturinn 1926–1927
- örk 5: Fæðuefnabók skrifuð í matreiðsludeild kvennaskólans Blönduósi veturinn 1926–1927
- örk 6: Brauð og kökur skrifuð í matreiðsludeild kvennaskólans Blönduósi veturinn 1926–1927
- örk 7: Minnisbók [inniheldur nöfn og heimilisföng auk ljóða o.fl., án ártals en ártalið 1932 er ritað á eina blaðsíðuna]