Safnmark: KSS 2025/21
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Kvennasögusafn Íslands
- Safnmark:
KSS 2025/21
- Titill:
Þóra Matthíasdóttir
- Tímabil:
1949-1998
- Umfang:
Ein askja
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2025/21. Þóra Matthíasdóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Þóra Matthíasdóttir (1879-1970), kaupkona
Hildur Þorsteinsdóttir (1913–1998), nam klæðasaum í Berlín 1937-1938
- Lífshlaup og æviatriði:
Þóra var fædd 2. júní 1879. Lærði hannyrðir við Kunst-flid-skólan í Kaupmannahöfn 1904. Sótti söngtíma hjá ungfrú Valborgu Helleman. Rak hannyrðaverslun við Hafnarstræti Akureyri í 30 ár. Flutti til Reykjavík 1947 í Drápuhlíð 32
Faðir: Matthías Jochumsson (1835-1920). Móðir: Guðrún Runólfsdóttir (1852-1923).
Maki: Þorsteinn Skaftason frá Seyðisfirði, gift 11. september 1910. Hann lést 1915. Dætur þeirra: Guðrún söngkennari (f. 1911), Hildur Ingibjörg kaupkona (f. 1913) og Valgerður húsfreyja (f. 1914).
- Um afhendingu:
Sigríður Sigurðardóttir (f. 1948) gaf gestabók úr fórum móðurömmu sinnar Þóru Matthíasdóttur og fáein önnur skjöl tengdum henni. Fósturmóðir Sigríðar var Hildur Ingibjörg Þorsteinsdóttir. Bréf og upplýsingar fylgdu. Leðurbandið á gestabókinni er eftir Lóló.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Rakel Adolphsdóttir skráði
- Reglur eða aðferð:
Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum
- Dagsetning lýsingar:
28. ágúst 2025
Skjalaskrá
askja 1
örk 1
- Fæðingar og skírnarvottor, Hildur Þorsteinsdóttir (f. 1913), 1947
- Vottorð, Hildur hefur greitt eftirstöðvar íbúðar Drápuhlíð 32, 1949
- Skírnarvottor Hildar 1934 [hefur rifnað í tvennt]
- Afsal íbúðar á 1. hæð í Drápuhlíð 32, 1949
- Veðskuldabréf Hildur Þorsteinsdóttir, Drápuhlíð 32
örk 2
- Gestabók
- í leðurbandi eftir Lóló, ein ljósmynd af Þóru í bókinni. Byrjar á áttræðisafmæli frú Þóru 2. júní 1959 – erfidrykkja Hilda Þorsteinsdóttur 29. september 1998