Safnmark: KSS 29
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 29
- Titill:
Þórunn Kolfinna Ólafsdóttir (1905-2000)
- Tímabil:
1950-1985
- Umfang:
Tvær öskjur
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.KSS 29. Þórunn Kolfinna Ólafsdóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Þórunn Kolfinna Ólafsdóttir (1905-2000), verslunarkona
- Lífshlaup og æviatriði:
Fæddist í Hafnarfirði 1. ágúst 1905, d. í Reykjavík 15. maí 2000.
For.: Ólafur Sigurðsson frá Merkinesi, bóndi, formaður og smiður, og seinni kona hans, Sigurbjörg María Eyjólfsdóttir.
Lauk námi frá Flensborgarskóla. Hóf ung verslunarstörf, fyrst í Sturlubúð en í þrjá áratugi í Verslun Kristínar Sigurðardóttur að Laugaveg 20 í Rvk. þar til sú verslun hætti starfsemi í byrjun sjöunda áratugar 20. aldar. Starfaði frá 1963 hjá Happdrætti H.Í. í 12 ár. Ógift og barnlaus. - Varðveislusaga:
Ólafur Halldórsson afhenti Kvennasögusafni skjölin en Þórunn var afasystir hans. Skjölin komu af heimili Þórunnar.
- Um afhendingu:
Afhending var 25. jaúnar 2005
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Tvær öskjur. Safn Þórunnar Kolfinnu hefur að geyma sendibréf til hennar, kort og símskeyti, nokkrar ljósmyndir, minningargreinar um Þórunni og geisladisk með upplýsingum.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Safnið er opið
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska
Tengt efni
- Tengt efni:
- Ljósmyndasafn Reykjavíkur varðveitir ljósmyndir úr hennar fórum.
- Héraðsskjalasafn Kópavogs varðveitir bréf og önnur skjöl frá henni, tilvísun: 5/2006 og 6/2007.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Skjölin komu í pappakassa. Auður Styrkársdóttir raðaði árið 2005. Hún skrifaði lýsingu í sept. 2011. Ljósmyndir fóru á Ljósmyndasafn Reykjavíkur (2005-14).
- Dagsetning lýsingar:
22. mars 2011
Skjalaskrá
Askja 1:
Sendibréf. Neðst liggja kort, símskeyti, nokkrar myndir, vegabréf frá 1947 o.fl.
Bréfritarar:
– Dadda
– Anna S. Sigurjónsdóttir, Torfastöðum
– Ingibjörg Johnson, San Fransisco
Saman í örk:
– Begga og Jón
– Ingunn
– Vala
– Margrjet Bjarnadóttir
– Villý Vilhjálmsdóttir
– Sigrún
– Óþekkt
Askja 2: Sendibréf, bréfritarar:
– Tóta, Kanada
– Gunnhildur, Oslo
– Helen, Danmmörk