Safnmark: KSS 76
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 76
- Titill:
Þórunn Magnúsdóttir
- Tímabil:
1975-1999
- Umfang:
Þrjár öskjur
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 76. Þórunn Magnúsdóttir (1920-2009). Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Þórunn Magnúsdóttir (1920-2008), sagnfræðingur.
- Lífshlaup og æviatriði:
- 12.12. 1920 í Vestmannaeyjum, d. 24.12. 2008 í Reykjavík
Foreldrar: Guðrún Jónsdóttir saumakona og Magnús Jónsson bóndi
Giftist Birni Guðmundssyni bifreiðastjóra, slitu samvistum. Eignuðust fimm börn. Giftist Helga Jónssyni vélsmið, slitu samvistum. Eignuðust eina dóttur
Þórunn var virk í Menningar- og friðarsamtökum íslenskra kvenna, íslenskum friðarhreyfingum og Samtökum um kvennalista. Hún var sagnfræðingur og eftir hana liggja bækurnar Sjókonur á Íslandi 1891-1981(1988) og Þörfin knýr. Upphaf verkakvennahreyfingar á Íslandi (1991).
Sjá nánar Morgunblaðið 07.01. 2009, bls. 28 og 12.01. 2009, bls. 29
- Varðveislusaga:
Úr fórum Þórunnar Magnúsdóttur.
- Um afhendingu:
Börn Þórunnar afhentu safninu 9. janúar 2009
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Safnið geymir ýmis erindi er Þórunn hélt, innanlands sem utan, efni frá Norrænu kvensagnfræðingaþinginu 1985 og ýmsum erlendum sagnfræðingaþingum, efni frá Beijing-ráðstefnunni 1995, efni frá stjórnskipaðri Kvennaársnefnd og ýmis bréf tengd félags- og fræðistörfum Þórunnar.
- Grisjun:
Engu var eytt
- Viðbætur:
Ekki er kunnugt um viðbætur
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska, norðurlandamál og enska.
Tengt efni
- Tengt efni:
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Auður Styrkársdóttir raðaði í öskju, skráði og setti í safnmark. Hún skrifaði þessa lýsingu svo í ágúst 2012.
- Dagsetning lýsingar:
ágúst 2012
Skjalaskrá
Askja 1:
- Erindi Þórunnar:
Sjókonur fyrr og nú
Vindheimafólkið
Ekkjur á agasamri öld (dags. Rvk. á þorra 1980)
Ávarp á fundi í Flókalundi 19 júní 2000
8 mars fundur í Ráðhúsi Reykjavíkur (dags. 8 mars 1995)
Alþjóðlegir sáttmálar um mannréttindi kvenna (dags. 15.3. 1995)
Handrit með nokkrum kaflaheitum, m.a. „Endurnýjun vinnuaflsins“ sem látið er standa fremst
„Hvað störfuðu dætur Brands í Roðgúl?“ (dags. 21 febr. 1975)
„Vakir þú… Vakir Þyrill einn“
Verkakvennafélög á Íslandi: Söguleg þróun. Erindi flutt á Nordisk forum 94, 3.8. 1994
De isländska arbeterskornas fackförbund (þýðing á ofannefndu)
Handrit um ýmis störf kvenna gegnum tíðina (ódagsett og ótölusett)
Erindi flutt á alþjóðlegri ráðstefnu um kvennarannsóknir í Amsterdam 1986
Handrit um rnnsókn ÞM á sjósókn íslenskra kvenna (ódagsett og ótölusett)
„Endurminningabrot um vinkonu mína“ (Guðbjörgu Guðmundsdóttur)
- Erindi Þórunnar:
Nám, kennsla og kennsluefni í samfélagsfræðum í íslenskum grunnskólum. Erindi flutt á ráðstefnu Kennarasambands Vesturlands (handrit án dagsetningar)
Hagsaga 222-4 (kennsluefni ÞM, fyrirlestrar)
Ýmis skrif varðandi atvinnu kvenna sem ÞM virðist hafa notað við kennslu
- Sjósókn sunnlenskra kvenna. Ýmsir pappírar viðkomandi því riti ÞM
- Tvær litlar glósubækur
Askja 2:
- Norræna kvensagnfræðingaþingið 1985, ýmsir pappírar viðkomandi því og lítið eitt frá 1983
- Erlend sagnfræðingaþing og ýmis samvinna
3. Fræðistörf, erindi Þórunnar:
Et försök til en förindustriel urbanisering
Arbejdskvinners og arbejdsfolks foreninger i Island
Søkvinder, registrerte i Island
Um athugun á kennsluefni í Íslandssögu, á íslensku og dönsku
Kvindelige fiskere ved Islands sydkyst i 1697-1980
Kvinders status i Island
Islandske søkvinders arbejde og kår i mellemkrigstiden og fremover
Female seamen in Iceland
Rannsóknarverkefnið sjókonur á Íslandi 1891-1981
Askja 3:
- Ýmislegt efni frá Beijing-ráðstefnunni 1995, en Þórunn Magnúsdóttir var þar fulltrúi.
- Stjórnskipuð kvennaársnefnd 1975, en Þórunn Magnúsdóttir var þar fulltrúi. Fundargerðir, bréf o.fl.
- Ýmislegt efni, bréf o.fl.