Safnmark: KSS 65
Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark:
KSS 65
- Titill:
Vilborg Harðardóttir
- Tímabil:
1970-1982
- Umfang:
Fjórar öskjur
- Tilvitnun:
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 65. Vilborg Harðardóttir (1935-2002). Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara:
Vilborg Harðardóttir (1935–2002)
- Lífshlaup og æviatriði:
sjá minningargreinar í Morgunblaðinu 23 ágúst 2002
- Varðveislusaga:
Mörður Árnason afhenti gögnin sem komu úr dánarbúi móður hans, Vilborgar Harðardóttur (1935-2002). Nokkur gögn er tilheyra sögu Rauðsokka eru flokkuð með KSS 63 (askja 23).
- Um afhendingu:
Afhending fór fram 14 maí 2014 á skrifstofu Kvennasögusafns
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald:
Safnið inniheldur fjórar öskjur. Fyrsta askjan geymir gögn varðandi fóstureyðingarmálið 1975, önnur askjan geymir gögn jafnréttisnefndar 1981-1983 og Vilborg var formaður fyrir, þriðja askjan geymir ýmis göng, m.a. ræður og greinar Vilborgar og gögn varðandi kvennaráðstefnum Sameinuðu þjóðanna 1975 og 1985. Fjórða askjan geymir nokkrar ljósmyndir.
- Grisjun:
Íslenskt efni á mjög sýruríkum pappír ljósritað og pappírnum eytt. Nokkur gögn er tilheyra sögu Rauðsokka eru flokkuð með KSS 63.
- Viðbætur:
Viðbóta er ekki von
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not:
Safnið er opið
- Skilyrði er stjórna endurgerð:
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál:
Íslenska, enska, norðurlandamál.
Tengt efni
- Tengt efni:
KSS 63. Rauðsokkahreyfingin. Einkaskjalasafn.
KSS 64. Baráttusamtök
KSS 146. Guðrún Ágústsdóttir. Einkaskjalasafn.
KSS 2018/15. Helga Sigurjónsdóttir. Einkaskjalasafn.
KSS 2019/14 Rauðsokkahreyfingin. Einkaskjalasafn.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar:
Auður Styrkársdóttir skrifaði lýsingu í júní 2014 og setti á safnmark.
- Dagsetning lýsingar:
24. júní 2014
Skjalaskrá
Askja 1:
A Íslenskt efni:
- Bréf til heilbrigðisráðherra frá konum sem gengist hafa undir fóstureyðingu (óundirritað);
- bréf til allsherjarnefndar sameinaðs Alþingis, undirritað Pétur H.J. Jabobsson;
- samantekt um núgildandi löggjöf íslenska um fóstureyðingar, afkynjanir og vananir;
- frumvörp til laga; seminar um fóstureyðingarlöggjöf, lagadeild Háskóla Íslands; mikið talnaefni; útdráttur á löggjöf um fóstureyðingar á Norðurlöndunum og lög á Íslandi
B Erlent efni: ljósrit af greinum um fóstureyðingar, fóstureyðingarlöggjöf og rannsóknir.
Askja 2:
Efni tengt nefnd til þess að fjalla um jafnréttismál karla og kvenna, skipuð 3. apríl 1981. Vilborg Harðardóttir var formaður
• Jafnréttislög á Norðurlöndum
- Spurningar nefndarinnar og aðsend svör varðandi jafnréttislögin íslensku
- Konur í sveitarstjórnum 1978-1982, listi
- Úr könnun Kvennaársnefndar
- Nokkur erindi nefndarinnar
- Frumvarp til laga um jafnan rétt karla og kvenna, breytingar 1981
- Fundagerðir 22 funda nefndarinnar, 21. apríl 1981-12. apríl 1983
- Skipunarbréf ráðherra 3. apríl 1981
Askja 3:
- Alþýðubandalagið: Kvennafylkingin, kvennafélag Alþýðubandalagsins
2. Alþýðubandalagið: ræður Vilborgar: um kvennaframboð, jafnrétti kynjanna, flokksskipulag sósíaliskrar hreyfingar; grundvöllur Abl. í málefnum fjölskyldunnar - Grein eftir Barböru Robin ásamt bréfi, dags. 10 janúar 1974, fjallar um íslenskar konur
- Netið
- Greinar og ræður, Vilborg Harðardóttir:
- Grein V.H. í jólablað Þjóðviljans 1967 –
- Ræða haldin 1. maí, (án stundar og staðar) –
- Erindi flutt á ráðstefnu ASÍ og BSRB 1975 –
- Skálaræða (án stundar og staðar) –
- Ræða flutt á fundi Kvenréttindafélags Íslands 24. okt. 2000 –
- Uppkast að ræðu um jafnréttisnefndina sem V.H. var formaður fyrir 1981-1983
- Greinar og ræður, Vilborg Harðardóttir:
- greinin – Fær leið? (án stundar og staðar)
- Small is beautiful (án stundar og staðar)
- Er kvótakerfi innan flokkanna leið til að fjölga konum í stjórnmálum (án stundar og staðar)
- Frásögn Vilborgar af ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Mexíkó 1975 – límmiðar
- Kvennaárið 1975: Bréf frá Gudrun Ekeflo á Aftonbladet í Stokkhólmi til V.H. 5 nóv. 1975 Dreifiblaðið „Hvers vegna kvennafrí?“ – Dreifiblaðið ”Hvorfor Kvindefridag?”
- Kvennaárið 1975: Ræður/greinar V.H. um kvennaárið
- Skýrsla á dönsku um kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn 1980
- Kvennaráðstefna S.Þ. 1980: Til undirbúningsnefndar frá ASÍ
- Kvennaráðstefna S.Þ. 1980: Ræða/skýrsla á íslensku og ensku
- Kvennaráðstefna S.Þ. 1980: Fréttatilkynning
- Samanburður V.H. á ráðstefnum S.Þ. 1975 og 1980
- Skýrsla undirbúningsnefndar Kvennaáratugsráðstefnu S.Þ. 1985
Askja 4:
Ljósmyndir
- Mexíkó 1975
- Frá Indlandsheimsókn 1985 [1 ljósmynd, úrklippur]
- Nordisk Forum 1988